Saga Björgvinsdóttir, nemandi í Grunnskólanum á Ísafirði, endurheimti Íslandsmetið í hreystigreip í Skólahreysti þegar hún hékk í 30 mínútur og 9 sekúndur í keppni kvöldsins. Með því bætti hún fyrra met um fimm mínútur. Dagbjört Lilja Oddsdóttir átti metið áður, en hún hékk í 25 mínútur og eina sekúndu í úrslitum Skólahreysti í fyrra. Hún bætti metið tvívegis það ár, fyrst í undanriðli þegar hún sló fyrra met Sögu frá 2024. Saga svaraði því sama dag og endurheimti metið. Í úrslitakeppni Skólahreysti í fyrra bætti Dagbjört metið enn frekar og hreppti það aftur af Sögu. Hún bætti Íslandsmetið því tvisvar sama árið. Dagbjört keppir fyrir hönd Lágafellsskóla í undanriðli á morgun klukkan 19:45. Þetta er í þriðja sinn sem Saga setur Íslandsmet í greininni og á hún nú besta, þriðja besta og fimmta besta tímann í hreystigreip. Grunnskólinn á Ísafirði hafnaði í öðru sæti í riðlinum og er kominn í úrslit, þar sem Saga fær annað tækifæri til að bæta eigið met. Saga Björgvinsdóttir hreppir Íslandsmetið í hreystigreip á ný. Hún hékk í rúmar 30 mínútur og með því bætti hún fyrra met Dagbjartar Lilju Oddsdóttur um fimm mínútur.