Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Eyrir verður stærsti hlut­hafi hollensks land­eldis­fyrir­tækis

  • What: Eyrir, an Icelandic investment firm, has invested in The Kingfish Company, a Dutch aquaculture business.
  • Impact: Eyrir becomes the largest shareholder in The Kingfish Company, which specializes in sustainable yellowtail farming.
Read Full Article →

Fjárfestingarfélagið Eyrir hefur ákveðið að fjárfesta í hollenska landeldisfyrirtækinu The Kingfish Company B.V. fyrir 15 milljónir evra, eða tæplega 2,2 milljarða króna, og verður þar með stærsti hluthafi félagsins. Árni Oddur Þórðarson, sem á Eyri til helminga á móti föður sínum Þórði Magnússyni, mun taka sæti í stjórn Kingfish. Fjárfesting Eyris er gerð í gegnum nýstofnað félag, Eyrir Blue Farms, sem leggur áherslu á fjárfestingar í landeldisfyrirtækjum á síðari stigum sprotaþróunar eða á fyrstu vaxtarskeiðum þeirra. Eyrir Blue Farms mun fjárfesta 15 milljónum evra í lokuðu hlutafjárútboði Kingfish að heildarfjárhæð 21 milljón evra. Kingfish sérhæfir sig í landeldi á gullsporði (e. Yellowtail) með lokuðu endurhringrásarkerfi (RAS) í Zeeland í Hollandi. Í tilkynningu Eyris segir að Kingfish selji afurðir sínar á hágæðamörkuðum, m.a. til fínni veitingahúsa víða um Evrópu, og hafi skipað sér í fremstu röð á sviði sjálfbærs landeldis á verðmætum fisktegundum. Félagið var stofnað árið 2015 og er núverandi framleiðslugeta þess um 3.600 tonn á ári. KingFish er skráð á Euronext Growth markaðinum í Osló. Samhliða útboðinu verður fjármagnsskipan Kingfish einfölduð, m.a. með því að eigendur breytanlegs skuldabréfs að fjárhæð 49 milljóna evra breyta útistandandi höfuðstól í hlutafé, auk þess sem aðallánveitandi félagsins mun framlengja núverandi fjármögnun. „Kingfish hefur byggt upp sterkan og vel aðgreindan rekstrargrundvöll, studdan af öflugu og reynslumiklu teymi með skýra áherslu á gæði, nýsköpun og sjálfbærni. Með markvissum fjárfestingum í háþróaðri tækni og landbundnu RAS‑kerfi sem nýtir ferskan sjó og endurnýjanlega orku hefur félagið skapað traustan grunn til að framleiða fisk í hæsta gæðaflokki með ábyrgum og skalanlegum hætti,“ segir Árni Oddur Þórðarson , í tilkynningu Kingfish um viðskiptin. „Hjá Eyrir leggjum við ekki aðeins til fjármagn, heldur einnig langtímaskuldbindingu, stefnumótandi stuðning og virkt samstarf. Við hlökkum til að vinna náið með stjórnendum og öðrum hluthöfum að áframhaldandi vexti félagsins og að skapa sjálfbær langtímaverðmæti fyrir alla hagaðila." Sjá einnig Árni Oddur orðinn stjórnar­for­maður Eyris Arctica Finance og AX Legal Services voru ráðgjafar Eyris vegna lokaða hlutafjárútboðsins og í vinnu við endurskipulagningu á fjárhag Kingfish. ABG Sundal Collier var fjárhagslegur ráðgjafi Kingfish.

Share this article