Innlent | mbl | 7.5.2026 | 14:33 Ameríkanar óttast að vera ekki velkomnir Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Fæstir fatta hvað þetta verður stórt Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið 65% aukning frá 2019 í golfinu Skelfileg staða og engar aðgerðir » Fleiri tengdar fréttir „Við erum að sjá alveg prýðistölfræði fyrir sumarið hjá okkur. Bandaríkjamarkaður er merkilegt nokk upp frá því í fyrra. Bara í okkar bókum yfir tuttugu prósent upp frá því í fyrra. Ég var í Bandaríkjunum og Mexíkó, bara fyrir tíu dögum síðan með Íslandsstofu í söluferð og það er svolítið skringilegt að upplifa það í Bandaríkjunum að núna þarf maður eiginlega að taka utan um þá og segja þið eruð alveg velkomnir til Íslands, sem ferðamenn. Þeir eru margir farnir að hafa áhyggjur af því að Ameríkanar séu ekki velkomnir sem ferðamenn, út af dottlu,“ upplýsir Stefán Gunnarsson, forstjóri GJ Travel í Dagmálum í dag. Pössum okkur á að ræða ekki stjórnmál Það sem meira er segir Stefán að eitt af því sem hann hefur forðast eins og heitan eldinn í slíkum erindagjörðum til Bandaríkjanna er að ræða stjórnmál þar í landi. Nú var þessu öðruvísi farið. „Þeir eru litlir í sér og það er farið að læðast inn í sálartetrið á þeim að þeir séu bara ekki velkomnir sem ferðamenn út af því hvernig þeirra æðsti foringi er að haga sér á alþjóðavísu.“ Þarna er Stefán að vísa í framgöngu Bandaríkjaforseta, Donalds Trump. Sá hefur farið mikinn eins og fréttamiðlar hafa greint frá. „Ég hef aldrei upplifað það áður. Við höfum alltaf passað okkur á því að snerta ekki á amerískum stjórnmálum. Bara eins og með heita kartöflu. Núna byrjuðu þessir ferðaheildsalar sem ég var að ræða við, að ræða um stjórnmál við mig af fyrra bragði. Þeir voru að spyrja um hvað okkur finnst um stjórnmál og hvernig Donald Trump er að haga sér. Vilja fá okkar skoðun á því. Þetta er alveg nýtt fyrir mér. Þetta hefur verið heitasta kartaflan og maður hefur ekkert komið nálægt þessu,“ greinir hann frá. En þegar hann talar um 20% á Bandaríkjamarkaði, telur hann að þeir séu loftvog heilt yfir markaðinn? „Já. Ég myndi telja það. Ameríski markaðurinn hjá okkur er langmikilvægasti markaður okkar á undan Bretlandi,“ svarar hann. Bandaríkjamenn eru um og yfir 30% af veltu hjá fyrirtækinu. Ragnhildur Ágústsdóttir tekur undir þetta og í hennar fyrirtæki, sem er Lavashow eru Bandaríkjamenn stærsti hópurinn. Hún bendir á þá athyglisverðu staðreynd að þessir tveir markaðir séu með öfugar kúrfur. Bandaríkjamenn séu líklegastir til að koma til Íslands yfir sumartímann en Bretar eru líklegri til að koma yfir veturinn og þá eru norðurljósin mikið aðdráttarafl. Nú eru hins vegar blikur á lofti. Halda framhjá með Noregi „Þeir hafa aðeins verið að hlaupa til Noregs,“ segir Stefán um Bretana. „Þeir eru svolítið að halda framhjá okkur með Noregi. Noregur er búinn að setja alveg gríðarlegt fjármagn í landkynningu. Og eru að selja sig sem flottasti norðurljósaáfangastaður í heimi.“ Hann segir að ef menn slái inn í leitarvélar orðið norðurljós og spyrji hvert þeir eigi að fara þá undantekningalaust kemur upp svarið Tromsö í Norður Noregi. „Svo er norska krónan alveg niður í kjallara þannig að Noregur er allt í einu bara orðinn á þokkalega viðráðanlegu verði, sem var alltaf eitt dýrasta land í heimi,“ bætir Stefán við. Ragnhildur bendir á vöxt í kínverskum ferðamönnum og áform um að hefja beint flug frá Kína til Íslands. Þar sé áhugaverður möguleiki. Hún kannast við sókn Norðmanna á þessum markaði. „Núna með þessari auknu sókn Breta til Noregs þá höfum við aðeins kannski ekki verið að ná eins góðum árangri. Ég veit að sumarið lítur vel út en það eru margir svona aðeins stressaðir fyrir næsta vetri.“ Stefán bendir á að það sé töluverð gerjun á þessum markaði. Hann nefnir sem dæmi að bókunarfyrirvari sé mikið að breytast og hefur hann styst töluvert. „Þess vegna er ég ekki með svo mikið magasár yfir haustinu eða næsta vetri út af því að við erum að sjá þetta gerast núna. Við erum að fá fyrirspurnir núna oft með þriggja fjögurra mánaða fyrirvara. Kannski sérhópur sem ætlar að koma hérna þrjátíu til fjörutíu manns í vikuferð. Fyrir ekkert löngu síðan hefði þessi fyrirvari verið eitt og hálft ár,“ segir Stefán. Viðtalið við þau Ragnhildi Ágústsdóttur og Stefán Gunnarsson geta áskrifendur Morgunblaðsins horft á í heild sinni með því að smella á linkinn hér að neðan. Gott útlit í sumar en óvissa í vetur Tengdar fréttir Dagmál Fæstir fatta hvað þetta verður stórt Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið 65% aukning frá 2019 í golfinu Skelfileg staða og engar aðgerðir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » 41,4 milljónum króna úthlutað „Ég fyllti ísskápinn af salati eftir hjólreiðaferð um Ítalíu“ Tæpur fyrir stóru stundina X26: Þrekvirki unnið á kjörtímabilinu Ameríkanar óttast að vera ekki velkomnir Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Höfnum vinstristjórn í Hafnarfirði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Íslenski skálinn opnaður: „Ég er pínu meyr“ Boðar aukið samstarf við atvinnurekendur Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Stakk dóttur sína í hjartað Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi ESB upplýst en þjóðin ekki Ráðuneytið hafi vísvitandi málað ranga mynd 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Fresta áformum um frían Strætó fyrir reykvísk börn Fór strax að ræða aðildarviðræður Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“ Nýjast á mbl.is » 41,4 milljónum króna úthlutað „Ég fyllti ísskápinn af salati eftir hjólreiðaferð um Ítalíu“ Tæpur fyrir stóru stundina X26: Þrekvirki unnið á kjörtímabilinu Ameríkanar óttast að vera ekki velkomnir Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Höfnum vinstristjórn í Hafnarfirði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveiran er ekki eins og Covid Fór strax að ræða aðildarviðræður Boðar aukið samstarf við atvinnurekendur Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Stakk dóttur sína í hjartað Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi ESB upplýst en þjóðin ekki Ráðuneytið hafi vísvitandi málað ranga mynd 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Fresta áformum um frían Strætó fyrir reykvísk börn Fór strax að ræða aðildarviðræður Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“
This article is not a technical security vulnerability disclosure; it is a news report discussing concerns among American tourists about potential unwelcome sentiment in Iceland due to international political perceptions. No technical vulnerability, attack vector, CVSS score, affected software versions, patches, or workarounds are described.