Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 9 mínútumÍÞRÓTTIR Frjálsar Hlynur bætti eigið Íslandsmet í hálfmaraþoni Hans Steinar Bjarnason Hlynur Andrésson bætti í dag eigið íslandsmet í hálfu maraþoni utanhúss í móti í Gent í Belgíu. Hlynur hljóp hálfmaraþonið á 1:02:30 klst. og bætti fyrra met frá árinu 2020 um 17 sekúndur. Hlynur Andrésson. RÚV / Mummi Lú Hlynur er ríkjandi Íslandsmethafi í sex vegalengdum utanhúss, 3.000, 5.000 og 10.000 metra hlaupum, 10 km götuhlaupi, hálfmaraþoni og 3.000 metra hindrunarhlaupi. Fyrir 32 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Innviðaráðherra áhyggjufullur og fundar með forstjóra Icelandair Um tuttugu prósenta lækkun hlutabréfa í Icelandair, það sem af er ári, er áhyggjuefni að mati innviðaráðherra. Hann segir það þjóðaröryggismál að halda íslensku eignarhaldi á félaginu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Nauðsynlegt að bregast við óvissu um framtíð Kristnesspítala Óvissa ríkir um framtíð starfsemi Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit vegna viðhalds- og innviðavanda. Spítalinn er hluti af starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri. Sveitarstjórn segist reiðubúin að leita lausna í samráði við ríkið. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið ESB vill ekki Ungverjaland 2.0 Evrópusambandið veltir nú upp hvernig koma megi í veg fyrir að ný aðildarríki fari á skjön við gildi sambandsins eftir að þau komast inn. Spor Ungverjalands hræða. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Ólympíumót fatlaðra 51 árs varði ólympíugullið í snjóbrettaati 51 árs kona frá Frakklandi vann í dag gullverðlaun í snjóbrettaati á Vetrarólympíumóti fatlaðra. Þetta voru fimmtu ólympíumótsverðlaun Cécile Hernandez frá upphafi en hún hætti hjólreiðaiðkun árið 2002 þegar hún lamaðist af völdum MS-sjúkdómsins. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Vara við „krókódílum alls staðar“ í kjölfar flóða Rúmlega 1.000 manns hafa verið flutt frá heimilum sínum á Norðursvæði Ástralíu í kjölfar mikilla flóða. Yfirvöld brýndu fyrir íbúum að fara alls ekki ofan í vatnið því þar gætu leynst krókódílar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Telja nauðsynlegt að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna á ný Formaður Heyrnarhjálpar og forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands segja nauðsynlegt að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna á ný. Hægt sé þannig að grípa fyrr inn hjá börnum sem mögulega bíða eftir annarri greiningu. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Jafnrétti Kynjamisrétti stærsta mannréttindaáskorun samtímans Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir kynjamisrétti stærstu mannréttindaáskorun samtímans. Hann tilgreinir átta aðgerðir sem hann telur nauðsynlegar í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna í dag, 8. mars. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kristinn nýr oddviti á Seltjarnarnesi Andri Yrkill Valsson Kristinn Ólafsson ráðgjafi er nýr oddviti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi. Sigurþóra Bergsdóttir varaþingmaður er í öðru sæti og Helgi Steinar Helgason arkitekt í þriðja. Auður Halla Rögnvaldsdóttir skipar fjórða sætið og Egill Ö. Hermannsson það fimmta. Listinn var kynntur í dag og í tilkynningu segir að markmiðið sé að taka á verkefnum af ábyrgð, styrkja þjónustu við íbúa og byggja upp lifandi samfélag á Nesinu þar sem mannlíf, skólar og þjónusta standi undir væntingum bæjarbúa. Efstu fimm á lista framboðsins. Ljósmynd / Aðsend Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Leikdagur: Stórt tap Íslands í Svartfjallalandi Ísland tapaði illa fyrir Svartfjallalandi, 33-24, í undankeppni EM kvenna í handbolta í kvöld. Staðan var jöfn í hálfleik, 13-13, eftir að Ísland hafði lent mest þremur mörkum undir. Svartfjallaland er stórveldi í handbolta kvenna og því þótti það til stórtíðinda að liðið tapaði fyrir Íslandi í fyrri leiknum sl. miðvikudag á Ásvöllum, 28-27. Ísland er í botnsæti riðilsins en á ennþá góðan möguleika á að komast í lokakeppni EM 2026. Tvö efstu lið hvers riðils tryggja sig á EM auk fjögurra liða með besta árangur í þriðja sæti. Ísland á eftir að mæta Færeyjum ytra og Portúgal heima í apríl. Hér hituðum við upp fyrir leikinn í lifandi leikdagsvakt og fylgdumst með öllu því helsta. Hægt verður að horfa á beina útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan. SAMANTEKT Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Fjórir á sjúkrahús eftir árekstur á Vesturlandsvegi Tveir bílar rákust saman á Vesturlandsvegi eftir hádegi í dag. Fjórir voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Upplýsingar um líðan þeirra liggja ekki fyrir en lögreglan segir alla hafa verið með meðvitund á vettvangi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðarslyss við Laxárbakka Andri Yrkill Valsson Vesturlandsvegi var lokað á öðrum tímanum vegna umferðarslyss við Laxárbakka, Vogatungu í Leirársveit. Samkvæmt fyrstu tilkynningu Vegagerðarinnar var ekki búist við langri lokun en nú er ljóst að vegurinn verður lokaður að minnsta kosti til klukkan 14.30. „ Ekki er ráðlegt að aka vegi 504 og 502 , því þetta eru sveitarvegir sem eru ekki í vetrarþjónustu og einbreiðir á köflum,“ segir í tilkynningu á umferdin.is. Skjáskot / Vegagerðin. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Skoða möguleg viðbrögð vegna grásleppunnar Talsmaður landssambands grásleppuútgerða er afar ósáttur við afnám kvótasetningar á grásleppu. Sambandið sé að greina hvernig best sé að bregðast við. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur af hlutabréfamarkaðnum Lágt gengi hlutabréfa Icelandair er áhyggjuefni fyrir stöðuna á íslenskum hlutabréfamarkaði, segir hagfræðingur. Áhættufælnir fjárfestar eigi meirihluta markaðarins. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Eina leiðin er upp á við“ Nýr formaður VG segir mikilvægt að flokkurinn fylli tómarúm á vinstri væng íslenskra stjórnmála. Helsta verkefnið fram undan sé að undirbúa framboð til komandi sveitarstjórnarkosninga. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Russel sigraði í fyrsta kappakstri ársins eftir mistök hjá Ferrari Hans Steinar Bjarnason Fyrsta keppni nýs tímabils í Formúlu-1 kappakstrinum fór fram í Ástralíu í nótt. Breski ökuþórinn George Russell hjá Mercedes sigraði nokkuð örugglega en dýrkeypt mistök kostuðu Ferrari-manninn Charles Leclerc sigurinn. George Russell á verðlaunapallinum í Melbourne í dag. EPA / JOEL CARRETT Þeir Russell voru í harðri baráttu fyrstu tíu hringina en Ferrari-liðið ákvað að stoppa ekki þegar öryggisbíll þurfti að koma inn á braut. Mercedes-liðið nýtti tækifærið og skipti um dekk. Ferrari tók forystuna á meðan en missti hana þegar það ákvað svo loks að skipta um dekk og Mercedes-mennirnir Russel og Kimi Antonelli hirtu efstu tvö sætin. Heimsmeistarinn Lando Norris varð fimmti. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Ein tilgáta að sprengingin við sendiráðið hafi verið hryðjuverk Enginn er í haldi norsku lögreglunnar eftir sprengingu við bandaríska sendiráðið í Ósló í nótt. Eitt af því sem er til rannsóknar er hvort sprengingin tengist hryðjuverkum en fleiri tilgátur eru inni í myndinni. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Bjarki Hjörleifsson kjörinn varaformaður VG Hugrún Hannesdóttir Diego Bjarki Hjörleifsson. Aðsend / Vinstri hreyfingin – grænt framboð Bjarki Hjörleifsson var kjörinn varaformaður VG á landsfundi flokksins á Selfossi í dag. Hann fékk 99% atkvæða. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður. Fráfarandi formaður og varaformaður eru Svandís Svavarsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Þau gáfu hvorug kost á sér áfram. Bjarki er stjórnmálafræðingur og var aðstoðarmaður Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur þegar hún gegndi embætti matvælaráðherra. Þar á undan starfaði hann fyrir þingflokk VG. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Rósa Björk er nýr formaður Vinstri grænna Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin nýr formaður Vinstri grænna á landsfundi flokksins á Selfossi í dag. Svandís Svavarsdóttir gaf ekki kost á sér áfram. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Dauðum lunda skolar á land í þúsundatali Undanfarnar vikur hefur dauðan lunda rekið á land í þúsundatali á ströndum Evrópu. Fuglarnir drepast í stormum á hafi úti. Líffræðingur telur líkur á afföllum í íslenska varpstofninum. 8. mars 2026 kl. 9:05MENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Sá mannshönd fálma upp á gluggann Frækileg björgun á fimmta tugar hermanna á Eskifjarðarheiði 1942 fór ekki hátt. Það var ekki fyrr en einn þeirra sem kom að björguninni sagði breskum sjúkraþjálfara frá þrekvirkinu tæpum 40 árum síðar sem fréttin barst til breskra fjölmiðla. 8. mars 2026 kl. 8:35INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vara við þungri vetrarfærð Andri Yrkill Valsson Vegagerðin bendir vegfarendum á að vetrarfærð er á landinu mest öllu og að hún getur verið þung. Þrátt fyrir minni vind í dag en í gær, heldur áfram að snjóa drjúgt í éljum sem getur viðhaldið erfiðum akstursskilyrðum. Er fólk hvatt til að kynna sér skilyrðin vel fyrir ferðalög. Siglufjarðarvegur um Almenninga er lokaður eftir snjóflóð í gær, og ólíklegt að Dynjandisheiði á Vestfjörðum verði opnuð fyrr en á morgun. Vetrarfærð er á vegum víðast hvar. Aðsent / Pálmi Pétursson 8. mars 2026 kl. 8:12MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Skólakór Kársness í 50 ár: „Það eru bara allir sigurvegarar“ Hundruð núverandi og fyrrum kórfélaga í Skólakór Kársness komu fram á 50 ára afmælistónleikum í Salnum í Kópavogi. Margir tónlistarmenn hafa byrjað ferilinn í kórnum. 8. mars 2026 kl. 8:03INNLENDAR FRÉTTIR Veður Vaxandi vindur og éljagangur í dag Búast má við éljagangi víða um land í dag, fyrst á sunnanverðu landinu og svo áfram til norðausturs. Seint í kvöld dregur úr vindi en á morgun er von á nýrri lægð með vaxandi vindi, snjókomu eða slyddu. 8. mars 2026 kl. 8:00MENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Maður þarf að vera svolítið öruggur í sínu til að geta gert þetta“ Eva María hefur alltaf haft bein í nefinu sem nýtist henni vel í starfi. Þegar hún var fimmtán ára ákvað hún að flytja ein frá móður sinni á Í