Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mugison trallar og fleira gott í Undiröldunni

This article does not describe a security vulnerability or threat; it is a music review summarizing new Icelandic song releases and performances from a radio program. Therefore, no technical security details such as attack vectors, CVSS scores, affected versions, patches, or workarounds are present or applicable.
Read Full Article →

Mugison – Kúrekinn (ég trúi á lygina) Örn Elías Guðmundsson, sennilega betur þekktur sem Mugison, sendi í lok apríl frá sér lagið Kúrekinn (ég trúi á lygina). Hann hefur lengi langað til að gera fyndið og skemmtilegt lag eða svona alvöru trallara og er nú að láta drauminn rætast. Innblástur sækir hann í Ladda, Björgvin og Spilverk þjóðanna og vonar það besta. Aldís Fjóla – Rauðarok Rauðarok er lag eftir Halldór Sveinsson með texta eftir Aldísi Fjólu og er þriðja lag af væntanlegri plötu þeirra. Textinn fjallar um að standa af sér þá storma sem koma upp og halda áfram. Um upptöku sá Stefán Örn Gunnlaugsson í Stúdíó Bambus og Sigurdór Guðmundsson hjá Skonrokk Studios hljómjafnaði. Auðunn Lúthersson – Californian! Danger! Woman! Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson er enn búsettur í Bandaríkjunum og er að aðlagast hratt ef marka má nýtt lag hans Californian! Danger! Woman! Eins og oftast undanfarið semur hann lag og texta auk þess að leika á öll hljóðfæri, syngja, hljóðrita og fullvinna upptöku. Undiraldan fimmtudaginn 7. maí Það var kátt á hjalla í Undiröldum vikunnar þar sem boðið var upp á rammíslenskan dómsdagsdjass og framandi tóna í bland við hefðbundnara popp úr ýmsum áttum. Róshildur ásamt Iðunni Einars – Samferða Samferða er titillagið á fyrstu breiðskífu Róshildar en í laginu er líka tónlistarkonann Iðunn Einarsdóttir. Um það segir Róshildur: „Lagið er samtal við manneskju sem gengur við hlið þér í gegnum þykka þoku, í leit að ljósgeislum, og fjallar um það hvernig við vinkonurnar skiptumst á að leiða veginn í gegnum ákvarðanir og prófraunir lífsins.“ Wally The Kid – Anthem of a over thinker Wally the kid hefur sent frá sér lagið Anthem of a Over Thinker. Valur Freyr semur lagið og er rapparinn Wally the kid en framleiðandinn Dögg, eða Ólafur Ingólfsson, sér um hljóð og lagasmíðar. Laginu lýsa þeir sem hipphoppi með smá slettu af gríni. Jóhannes Stefán – Sunday Morning Fairytale Nýjasta lagið frá Jóhannesi Stefáni Ólafssyni er Sunday Morning Fairytale, sem lendir á Spotify á morgun föstudag. Lagið vill hann meina að sé hugljúf píanóballaða í flutning sínum, Guðrúnar Bjarnadóttur, Unnar Jónsdóttur og Eðvarðs Egilsson. Ragnarök Trio – A Slippery Slope Hljómsveitin Ragnarök Trio er skipuð Þorkatli Ragnari Grétarssyni á rafgítar, Jens Meijer á trommur og Jesse Schilderink á tenórsaxafón. Sveitin spilar dómsdagsdjass og er með plötuna Doomsday Jazz Up Your Ass! í smíðum. Á henni er að finna lagið A Slippery Slope. Undiraldan þriðjudaginn 5. maí Það var kátt á hjalla í Undiröldum vikunnar þar sem boðið var upp á rammíslenskan dómsdagsdjass og framandi tóna í bland við hefðbundnara popp úr ýmsum áttum. Þormóður x GDRN – Manstu Í lok mars sendi ofurframleiðandinn Þormóður frá sér plötuna Meira með gestainnkomum helstu rappara landsins en söngkonan GDRN er líka mætt og hún syngur lagið Manstu. Ari Árelíus – doG Dog birtist við fyrstu hlustun sem létt og leikandi lag en undir yfirborðinu kraumar eitthvað óræðara, segir indie-popparinn Ari Árelíus og bætir við: „Stemning lagsins sveiflast á milli hlýju og fjarlægðar, þar sem húmor og mýkt blandast við undirliggjandi óvissu.“ Náttsól – Flýttu þér hægt Hljómsveitin Náttsól hefur sent frá sér lagið Flýttu þér hægt eftir Guðrúnu Ólafsdóttur og Hrafnhildi Magneu Ingólfsdóttur. Sveitina skipa Raven (Hrafnhildur Magnea) sem syngur og raddar eins og Rún (Guðrún), Hafsteinn Þráinsson spilar á gítar, trommur og hljóðgervil auk þess að forrita og búa til takta og Ari Bragi Kárason spilar á trompet Blood Harmony – War Cry War Cry er áttunda lag úr smiðju systkinahljómsveitarinnar Blood Harmony en hana skipa Örn, Ösp og Björk Eldjárn. Lag og texti er eftir Örn. Með þeim leika Jón Rafnsson á kontrabassa, Hildur Ársælsdóttir og María Huld Markan Sigfúsdóttir á fiðlu, Edda Rún Ólafsdóttir á víólu, Sólrún Sumarliðadóttir á selló, Vignir Þór Pálsson á fimm strengja banjó og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Sunny – Lífið inní mér Sunna Kristinsdóttir, eða Sunny, byrjaði að semja lagið Lífið inní mér þegar gekk með dóttur sína og var í tónlistarnámi. Hún kláraði lagið eftir að dóttirin fæddist og gaf það út 28. apríl, á eins árs afmælisdegi barnsins, því lagið er jú, um dóttur hennar. Sakaris – Eg Angri Einki Eg Angri Einki þýðir á íslensku Ég sé ekki eftir neinu og er nafn á lagi eftir færeyska tónlistarmanninn Sakaris. Lagið fangar ungdóminn og allt það heimskulega sem maður gerir í æsku. Þetta er lag sem upphefur djamm, þynnku, vitleysu, vini og samfélag og er mjög gott til að hlusta á þegar maður hefur gert eitthvað heimskulegt, segir Sakaris. Fræbbblarnir – Nóg (er meira en nóg)! Nú eru Fræbbblarnir búnir að fá nóg og það er svo sannarlega ekki í fyrsta skipti og líklega ekki í síðasta heldur. Lagið er tekið af næstu plötu Fræbbblanna sem eru Guðmundur Þór Gunnarsson á trommur, Helgi Briem á bassa, Arnór Snorrason sem spilar á gítar og syngur, Ríkharður H. Friðriksson á gítar, Valgarður Guðjónsson söngur og gítar og síðasti söngvarinn er Iðunn Magnúsdóttir. Undiraldan lagalisti

Share this article