Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíu­verð komið aftur undir 100 dali

This article does not describe a software vulnerability or technical threat; it is a financial news report about oil price fluctuations due to geopolitical tensions surrounding the Hormuz Strait and a proposed US peace deal with Iran. Therefore, none of the requested technical security details (vulnerability description, CVSS score, affected versions, fixed version, or workaround) are applicable or present in the source material.
Read Full Article →

Olíu­verð hefur sveiflast töluvert síðustu daga vegna óvissu um Hormússund, eina mikilvægustu flutninga­leið olíu í heiminum. Brent-hráolía lækkaði um 2% í við­skiptum í Evrópu í morgun og fór í 99 dali á tunnu en ólíuverð hefur nú verið á niðurleið 2 daga í röð. Lækkunin kemur vegna þess að fjár­festar eru jákvæði fyrir bandarískri til­lögu um frið, sem Íranar eru sagðir hafa til skoðunar. Til­lagan felur meðal annars í sér að Íran stöðvi auðgun úrans gegn af­námi refsiað­gerða. Þá myndu báðir aðilar heimila flutninga um Hormússund. Donald Trump Bandaríkja­for­seti hefur sagt að stríðinu ljúki og Hormússund verði „opið öllum“ samþykki Teheran sam­komu­lagið, en varaði jafn­framt við því að Bandaríkin myndu hefja árásir á Íran að nýju ef sam­komu­lag næðist ekki. Markaðir í Evrópu héldu að mestu í hækkanir gærdagsins í viðskiptum morgunsins en Stoxx Europe 600 hækkaði lítil­lega í fyrstu við­skiptum eftir 2,2% hækkun í gær. Evrópsk ríkis­skulda­bréf styrktust einnig og ávöxtunar­krafa tíu ára þýskra ríkis­skulda­bréfa lækkaði lítil­lega. Í Asíu hækkaði Nikkei 225-vísi­talan í Japan mest og rauk upp um tæp 6%. Fram­virkir samningar bentu til lítils­háttar hækkunar á S&P 500 við opnun markaða í Bandaríkjunum.

Share this article