Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Frambjóðendur krafðir svara: „Algjörlega gjaldþrota“

Read Full Article →

Innlent | Kosningar | Morgunblaðið | 12.5.2026 | 10:10 Frambjóðendur krafðir svara: „Algjörlega gjaldþrota“ Sturla G. Eðvarðsson, framkvæmdastjóri hjá Eik, stýrði fundinum fyrir hönd húseigenda á Ártúnshöfða. mbl.is/Karítas Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Evrópuráðið fylgist með kosningunum „Þessi föstudagur verður eitthvað annað!“ Hvar átt þú að kjósa? Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Sannfæra kjósendur: „Varist það sem er í boði“ » Fleiri tengdar fréttir Húseigendur á Ártúnshöfða kröfðu frambjóðendur í Reykjavík svara vegna þeirrar stöðu sem upp er komin er varðar lóðarleigusamninga á Ártúnshöfða á fundi í gær. Tíu frambjóðendur mættu á fundinn en Viðreisn sendi ekki fulltrúa. Fram kom í máli lóðarhafa, sem hafa stofnað samtök til að verja hagsmuni sína gagnvart yfirgangi borgaryfirvalda, að þeir hafi miklar áhyggjur af stöðu lóðarleigusamninga við Reykjavíkurborg sem eru að renna út og kröfðust þess að fá að heyra hvað fulltrúar flokkanna hygðust gera gagnvart húseigendum. Líf Magneudóttir, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, sagði að þetta væri flókið lögfræðilegt úrlausnarmál. Hún vill að skipulagi sé fylgt og gætt sé jafnræðis. Hún boðaði samtal og samráð. „Við stöndum vörð um almannahagsmuni og réttlæti og að öllum verði boðið upp á samninga, en það er ekki hægt að lofa neinu fyrir fram.“ Alexandra Briem formaður borgarráðs útskýrði málið með þeim hætti að þær lóðir sem ekki væru með uppkaupsákvæði kæmu til af því að þegar byggt var á lóðinni hafi verið gerður svokallaður þjónustusamningur og ekki greidd gatnagerðargjöld. „Málið er flókið og það er ekki tilgangurinn eða markmiðið að keyra fólk í þrot.“ Aðrir lofa nýjum samningum Hildur Björnsdóttir oddviti sjálfstæðismanna rifjaði upp fyrir fundarmönnum að hún hefði lagt fram tillögu í borgarráði um að borgin gengi til samninga við húseigendur á Höfðanum en tillögunni hefði verið hafnað og það sýndi í raun afstöðu núverandi meirihluta gagnvart þeim sem virðast vera að tapa eignum sínum. Hún lofar því að þessir samningar verði teknir upp og kláraðir á fyrstu 12 mánuðum næsta kjörtímabils verði Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta. „Við höfum áhyggjur af þeirri óvissu sem fyrirtækjum hér hefur verið sköpuð því óvissa er versti óvinur allra þeirra sem standa í fyrirtækjarekstri. Hér eru margir með útrunna lóðarleigusamninga sem eru án uppkaupsákvæða og verða fyrirsjáanlega fyrir gríðarlegu tjóni ef ekkert breytist.“ Ari Edwald oddviti Miðflokksins sagði að þetta mál væri reginhneyksli sem sýndi afstöðu meirihlutans í Reykjavík gagnvart atvinnulífinu. Hann lagði áherslu á hvað Ártúnshöfðinn gegndi mikilvægu hlutverki í þjónustu við Reykvíkinga og hversu margir störfuðu og sköpuðu verðmæti á þessu svæði. „Hér er rekin öflug atvinnustarfsemi sem er hluti af lífinu í borginni og það er ekki tekið mið af því í einhverjum framtíðardraumum meirihlutans sem eru byggðir á einhverri draumsýn.“ Lifandi dæmi Einar Þorsteinsson talaði um óboðlega óvissu fyrir húseigendur og að setja þyrfti þetta mál í formlegt ferli. „Þessi fundur er lifandi dæmi um það að skipulagsstefna borgarinnar er algjörlega gjaldþrota. Samfylkingin hefur með skipulagsáætlunum sínum breytt þessu mikilvæga atvinnusvæði í íbúðasvæði án þess að ganga til samninga við alla þá sem eiga allt sitt undir að hafa fyrirsjáanleika og fast land undir fótum í sínum rekstri.“ Einar Sveinbjörn Guðmundsson sem skipar annað sætið hjá Flokki fólksins segir að stefnan sem mótuð hafi verið í Reykjavík sé gerð af fyrri meirihluta og sé „agressívur urbanismi“ sem fyrirtækin í borginni séu að flýja því ekki sé hægt að búa við þessa óvissu. Sigrún E. Unnsteinsdóttir sem skipar annað sæti Sósíalista hefur rekið fyrirtæki á Ártúnshöfða og segist ekki skilja þetta ferli þar sem lóðasamningar hafa verið settir í uppnám. Hún styður húseigendur. Birkir Ingibjartsson, arkitekt sem skipar áttunda sæti Samfylkingarinnar, lagði áherslu á jafnræði og mikilvægi þess að ryðja ekki öllu úr vegi og vill standa vörð um Höfðann sem öflugt atvinnusvæði. Baldur Borgþórsson sem skipar annað sætið hjá Okkar borg sagði það vera skýrt í sínum huga að allir húseigendur ættu rétt á samningum á jafnræðisgrundvelli. Ingimar Þór Friðriksson, oddviti Góðan daginn framboðsins, sagði þetta lóðamál enn eitt klúðrið af fjölmörgum klúðursmálum sem meirihlutinn í borginni væri að skilja eftir sig. Hann segist styðja atvinnulífið og það sé hneykslanlegt hvernig komið sé fram við fyrirtækin í borginni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Evrópuráðið fylgist með kosningunum „Þessi föstudagur verður eitthvað annað!“ Hvar átt þú að kjósa? Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Sannfæra kjósendur: „Varist það sem er í boði“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eignaðist þriðja barnið 44 ára Evrópuráðið fylgist með kosningunum Frambjóðendur krafðir svara: „Algjörlega gjaldþrota“ Svali er þakklátur fyrir nýju kærustuna Úr Hafnarfirði til Zürich Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Síðasti öruggi dagurinn er í dag X26: Samhljómur um frekari vöxt Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Mest lesið Í gær Í vikunni Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Frjósamt fé á Einarsstöðum „Þetta kom flatt upp á okkur“ Fylgjast vel með hantaveirunni „Þessi föstudagur verður eitthvað annað!“ Sannfæra kjósendur: „Varist það sem er í boði“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Eignaðist þriðja barnið 44 ára Evrópuráðið fylgist með kosningunum Frambjóðendur krafðir svara: „Algjörlega gjaldþrota“ Svali er þakklátur fyrir nýju kærustuna Úr Hafnarfirði til Zürich Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Margt bendir til óformlegra verkfallsaðgerða Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu Mest lesið Í gær Í vikunni Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Frjósamt fé á Einarsstöðum „Þetta kom flatt upp á okkur“ Fylgjast vel með hantaveirunni „Þessi föstudagur verður eitthvað annað!“ Sannfæra kjósendur: „Varist það sem er í boði“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið

Share this article