Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hlynur hjó nálægt Íslandsmetinu í maraþoni

Read Full Article →

Hlyni Andréssyni tókst ekki að slá eigið Íslandsmet í maraþonhlaupi þrátt fyrir góða tilraun þegar hann kom í mark í Kaupmannahafnarmaraþoninu á 2:15:30. Íslandsmetið sem hann setti í Dresden í Þýskalandi fyrir fimm árum og er 2:13:37 stendur því enn. Aðstæður í Kaupmannahöfn voru góðar í dag, brautin flöt, veður milt og vindurinn varla hreyfðist. Hlynur hljóp frekar jafnt lengst af því hann fór fyrstu 5 km á 15:35 mín, næstu fimm á 15:36 og hélt þeim hraða rúmlega hálft hlaupið þegar hann missti hraðann aðeins niður. Síðustu kílómetrarnir voru því erfiðir fyrir Hlyn sem kom engu að síður í mark á frábærum tíma, þó hann hafi ekki dugað til að slá Íslandsmetið sem hann hafði einsett sér að bæta í dag.

Share this article