- What: The article discusses new Icelandic music releases and events.
- Impact: Provides information on the Icelandic music scene.
Gyða Valtýsdóttir - White Noise White Noise er nýjasta lag Gyðu Valtýsdóttur af plötunni Mother Pearl sem kemur út upp úr miðjum mars. Um lagið segir Gyða: „Lagið var samið í húsi sem stendur á kletti við hafið. Þykk þoka byrgði sýn en opnaði leið inn á við, í þögnina og óendanlega möguleika sköpunarinnar, inn í hvíta litinn sem geymir allt litrófið líkt og hvítt hljóð hefur að geyma gervallt tíðnisvið heyranlegs hljóðs." arfi - Modern days Arfi er þýsk-íslenskt tríó sem gerir tilraunakennda blöndu rafrænnar og lífrænnar popptónlistar. Það eru þau K.óla, Stefan Vidal-Schneider og Tobias Link úr EAT THE FROG Kollektiv sem kynntust á spunatónlistar-vinnusmiðju í danska smábænum Fredericia í ágúst 2023. Þrátt fyrir ólíkan tónlistarbakgrunn uppgötvuðu þau sameiginlegan áhuga á melódísku poppi og spunatónlist, sem þróaðist fljótt í vináttu og skapandi samstarf. Undiraldan fimmtudaginn 19. febrúar Það eru feitir bitar í boði þessa vikuna í Undiröldunni: ný íslensk tónlist frá Bríeti og KK, Gyðu Valtýsdóttur, Hamparat, Memfismafíunni og fleirum. Hamparat - Konami (live) Hljómsveitirnar HAM og Apparat Organ Quartet troðfylltu Eldborg í fyrra undir samheitinu HAMPARAT við mikinn fögnuð. Nú á að endurtaka leikinn og í tilefni af því sendu þeir frá sér lagið Konami í lifandi útgáfu. Amor Vincit Omnia, Cyber - Arena Lagið Arena sem að sögn Cyber-kvenna endurspeglar angist unglingsáranna kom út árið 2024 á plötunni SAD. Nú hefur lagið verið endurútgefið í nýrri útgáfu sem er gerð af Amor Vincit Omnia. Spouses - Choke Lagið Choke kemur frá Spouses sem er lagasmíðaverkefni tónlistarmannsins, hljóðmannsins og ljósmyndarans Joel Durksen, sem býr á Íslandi. Hann er flakkari bæði í listsköpun og lífi; fæddur í Kanada, ólst upp í Karíbahafi og lærði listina á tónlistarsenunni í Liverpool í Bretlandi. Hafaldan - Púsl Hálfdán Aron Hilmarsson eða Hafaldan er tónlistarmaður sem skorar á sig að semja tónlist sem grípur hlustandann við fyrstu spilun. Hann keppti í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2025 og gaf út EP plötuna Reflection sama ár. Nýjasta lag hans er Púsl þar sem hann sér sig stíga inn í heim íslenskar danstónlistar á eigin forsendum. Saktmóðigur - Ég skynja því er ég Saktmóðigur er hljómsveit sem kennir sig við pönk og er ein elsta starfandi hljómsveit landsins. Hún var stofnuð 1991 og hefur verið starfandi óslitið síðan. Hljómsveitin sendi frá sér plötuna Seljum sannleikann 15. janúar þar sem þeir leitast enn við að vera utangarðskleprar í rasshárum alls þess sem er hip og kúl á Íslandi. Undiraldan þriðjudaginn 17. febrúar Það eru feitir bitar í boði þessa vikuna í Undiröldunni: ný íslensk tónlist frá Bríeti og KK, Gyðu Valtýsdóttur, Hamparat, Memfismafíunni og fleirum. Bríet, KK - Gleymérei Síðasta föstudag sendi Bríet frá sér lagið Gleymérei sem hún samdi fyrir KK með Lárusi Erni Arnarsyni. Lagið sem er folk-ballaða varð til í Boðhlaupi söngvaskálda í Hörpu í fyrrahaust og um undirleik sjá Bríet, KK og Daníel Friðrik Böðvarsson. Memfismafían - Syngdu Syngdu er nýtt lag frá Memfismafíunni og það fyrsta sem heyrist af væntanlegri plötu með sveitinni og er eftir Braga Valdimar. Sigurður Guðmundsson syngur og spilar á alls konar og honum til aðstoðar eru Eyþór Gunnarsson á píanó, Kristinn Snær Agnarsson á trommur. Rubin Pollock og Daníel Friðrik Böðvarsson á gítara og Nathaniel Smith á knéfiðlu. Guðmundur Pálsson syngur svo með í laginu sem Kiddi Hjálmur tekur upp og hljóðblandar. Ellertsson - Night Riders Night Riders er eyðimerkur-ballaða frá Ellertsson með dökkum, kvikmyndalegum blæ, rólegt en spennuþrungið lag með ryki, ljósum og löngum skuggum. Hljóðheimurinn sækir í klassíska Ghost Riders-tilfinningu og er innblásinn af Ennio Morricone. Það er Hlöðver Ellertsson sem á lag og texta en Siguður Sigurðsson hljóðritaði og hljóðblandaði. Latínudeildin - Í hangsinu Latínudeildin hefur sent frá sér lagið Í hangsinu eftir þá Anton Helga Jónsson og Ingva Þór Kormáksson. Það er Böddi frá Íslandi sem syngur ásamt Kristinu Bærendsen frá Færeyjum, Valdimar Olgeirsson plokkar bassa, Karl Pétur Smith lemur trommur, Jóhannes Guðjónsson leikur á píanó og Birgir Jóhann Birgisson hljóðblandaði og sá um frágang hljóðrits. Jaðrakan - The Waves Lagið The Waves er nýtt lag og ljóð frá tónlistarmanninum Óla Jóni Jónssyni sem kallar sig Jaðrakan. Hann segir þetta popplag undir áhrifum frá bandarískri sveitatónlist en fyrir tveimur árum sendi Jaðrakan frá sér lagið End of Civilisatio sem fékk töluverða spilun í útvarpi og á Spotify. Kingkiller - Purple and Red Hljómsveitin Kingkiller hefur sent frá sér lagið Purple and Red en meðlimir hennar eru; Ásmundur Jóhannsson trommari, Ágúst Þór Benediktsson bassaleikari, Símon Vestarr söngvari og gítarleikari. Roland Hartwell útsetti strengi og upptökustjóri var Ásmundur Jóhannsson. Undiraldan lagalisti