Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ráðherrann sáttur við Urriðafoss í bið

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.2.2026 | 8:37 Ráðherrann sáttur við Urriðafoss í bið Lagt er til að virkjunin verði sett í biðflokk rammaáætlunar. mbl.is/Sigurður Bogi „Rammaáætlunarfyrirkomulagið gerir ráð fyrir því að það geti orðið breytingar í þinglegri meðferð og það sem gerist núna með þennan rammaáætlunarpakka er að ég bregð frá tillögu verkefnisstjórnar og legg til að Kjalölduveita og Héraðsvötn fari ekki í verndarflokk, en þess í stað í biðflokk,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í samtali við Morgunblaðið. „Nefndin lagði síðan til að Urriðafoss færi í biðflokk í stað nýtingarflokks, einkum á þeim forsendum að sá virkjunarkostur er aftastur í röð virkjunarkosta í Þjórsá,“ segir Jóhann Páll. Viðbragða hans var leitað við þeirri tillögu umhverfis- og samgöngunefndar sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær, að færa virkjunarkostinn Urriðafoss í Þjórsá úr nýtingarflokki í biðflokk og ganga þar með gegn tillögu ráðherrans um að Urriðafoss yrði í nýtingarflokki. Jóhann Páll bendir á að nú séu í gangi framkvæmdir við Hvammsvirkjun en síðan fari Holtavirkjun í nýtingarflokk. Báðir kostirnir eru í Þjórsá og er Holtavirkjun neðar í ánni. Urriðafoss er aftur á móti neðstur kostanna þriggja. „Málið var metið þannig að hægt væri að fara í frekari rannsóknir án þess að þær yllu töfum á framkvæmdum. Það var ágætlega rökstutt hjá meirihluta nefndarinnar,“ segir Jóhann Páll og nefnir að á yfirstandandi þingi séu til meðferðar lagabreytingar sem liðka eigi fyrir rannsóknum á þeim virkjunarkostum sem eru í biðflokki rammaáætlunar. Hann segist ekki líta á það sem pólitískt áfall fyrir sig að nefndin skuli hafa gengið gegn tillögu hans varðandi Urriðafoss, enda gert í góðu samráði við hann sem og sveitarfélagið sem veita mun framkvæmdaleyfi. „Það er alvanalegt að svona gerist. Á síðasta kjörtímabili gerðist það sama með Urriðafoss. Ráðherra lagði til að hann færi í verndarflokk en meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar, þar á meðal þingmenn Sjálfstæðisflokksins, lögðu til að Urriðafoss færi í biðflokk í staðinn. Tal um fordæmalausar vendingar eru því ekki réttar,“ segir Jóhann Páll. „Nú erum við að taka virkjunarkosti sem ráðherra lagði til á síðasta kjörtímabili að færu í nýtingarflokk en þingið í bið og flytja þá í nýtingarflokk. Þetta eru Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun, sem eru framarlega í áætlun Landsvirkjunar og skiptir gríðarlegu máli að koma í farveg,“ segir hann. „Það er mjög jákvætt að umhverfis- og samgöngunefnd taki tillit til þeirra augljósu sjónarmiða að setja Urriðafoss í biðflokk á þessum tímapunkti, þegar við vitum ekki hvernig seiðafleyta Hvammsvirkjunar mun virka. Annað væri ígildi ákvörðunar um að leggja laxastofn Þjórsár af, ef seiðafleytan mun ekki virka þegar þar að kemur,“ segir Haraldur Þór Jónsson, formaður Veiðifélags Þjórsár, en hann er jafnframt oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, þegar viðbragða hans var leitað vegna málsins. Hann segir það rétta ákvörðun að staldra við með Urriðafoss. Misjafn árangur hafi verið af seiðafleytum í Bandaríkjunum og ekki hægt að fullyrða neitt um hversu vel eða illa slíkar fleytur muni virka í Þjórsá. „En það er augljóst að ef reynslan af seiðafleytu í Hvammsvirkjun verður góð verður ekkert því til fyrirstöðu að virkja Urriðafoss. Þá myndu menn taka réttmæta ákvörðun á réttum forsendum. En ef seiðafleytan í Hvammsvirkjun mun virka illa eða ekki held ég að Urriðafoss verði aldrei virkjaður. Síðan má ekki gleyma því að það er óvirkjað vatnsafl á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu sem er ígildi Kárahnjúkavirkjunar, hátt í 700 megavött, og Urriðafoss er bara 20% af því,“ segir Haraldur Þór Jónsson. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 57 ára og ástfangin upp fyrir haus Backstreet Boys með hálfleikssýninguna á Super Bowl? Valhöll verður afhent í sumar Sextán ár á flótta og gómaður á ÓL Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Dregur úr hömlum á losun gróðurhúsalofttegunda Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Hlutur vöggustofubarna verði réttur „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Þar sem enginn vill halda sín jól Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Ríkisfjármálaleg tímasprengja Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum Allt að 15 stiga frost í dag Endurstillti fókus eftir veikindi Brunagaddur á nokkrum stöðum Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum 57 ára og ástfangin upp fyrir haus Backstreet Boys með hálfleikssýninguna á Super Bowl? Valhöll verður afhent í sumar Sextán ár á flótta og gómaður á ÓL Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Hlutur vöggustofubarna verði réttur Dregur úr hömlum á losun gróðurhúsalofttegunda Valhöll verður afhent í sumar Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Þar sem enginn vill halda sín jól Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Ríkisfjármálaleg tímasprengja Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum Allt að 15 stiga frost í dag Endurstillti fókus eftir veikindi Brunagaddur á nokkrum stöðum Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum

Share this article