Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Van­skil fyrir­tækja aukist mest í byggingar­geiranum

This article describes a macroeconomic and sector-specific financial risk, not a software vulnerability or technical threat. It details increased loan defaults, particularly in Iceland's construction sector, driven by high financing costs and a cooling housing market, as reported in Arion Bank's financial statements. The article provides no information about a technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds.
Read Full Article →

Aukning van­skila hjá fyrir­tækjum í lána­safni Arion banka frá árinu 2023 hefur að stórum hluta verið í byggingar­geiranum. Þetta kemur fram í fjár­festa­kynningu Arion banka vegna upp­gjörs fyrsta árs­fjórðungs. Þar segir að hlut­fall van­efndalána hafi hækkað í takt við vaxta­stig og að fram­vindan ráðist lík­lega að miklu leyti af því hversu hratt peninga­stefnan taki að linast. Samkvæmt bankanum hafi byggingargeirinn orðið fyrir áhrifum af háum fjár­mögnunar­kostnaði á sama tíma og hægt hafi á íbúða­markaði. Í árs­hluta­reikningi Arion kemur fram að virðis­rýrnun nam 391 milljón króna á fyrsta árs­fjórðungi, saman­borið við 378 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Virðis­rýrnunin jafn­gildir 12 punktum á árs­grund­velli, sem er sama hlut­fall og á fyrsta árs­fjórðungi síðasta árs. Virðisrýrnun vegna útlána til fyrirtækja nam 287 milljónum króna á fjórðungnum, en virðisrýrnun vegna útlána til einstaklinga nam 104 milljónum króna. Á sama tíma í fyrra nam virðisrýrnun vegna fyrirtækjalána 589 milljónum króna, en virðisrýrnun vegna einstaklingslána var jákvæð um 211 milljónir króna. Bankinn segir þó gæði lána­safnsins áfram sterk þrátt fyrir að hlut­fall van­efndalána hafi hækkað að undan­förnu. Í fjár­festa­kynningunni kemur fram að van­efndalán séu al­mennt vel tryggð með veðum og að trygginga­hlut­fall þriðja stigs lána sé 22,5 pró­sent. Þriðja stigs lán eru þau lán sem teljast hafa orðið fyrir veru­legri virðis­rýrnun sam­kvæmt reiknings­skila­reglum. Í árs­hluta­reikningnum kemur fram að lán til við­skipta­vina á þriðja stigi námu 34,2 milljörðum króna að bók­færðu brúttóvirði í lok mars, saman­borið við 32,3 milljarða króna í árs­lok 2025. Í árs­hluta­reikningnum kemur einnig fram að greiðslu­aðlögunar­lán, eða lán þar sem við­skipta­vinum hefur verið veitt til­slökun vegna tíma­bundinna erfið­leika, námu 49,1 milljarði króna í lok mars. Þar af voru 33,6 milljarðar króna vegna fyrir­tækja og 15,5 milljarðar króna vegna ein­stak­linga. Í árs­lok 2025 námu slík lán sam­tals 47,2 milljörðum króna. Bankinn segir lán sem hafi fengið greiðslu­aðlögun en séu ekki á þriðja stigi nema 1,9 pró­sentum af útlánum til við­skipta­vina. Þá metur bankinn að vænt útlána­tap til lengri tíma verði á bilinu 20 til 25 punktar miðað við núverandi sam­setningu lána­safnsins. Í lok fyrsta árs­fjórðungs var tólf mánaða vænt útlána­tap af virkum lánum 30 punktar, sem bankinn segir endur­spegla varfærna sýn stjórn­enda miðað við núverandi efna­hags­aðstæður. Þrýstingurinn á byggingar­geirann kemur fram á sama tíma og bankinn lýsir kólnandi húsnæðis­markaði. Í árs­hluta­reikningnum segir að raun­verð íbúðar­húsnæðis hafi aðeins lækkað hóf­lega þrátt fyrir háa vexti og hert að­gengi að láns­fé, en veltan á markaðnum hafi minnkað og óseldum íbúðum fjölgað. Í fjár­festa­kynningu bankans segir jafn­framt að háir vextir, lengri sölutími og birgðir óseldra nýrra íbúða haldi aftur af íbúða­fjár­festingu. Greiningar­deild Arion spáir því að íbúða­fjár­festing dragist frekar saman á þessu ári áður en hún taki við sér á ný þegar vextir lækka. Sjá einnig Arð­semi eigin fjár 13,9% á fyrsta árs­fjórðungi

Share this article