Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þungt högg og fjárfestingar í hættu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.5.2026 | 11:20 Þungt högg og fjárfestingar í hættu Forsvarsmenn helstu baðlóna á Íslandi telja hækkun virðisaukaskatts geta haft áhrif á frekari fjárfestingar og uppbyggingu. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson Sonja Sif Þórólfsdóttir [email protected] Setja bókamerki Forsvarsfólk nokkurra helstu baðlóna landsins leggst einróma gegn áformum stjórnvalda um að hækka virðisaukaskatt á aðgangseyri úr 11% í 24%. Í umsögnum til Alþingis við tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 vara fyrirtækin við því að hækkunin geti leitt til hærra verðs, minni eftirspurnar, skertrar fjárfestingargetu og jafnvel lokunar yfir vetrarmánuði. Vök Baths á Austurlandi segir að fyrirtækið hafi verið rekið með tapi fimm mánuði ársins 2025 en að hækkunin geti orðið til þess að tapmánuðirnir verði sjö. Þá þurfi að skoða hvort loka eigi staðnum yfir að minnsta kosti fjóra erfiðustu mánuði ársins. Í umsögnunum er því hafnað að um sé að ræða þrönga skattlagningu á erlenda ferðamenn. Fyrirtækin segja stóran hluta gesta vera Íslendinga og að hækkunin muni bitna á heimamönnum, árskortshöfum og nærsamfélögum víða um land. Laugarás Lagoon segir til að mynda 75% gesta sinna vera Íslendinga, Skógarböðin segja hlutfallið vera 60–70% og Vök Baths segir innlenda gesti vera um 40% gesta. Hækkar um þúsund krónur Forsvarsmenn Skógarbaðanna segja að greiðsla til ríkisins hækki úr um 857 krónum í um 1.870 krónur á hvern gest, eða um 1.013 krónur fyrir hvern einasta gest. „Slík hækkun er ekki smávægilegt skref til að fækka undanþágum í skattkerfinu eða draga úr skattastyrkjum í VSK. Hún mun hafa bein áhrif á verð, rekstur, fjárfestingargetu, gesti og nærsamfélög,“ segir í umsögn Skógarbaðanna. Skógarböðin segja eigendur fjárfesta fyrir um átta milljarða króna á svæðinu, meðal annars í hóteluppbyggingu, og að rekstrarhagnaður lónsins sé nýttur í þá uppbyggingu. Félagið hafi sett sér arðgreiðslubann í sjö ár til að tryggja að fjármunir fari í uppbyggingu og atvinnusköpun. Jarðböðin við Mývatn segja hækkunina koma sérstaklega illa við reksturinn þar sem nú sé verið að opna tæplega 4.000 fermetra nýja aðstöðu. Framkvæmdirnar hafi tekið 38 mánuði og Jarðböðin stækki um 35%. Sú fjárfesting hafi byggst á þeim forsendum að aðgangur að baðlónum beri 11% virðisaukaskatt. Skyndileg hækkun í 24% felur því ekki aðeins í sér almenna skattabreytingu heldur raunveruleg áhrif á fyrirtæki sem hefur þegar tekið stórar fjárfestingarákvarðanir. „Ef hækkuninni er velt út í verð hækkar aðgangur að Jarðböðunum fyrir bæði erlenda og innlenda gesti,“ segir í umsögninni. Ef hækkuninni verður ekki velt út í verðið að fullu, leggst hún á rekstur félagsins, segir í umsögninni. „Þá minnkar svigrúm til að standa undir fjárfestingu, greiða niður framkvæmdir, ráða starfsfólk, viðhalda þjónustustigi og halda áfram uppbyggingu,“ segir þar enn fremur. Raskar forsendum Laugarás Lagoon segir 75% gesta vera Íslendinga, 61 ársverk sé hjá fyrirtækinu og um 90 manns starfi þar yfir sumartímann. Fyrirtækið segist hafa orðið einn stærsti vinnustaður Bláskógabyggðar á skömmum tíma og að skattabreytingin raski forsendum nýrrar fjárfestingar stuttu eftir að starfsemi hófst. Hvammsvík leggur áherslu á að fyrirtækið styðji við atvinnu í Kjósarhreppi, bæði með föstum starfsmönnum og verkefnum til verktaka í nærumhverfinu. Fyrirtækið segir jafnframt 35.000 til 40.000 Íslendinga heimsækja staðinn árlega og að markmið séu um stækkun baðstaðarins og uppbyggingu lúxushótels á svæðinu. Sjóböðin á Húsavík segja um 1.100 einstaklinga vera með árskort og að staðurinn hafi verið opinn allt árið frá opnun 2018, þrátt fyrir neikvæðan rekstur yfir köldustu vetrarmánuðina. „Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum úr 11% í 24% myndi veikja rekstrargrundvöll Sjóbaðanna, hækka verð á vinsælli þjónustu, draga úr samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar og hafa neikvæð áhrif á nærsamfélagið á Húsavík,“ segir í umsögninni. Sky Lagoon gagnrýnir að heilsutengd upplifun á borð við baðlón sé sett í annað skattalegt umhverfi en sambærileg þjónusta sem geti verið undanþegin virðisaukaskatti eða niðurgreidd. Fyrirtækið segir einnig að hækkunin gangi gegn fyrri yfirlýsingum um að ekki ætti að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. „Þegar stjórnvöld breyta skattlagningu með skömmum fyrirvara, þvert á fyrri yfirlýsingar, dregur úr trausti á rekstrarumhverfinu. Sú óvissa hefur raunveruleg áhrif á fjárfestingarákvarðanir, ekki aðeins hjá Sky Lagoon heldur einnig hjá öðrum sem íhuga að ráðast í sambærileg verkefni á Íslandi,“ segir í umsögn Sky Lagoon. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Bítlarnir opna sögufrægt safn í London X26: Vilja bílastæði og betri menntun Þungt högg og fjárfestingar í hættu Kominn með fleiri titla en Ronaldo 18 ára gamall Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Gervigreind drifkraftur vaxtar í Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Pútín telur stríðið nálgast endalokin Segir vændismansal stærsta vandamálið 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er búið að eyðileggja“ Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu Lífshættuleg stigmögnun í ofbeldissamböndum Sjö sóttu um embætti skólameistara Goðsögn í fótbolta kenndi honum að tefla Kærður fyrir sama brot í fjórða sinn Hildur segir meirihlutann hafa brugðist 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Telur þörf á stokki Væta í flestum landshlutum en styttir upp síðdegis Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Bítlarnir opna sögufrægt safn í London X26: Vilja bílastæði og betri menntun Þungt högg og fjárfestingar í hættu Kominn með fleiri titla en Ronaldo 18 ára gamall Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Gervigreind drifkraftur vaxtar í Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert X26: oddvitar í Árborg mætast Þungt högg og fjárfestingar í hættu Sex færslur rangt merktar Seðlabankans að mæta áhrifum Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er búið að eyðileggja“ Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu Lífshættuleg stigmögnun í ofbeldissamböndum Sjö sóttu um embætti skólameistara Goðsögn í fótbolta kenndi honum að tefla Kærður fyrir sama brot í fjórða sinn Hildur segir meirihlutann hafa brugðist 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Telur þörf á stokki Væta í flestum landshlutum en styttir upp síðdegis Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið

Share this article