Kosið er um 6 borgarstjóraembætti á Englandi og 5000 fulltrúar í sveitarstjórnir verða kjörnir. Auk þess eru þingkosningar í Skotlandi og Wales. Búist er við að Verkamannaflokkurinn lendi í þriðja sæti í Wales en flokkurinn hefur borið höfuð og herðar yfir aðra flokka þar undanfarna áratugi. Útlit fyrir að 27 ára valdaferli ljúki í Wales Reform, Umbótaflokki Nigels Farage, er spáð góðu gengi í kosningunum til Senedd, welska þingsins í Cardiff. Baráttan um forystuna stendur á milli Reform og Plaid Cymru, sem vill að Wales verði sjálfstætt ríki í framtíðinni. Verkamannaflokkurinn hefur stjórnað Wales í næstum þrjá áratugi en er spáð þriðja sæti að þessu sinni. Flokkurinn hefur verið stærsti stjórnmálaflokkurinn í Wales í heila öld en fylgið hefur hrunið á undanförnum misserum. Þó að Reform sé spáð góðu gengi er talið ólíklegt að flokkurinn geti mynda stjórn. Líklegra er að Plaid Cymru geti myndað stjórn með öðrum flokkum á vinstri væng stjórnmálanna. SNP gæti haldið völdum í Skotlandi Kannanir benda til þess að Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, eigi góða möguleika á að halda völdum í þinginu í Holyrood í Edinborg. SNP er spáð 35-40 prósenta fylgi og það þrátt fyrir að aðeins fjórðungur kjósenda sé ánægður með stjórnina. Sólveig Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, segir að margir kjósendur telji flokkinn illskásta kostinn, aðrir flokkar heilli ekki. Sólveig segir þreytu og áhugaleysi almennings hafa einkennt kosningabaráttuna. Löng valdatíð SNP Það vekur athygli að takist SNP að halda völdum verður flokkurinn sá eini flokkurinn sem er við völd í Bretlandi sem tapar þeim ekki. Sólveig segir að SNP hafi tekist í fyrstu kosningunum til skoska þingsins 1997 að færa sig frá því að vera mótmælaflokkur á jaðrinum í að verða trúverðugt stjórnmálaafl. Flokknum hafi tekist að sækja fylgi frá Verkamannaflokknum sem lengi hafi verið stærsti flokkurinn. Flokkurinn hafi sett ýmis lög sem hafi haft áhrif á daglegt líf fólks. Skólagjöld í háskólum hafi verið felld niður, flokkurinn hafi lagt áherslu á umönnun aldraðra, sett þak á verð á almenningssamgöngum og tryggt umönnun barna frá sex mánaða aldri og fram að grunnskóla. Sterkir forystumenn skiptu miklu máli Sólveig segir einnig skipta máli að forystumenn flokksins hafi verið öflugir, bæði Alex Salmond og Nicola Sturgeon hafi verið sterkir leiðtogar á meðan aðrir skoskir stjórnmálaleiðtogar hafi ekki náð að heilla kjósendur. Núverandi leiðtogi SNP, John Swinney, hafi ekki sama karisma og þau. Skoskir kjósendur séu óánægðir með menntamál, húnsæðismál og heilbrigðiskerfið sé í lamasessi. Þessi óánægja gæti ráðið úrslitum að sögn breska blaðsins The Guardian. Gömlu stóru flokkarnir í miklum vandræðum Reform, Umbótaflokki Nigels Farage, er spáð mikilli fylgisaukningu í sveitarstjórnarkosningum á Englandi. Flokkurinn er yst til hægri í breskum stjórnmálum og segja má að Grænir séu lengst til vinstri og þeim er einnig spáð fylgisaukningu. Frjálslyndir demókratar búast við góðum úrslitum en flokkarnir sem einu sinni báru höfuð og herðar yfir aðra breska stjórnmálaflokka mega muna fífil sinn fegri. Þetta eru Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn sem eiga í vök að verjast. Fari Verkamannaflokkurinn mjög illa út úr kosningunum gæti Keir Starmer hrakist úr embætti. Kosið er í Bretlandi í dag, þingkosningar í Skotlandi og Wales og sveitarstjórnarkosningar víða í Englandi. Fjallað var um kosningarnar í Heimsglugganum á Rás 1. Sólveig Jónsdóttir, blaðamaður og rithöfundur ræddi við Boga Ágústsson.
This article does not describe a technical security vulnerability, threat, or attack vector; it is a political analysis of upcoming local and regional elections in the United Kingdom. Consequently, none of the requested technical details—such as a CVSS score, affected versions, fixed versions, or workarounds—are applicable or present in the source material.