Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Urriðafoss aftur í biðflokk

Read Full Article →

Skrokkölduvirkjun á Sprengisandi og Holtavirkjun í Þjórsá fara úr biðflokki rammaáætlunar í nýtingarflokk nái vilji meirihlutans fram að ganga á Alþingi í dag. Meirihluti þingnefndar tók fram fyrir hendurnar á ráðherra og setti Urriðafossvirkjun í biðflokk. Í þingsályktunartillögu Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra er lagt til að Skrokkölduvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun verði færðar úr biðflokki í orkunýtingarflokk. Þá var lagt til að Héraðsvötn og Kjalölduveita verði áfram í biðflokki en upphaflega átti að færa þá kosti í verndarflokk. Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar gerir hins vegar þá breytingatillögu að Urriðafossvirkjun í neðri hluta Þjórsár verði áfram í biðflokki. „Við leggjum það til vegna þess að það er ennþá mjög mikil óvissa varðandi þau áhrif sem Urriðafossvirkjun hefur á laxastofninn og það er ljóst að það verður farið á undan í Hvammsvirkjun og Holtavirkjun áður en byrjað verður á Urriðafossvirkjun. Þannig að við viljum fá frekari gögn ,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í nefndinni leggja hins vegar til að allir kostir, þar með talið Kjalölduveita og Héraðsvötn, fari í nýtingarflokk. Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, er einn þeirra. „Þetta eru samtals 3.517 gígavattstundir þessir fimm kostir en þau eru að leggja bara til 760 gígavattstundir. Þetta eru tveir minnstu kostirnir af þessum fimm fara í nýtingu. Það er bara pólítsk áhersla, sérstkalega fulltrúa Samfylkingarinnar í nefndinni, sem fara gegn eigin ráðherra. “ Atkvæðagreiðsla um tillöguna er á dagskrá þingsins eftir hádegi og má fastlega búast við að hún verði samþykkt með breytingatillögu meirihlutans, en að breytingatillaga minnihlutans, um að allir kostir verði settir í nýtingu, verði felld.

Share this article