Bílstjóri rútu sem valt á Snæfellsnesi í október hefur verið ákærður vegna lögbrota í tengslum við þá ökuferð. Lögreglan á Vesturlandi ákærði manninn fyrir að aka rútu í atvinnuskyni án meiraprófs og fyrir að stunda ferðaþjónustu án þess að hafa til þess leyfi. 42 erlendir ferðamenn voru í rútu sem fór út af veginum í Seljafirði á Snæfellsnesi að kvöldi 6. október. Hún valt og hafnaði á hvolfi. Enginn slasaðist alvarlega. Ásmundur Kristinn Ásmundsson yfirlögregluþjónn sagði þá að betur hefði farið en á horfðist. Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík og nokkrir voru sendir þangað með sjúkrabíl. Bílstjórinn reyndist vera erlendur ríkisborgari sem býr ekki hér á landi og hafði hvorki meirapróf til að keyra rútuna né rekstrarleyfi til að stunda farþegaflutninga í atvinnuskyni hér á landi. Lögregla segir að hann hafi þó ekið með farþega gegn gjaldi daginn í október þegar rútan endaði utan vegar. Ákæran á hendur manninum var birt í Lögbirtingablaðinu í dag. Það þýðir að ekki hefur tekist að birta honum hana í persónu. Maðurinn er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Ef hann mætir ekki má hann búast við að fjarvera hans verði túlkuð sem játning og hann dæmdur eftir því.
This article describes a physical security and compliance incident, not a software vulnerability. A bus driver without the required commercial driver's license or operating permit transported 42 tourists, resulting in a rollover accident. The threat stems from unauthorized personnel operating critical transportation infrastructure, bypassing regulatory controls designed to ensure safety. No technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patch, or workaround is provided in the source material.