Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Borgin heldur Höfðanum í gíslingu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 7.5.2026 | 6:00 Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Húseigendur mynda samtök til að verja hagsmuni sína gagnvart borgaryfirvöldum og efna til fundar. mbl.is/Sigurður Bogi Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Húseigendur á Ártúnshöfða hafa miklar áhyggjur af stöðu lóðarleigusamninga við Reykjavíkurborg sem eru að renna út. Þeir hafa stofnað samtök til að verja hagsmuni sína gagnvart yfirgangi borgaryfirvalda sem hafa gefið út mismunandi samninga að undanförnu og neitað að eiga fundi með lóðarhöfum. Stefán Halldórsson, framkvæmdastjóri Leiguvals og einn húseigenda, segir að stór hluti eignanna sé aðeins með lóðarleigusamninga til 2028 og 2033 á meðan aðrir hafi fengið samninga til 2040 og með þessum mismunandi samningum sé brotin jafnræðisregla á lóðarhöfum á Höfðanum. „Höfðanum er haldið í gíslingu þar sem lóðarleigusamningar eru meira og minna útrunnir, sem gerir það að verkum að þessar eignir geta ekki gengið kaupum og sölum. Alvarlegast í þessu er að Reykjavíkurborg tekur uppkaupsákvæði úr samningum við framlengingu samninga hjá flestum en ekki öllum. Lóðarleigusamningur án uppkaupsákvæðis gæti þýtt að lóðarhafi þurfi að skila lóðinni tómri að leigutíma loknum.“ Misræmis gætir á milli lóðarhafa um hvernig gengið er frá endurnýjun samninga, sumir fá endurnýjun til langs tíma á meðan aðrir fá endurnýjun til nokkurra ára með mismunandi fyrirvörum. Sumir lóðarleigusamningar á Ártúnshöfða eru með uppkaupsákvæði og aðrir samningar eru án slíks ákvæðis og segir Stefán að fram að þessu hafi ekki þurft að hafa áhyggjur af því að lóðarleigusamningur sé ekki endurnýjaður. „Þess vegna voru menn ekki hræddir við að kaupa eignir þótt langt væri liðið á lóðarleigusamning. Það er ekki fyrr en núna að ótti og óvissa er komin upp vegna tregðu Reykjavíkurborgar til að endurnýja samninga eins og gert hefur verið fram að þessu.“ Stefán nefnir að húseigendur á Höfðanum haldi að sér höndum þegar kemur að viðhaldi húsa þar sem upp sé komin eignarréttarleg óvissa vegna þess að Reykjavíkurborg endurnýi ekki lóðarleigusamninga með eðlilegum hætti og skilji eigendur eftir í lausu lofti. „Ef húseigandi hefur ekki lóðarleigusamning þá er eignin hans verðlaus þar sem hún er óveðhæf og er því ekki lengur fasteign í skilningi laganna." Í samningum sem Stefán hefur undir höndum kemur fram í sumum þeirra uppkaupsákvæði en í öðrum ekki, sem skapar óvissu um hvað Reykjavíkurborg meinar með misvísandi texta. „Það eru örfá fordæmi fyrir því að sveitarfélög endurnýi ekki lóðarleigusamninga en það heyrir til undantekninga og fasteignamarkaðurinn allur gerir ráð fyrir því að fasteignir standi á tryggum samningum og að á þá sé hægt að treysta.“ Stefán segir að húseigendur á Ártúnshöfða hafi verulegar áhyggjur af því að Reykjavíkurborg ætli ekki að endurnýja lóðarleigusamninga. „Það er komin upp pattstaða og það þarf að leysa þennan hnút þannig að eignir geti gengið kaupum og sölum því þetta hamlar fasteignaviðskiptum á þessu svæði eins og staðan er í dag.“ Morgunblaðið hefur tvívegis fjallað um lóðarleigusamninga á Höfðanum, í maí í fyrra og nú í febrúar, þar sem greint var frá því að meirihluti borgarráðs hefði hafnað tillögu Hildar Björnsdóttur oddvita sjálfstæðismanna um að ganga til viðræðna við lóðarhafa á Ártúnshöfða. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skarsgård og Moore í dómnefnd á Cannes Brauðrist setti af stað töluvert viðbragð Áfram kuldi í kortunum ESB upplýst en þjóðin ekki Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Höfnum vinstristjórn í Hafnarfirði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Ekki eins og upphaf kórónuveirufaraldursins Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Þóra og RÚV sýknuð Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Ráðuneytið hafi vísvitandi málað ranga mynd Fresta áformum um frían Strætó fyrir reykvísk börn Íslendingar í eldlínu mótmælanna á Tvíæringnum 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Hlynnt því að byggja golfvöll Meirihluti þolenda eru karlmenn „Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við“ Samþykktu þéttingartillögu í Grafarvogi Ekki ósanngjarnt að rukka fyrir rennuna Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“ Nýjast á mbl.is » Skarsgård og Moore í dómnefnd á Cannes Brauðrist setti af stað töluvert viðbragð Áfram kuldi í kortunum ESB upplýst en þjóðin ekki Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Höfnum vinstristjórn í Hafnarfirði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leggst að bryggju á Tenerife innan þriggja daga 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Telja sig vera nálægt samkomulagi við Íran Vorið lætur bíða eftir sér Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Ráðuneytið hafi vísvitandi málað ranga mynd Fresta áformum um frían Strætó fyrir reykvísk börn Íslendingar í eldlínu mótmælanna á Tvíæringnum 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Hlynnt því að byggja golfvöll Meirihluti þolenda eru karlmenn „Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við“ Samþykktu þéttingartillögu í Grafarvogi Ekki ósanngjarnt að rukka fyrir rennuna Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“

Share this article