Fasteignaþróunarfélagið Laufdal og smásölufyrirtækið Drangar undirrituðu þann 27. apríl síðastliðinn viljayfirlýsingu um samstarf sem snýr að uppbyggingu verkefnisins Miðtún 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Viljayfirlýsingin markar upphaf formlegra viðræðna milli aðila um frekari þróun verkefnisins. Samkvæmt viljayfirlýsingunni er stefnt að byggingu um 700 fermetra atvinnuhúsnæðis fyrir verslun ásamt tilheyrandi frágangi lóðar. „Verkefnið snýr að uppbyggingu þjónustukjarna sem ætlað er að mæta vaxandi þörf fyrir verslun og þjónustu á svæðinu,“ segir í fréttatilkynningu. Jafnframt er gert ráð fyrir samræmdri tímaáætlun um skipulag og framkvæmdir, auk viðræðna um frekari uppbyggingu á svæðinu, svo sem þjónustuinnviði, bílastæði og orkutengda innviði. „Miðtún 1 er spennandi verkefni og teljum við samstarfið tryggja góðan grundvöll fyrir þá uppbyggingu sem framundan er á svæðinu. Það eru vaxandi tækifæri á þessu svæði og skýr áhersla á þróun þjónustuinnviða sem rímar vel við markmið Dranga að bjóða viðskiptavinum góða þjónustuupplifun,“ segir Auður Daníelsdóttir , forstjóri Dranga. Miðtún 1 er hluti af stærra þróunarverkefni á svæðinu þar sem unnið er að uppbyggingu verslunar, þjónustu og ferðaþjónustu í Miðtúni 1–11. Innan þess ramma eru Miðtún 3–9 skilgreind sem lóðir fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi með möguleika á íbúðum á efri hæðum, á áberandi stað í einu fjölfarnasta ferðamannasvæði landsins. „Undirritun viljayfirlýsingarinnar er mikilvægt skref í áframhaldandi þróun Miðtúnsreitsins. Við höfum unnið markvisst að þróun svæðisins undanfarin ár og sjáum skýr tækifæri til að styrkja þjónustugrunn þess í takt við vaxandi umsvif og eftirspurn. Samstarf við Dranga fellur vel að þeirri sýn og skapar grundvöll fyrir næstu skref í verkefninu,“ segir Eyjólfur Fannar Eyjólfsson , meðeigenda Laufdals. Markmið um 100 herbergja hótel Í tilkynningunni segir að sérstök áhersla sé lögð á Miðtún 11, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu hótels með allt að 100 herbergjum. Verkefnið sé lykilþáttur í að styrkja þjónustuframboð á svæðinu og skapa aukið virði til lengri tíma, m.a. með því að styðja við vaxandi eftirspurn ferðaþjónustu á Suðurlandi. Verkefnin, sem eru á þróunarstigi, eru sögð hluti af heildstæðri sýn um uppbyggingu þjónustukjarna sem mætir þörfum íbúa, fyrirtækja og ferðamanna. „Uppbygging sem þessi styður við áframhaldandi þróun svæðisins og bætir þjónustu fyrir íbúa, fasteignaeigendur og gesti. Verkefnið fellur að þeirri stefnu sveitarfélagsins að efla innviði og skapa aðstæður fyrir sjálfbæran vöxt í takt við þróun svæðisins,“ segir Ása Valdís Árnadóttir , oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps. Fyrir hönd Laufdals undirrituðu Eyjólfur Fannar Eyjólfsson og Nökkvi Páll Jónsson. Fyrir hönd Dranga undirritaði Auður Daníelsdóttir, forstjóri félagsins. Við undirritunina voru einnig viðstödd Ása Valdís Árnadóttir, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps, og Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri. F.v. Smári Kolbeinsson, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri, Björn Kristinn Pálmarsson, Nökkvi Páll Jónsson, Eyjólfur Fannar Eyjólfsson, Auður Daníelsdóttir, Jón Anton Jóhannsson og Ragnheiður Eggertsdóttir. © Aðsend mynd (AÐSEND)