Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíu­verð hrynur vegna vonar um sam­komu­lag

Read Full Article →

Heims­markaðsverð á olíu féll skarpt í morgun eftir fréttir um að Bandaríkin og Íran væru nálægt sam­komu­lagi sem gæti dregið úr spennu í Mið-Austur­löndum og opnað á eðli­legri flutninga um Hor­mússund. Verð á Brent-hráolíu hefur lækkað um tæp 9% og stendur í um 100 dölum þegar þetta er skrifað. Brent hefur hækkað verulega á síðustu dögum vegna ótta við lang­varandi truflun á olíu­flutningum um Hor­mússund og fór verðir yfir 125 dali á tunnu. Sam­kvæmt Financial Times byggja væntingarnar á frétt Axios um að Hvíta húsið telji Bandaríkin og Íran nálægt því að samþykkja einnar síðu sam­komu­lag. Þar myndi Íran fallast á tíma­bundið hlé á auðgun úrans, en Bandaríkin myndu á móti losa um frysta íranska fjár­muni og aflétta refsiað­gerðum. Sam­komu­lagið fæli einnig í sér að báðir aðilar afléttu tak­mörkunum á flutningum um Hor­mússund, sem er ein mikilvægasta flutnings­leið heims fyrir olíu. Trump setti að­gerð á ís Verðlækkunin kom skömmu eftir að Donald Trump Bandaríkja­for­seti sagðist hafa sett á ís hernaðarað­gerð sem átti að fylgja kaup­skipum um Hor­mússund. Að­gerðin, sem nefnd hefur verið Project Freedom, hafði aðeins verið í gangi í einn dag áður en Trump sneri við. Hann sagðist vilja sjá hvort diplómatísk lausn næðist við Íran, meðal annars vegna fram­gangs í viðræðum og beiðni frá Pakistan, sem hefur reynt að miðla málum milli Was­hington og Teheran. For­sætis­ráðherra Pakistan sagði í dag að Mohammed bin Sal­man, krón­prins Sádi-Arabíu, hefði einnig verið meðal þeirra leið­toga sem óskuðu eftir því að Bandaríkin settu að­gerðina á ís. Sádi-Arabía styður til­raunir Pakistans til að miðla málum og stuðla að því að Hor­mússund opnist að nýju. Markaðir anda léttar Lækkun olíu­verðs hefur þegar haft áhrif á markaði. Evrópsk hluta­bréf hækkuðu í morgun og Stoxx Europe 600 vísi­talan og FTSE 100 vísi­talan í London hækkuðu báðar um 2,3%. Lægra olíu­verð dregur úr ótta við nýtt verðbólgu­skot og léttir undir með fyrir­tækjum sem eru viðkvæm fyrir elds­neytis­kostnaði, þar á meðal flug­félögum. Gengi Icelandair hefur hækkað um rúm 3% í Kaup­höllinni í dag. Félagið hafði áður varað við áhrifum hækkandi elds­neytis­verðs og til­kynnt um mót­vægisað­gerðir, meðal annars aðhald í kostnaði, hækkun far­gjalda og sam­drátt í flug­fram­boði. Óvissan ekki horfin Þrátt fyrir skarpa lækkun olíu­verðs er óvissan ekki horfin. Enn liggur ekki fyrir form­legt sam­komu­lag milli Bandaríkjanna og Írans og staðan í kringum Hor­mússund getur breyst hratt. Olíu­markaðurinn hefur sveiflast mikið síðustu daga, fyrst vegna ótta við lang­varandi lokun eða tak­markanir á flutningum um sundið og nú vegna væntinga um að diplómatísk lausn sé í sjón­máli. Niður­staðan er að markaðir verð­leggja nú minni líkur á lang­varandi fram­boðs­röskun. Ef sam­komu­lag næst gæti það dregið veru­lega úr þrýstingi á olíu­verð, verðbólgu og elds­neytis­kostnað fyrir­tækja.

Share this article