- What: A cyber attack disrupted Canvas service used by Háskóli Íslands.
- Impact: Students and teachers at the university were affected.
Innlent | mbl | 8.5.2026 | 12:32 „Mjög streituvaldandi og vond tilfinning“ Háskóli Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Tengdar fréttir Netárásir Interpol rannsakar árásina á Grund Beðinn um að hakka Instagram-reikning fyrrverandi „Ódýrara að greiða fundarlaun en lausnargjald“ Persónugögn hótelgesta seld á svörtum markaði Eitt lykilorð kostaði 700 manns vinnuna » Fleiri tengdar fréttir Ekki er hægt að útiloka að önnur netárás verði gerð á Canvas-þjónustuna sem Háskóli Íslands nýtir sér. Háskólinn stendur þó betur að vígi en margir aðrir skólar víðs vegar um heiminn sem nýta sér þjónustuna. Netárás var gerð á Canvas-þjónustuna upp úr klukkan 21 í gærkvöldi, að íslenskum tíma, og lá þjónustan niðri í nokkra klukkutíma. Ráðist var einnig inn í kerfið fyrr í vikunni. Frétt af mbl.is Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif HÍ í betri stöðu en margir aðrir skólar Í samtali við mbl.is segir Margrét Sigrún Sigurðardóttir, sviðsstjóri kennslusviðs HÍ, að nærri helmingur allra háskóla í heiminum eða hátt í 9.000 háskólar nýti sér þjónustuna. Þá sé HÍ að mörgu leyti í betri stöðu en margir aðrir skólar þar sem nemendakerfi skólans sé ekki beintengt við Canvas-þjónustuna. Í staðinn sé HÍ með upplýsingar um nemendur á borð við kennitölur og lokaeinkunnir í öðru kerfi. „Einu persónugreinanlegu upplýsingarnar sem Canvas er með [frá HÍ] eru netföng.“ Frétt af mbl.is Upplýsingum um nemendur mögulega lekið „Streituvaldandi og vond tilfinning“ Nemendur við háskólann eru nú í miðri prófatörn og kemur því netárásin á versta tíma. Aðspurð segist Margrét hafa heyrt dæmi um nemanda sem var að lesa undir próf þegar Canvas fór niður. „Það er náttúrulega bara mjög streituvaldandi og vond tilfinning og við finnum mikið til með þeim nemendum sem lentu í þeirri stöðu,“ segir Margrét en bætir við að vefurinn sé nú kominn aftur í loftið og að upplýsingar hafi verið sendar á nemendur sem og kennara um hvernig hægt sé að sækja efni á Canvas þannig að hægt sé að hafa aðgang að því án nettengingar. Þannig væri enn hægt að nálgast efnið skyldi svo fara að önnur netárás yrði gerð. „Við erum búin að gera það sem í okkar valdi stendur til þess að tryggja að misserið klárist á sem farsælastan hátt,“ segir Margrét. Aðspurð segir hún enga ákvörðun hafa verið tekna um að fresta prófum. Mikilvægt að vera undirbúinn fyrir aðra árás Hún bætir við að tölvuþrjótarnir sem gerðu árásina hafi tilkynnt að þeir sem urðu fyrir árásinni hafi til 12. maí til þess að komast að samkomulagi um greiðslu áður en upplýsingum verði lekið. Því sé ekki hægt að útiloka aðra árás. „Við stýrum þessum vef ekki, því miður. Við höfum enga stjórn á honum og verðum bara að gera ráðstafanir til þess að vera undirbúin ef hann fer niður aftur.“ Að lokum segir Margrét skólann hafa fengið skilaboð frá þjónustuaðila Canvas, Instructure, um að búið sé að leggja niður þann hluta af kerfinu sem tölvuþrjótarnir komust í gegnum. „Vonandi heldur það.“ Tengdar fréttir Netárásir Interpol rannsakar árásina á Grund Beðinn um að hakka Instagram-reikning fyrrverandi „Ódýrara að greiða fundarlaun en lausnargjald“ Persónugögn hótelgesta seld á svörtum markaði Eitt lykilorð kostaði 700 manns vinnuna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Miðar á HM of dýrir fyrir Trump Jón Elvar ráðinn framkvæmdastjóri LOGOS Stjórn Kviku vill greiða 10 milljarða króna í arð „Mjög streituvaldandi og vond tilfinning“ „Líklegast er ég hættur“ Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Byggjum nýja sundlaug í Garðabæ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli 234 dómar fyrnst vegna skorts á plássi Forvitnaðist um greiðslu styrkja X26 - Borgarafundur Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum 85 þúsund fengu 250 milljarða Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Meira fjármagn myndi flýta Miklubrautargöngum Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Miðar á HM of dýrir fyrir Trump Jón Elvar ráðinn framkvæmdastjóri LOGOS Stjórn Kviku vill greiða 10 milljarða króna í arð „Mjög streituvaldandi og vond tilfinning“ „Líklegast er ég hættur“ Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Byggjum nýja sundlaug í Garðabæ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert X26 - Borgarafundur Akureyri Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Yfir 3.000 árásir gerðar á heilbrigðiskerfið Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum 85 þúsund fengu 250 milljarða Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Meira fjármagn myndi flýta Miklubrautargöngum Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka