Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hlynur á næstbesta tíma Íslendings í maraþoni: „Eins og að fá hníf í magann“

Read Full Article →

Hlyni Andréssyni tókst ekki að slá eigið Íslandsmet í maraþonhlaupi þrátt fyrir góða tilraun þegar hann kom í mark í Kaupmannahafnarmaraþoninu á 2:15:30. Íslandsmetið sem hann setti í Dresden í Þýskalandi fyrir fimm árum og er 2:13:37 stendur því enn. Aðstæður í Kaupmannahöfn voru góðar í dag, brautin flöt, veður milt og vindurinn varla hreyfðist. Hlynur hljóp frekar jafnt lengst af því hann fór fyrstu 5 km á 15:35 mín, næstu fimm á 15:36 og hélt þeim hraða rúmlega hálft hlaupið þegar hann missti hraðann aðeins niður. Síðustu kílómetrarnir voru því erfiðir fyrir Hlyn sem kom engu að síður í mark á frábærum tíma, þó hann hafi ekki dugað til að slá Íslandsmetið sem hann hafði einsett sér að bæta í dag. Hætti að hugsa um tímann þegar hann fékk í magann „Þetta er súrsætt. Ég var á góðu tempói alveg þar til það voru svona 6-7 kílómetrar eftir. Ég hef verið í einhverju basli með magann eftir svona 30 kílómetra og þarf að finna út úr því hvað það er sem gerist. En það er eins og ég fái hníf inn í magann þegar það voru svona 20-30 mínútur eftir. Þá hætti ég bara að hugsa um tímann og vildi bara koma mér í mark,“ sagði Hlynur eftir hlaupið í dag. Hlynur Andrésson var nálægt því að slá Íslandsmet sitt í maraþonhlaupi þegar hann kom í mark á 2:15:30 í Kaupmannahafnarmaraþoninu í dag. Hann var tæpum tveimur mínútum frá meti sínu frá 2021. Það er þó ákveðinn sigur að Hlynur hafi klárað hlaupið í dag því magavesenið hefur komið í veg fyrir að hann klári öll maraþonhlaup. „Já, það kom ekkert annað til greina en að ég kláraði hlaupið í dag,“ sagði Hlynur. Formið nógu gott til að slá Íslandsmetið „Formið er nógu gott til að slá þetta Íslandsmet. En ég þarf bara að finna út úr þessu með magann í mér fyrir næsta skipti,“ sagði Hlynur sem bíður fram á miðvikudag með að ákveða næstu skref. „Á miðvikudaginn kemur út nýr listi yfir stöðu á Evrópulista og ég þarf að sjá hvar þessi árangur skilar mér. Ef þetta kemur mér inn á Evrópumótið í frjálsíþróttum í Birmingham í ágúst yrði það frábært. En ef ekki þá verð ég bara að finna mér eitthvað maraþon sennilega í haust,“ sagði Hlynur en nánar er rætt við hann í viðtalinu hér fyrir ofan.

Share this article