Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Brunnur Ventures eflir fjár­festinga­t­eymi sitt

  • What: Investment fund update for Brunnur Ventures
  • Impact: Business and financial news
Read Full Article →

Brunnur Ventures eflir fjárfestingateymi sitt með þremur nýjum ráðningum í kjölfar stofnunar Brunns III, nýs 7,1 milljarða króna vísisjóðs. Brunnur rekur einnig sjóðina Brunn I og Brunn II og stýrir alls þremur vísisjóðum sem nema samtals yfir 20 milljörðum króna. Óskar Fannar Vilmundarson hefur verið ráðinn fjárfestingastjóri, auk þess sem Einar Þór Gústafsson hefur verið ráðinn fjárfestingastjóri og Pétur Snær Auðunsson greinandi. Óskar hóf störf hjá Brunni sem greiningaraðili árið 2022 og hefur á þeim fjórum árum komið að sjö nýjum fjárfestingum úr Brunni vaxtarsjóði II og um tuttugu eftirfylgnisfjárfestingum í sjóðum Brunns I og II, auk þátttöku í stofnun Brunns III. Hann starfaði áður hjá lækningavörufyrirtækinu Kerecis, fyrst sem aðstoðarmaður forstjóra og síðar sem verkefnastjóri í rannsóknum og þróun. Hann hefur víðtæka reynslu af hugverkum í nýsköpun og bar meðal annars ábyrgð á alþjóðlegu einkaleyfasafni með yfir 50 skráðum einkaleyfum. Óskar er með B.Sc. í vélaverkfræði frá Háskólanum í Osló, diplóma í viðskiptahagfræði frá Háskólanum í Tromsø og er löggiltur verðbréfamiðlari. Einar Þór Gústafsson hefur verið ráðinn fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures. Einar kemur til Brunns frá Gangverk þar sem hann hefur leitt vöruþróun í fjármála-, ferða- og heilsutækni fyrir stærri fyrirtæki á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hann hefur rúmlega 20 ára reynslu af nýsköpun og alþjóðlegum vexti sprotafyrirtækja en hann gegndi m.a. stöðu framkvæmdastjóra vöruþróunar hjá Meniga, tæknistjóra PLAY og var einn stofnenda Getlocal ásamt því að sitja í stjórn Símafélagsins og fleiri fyrirtækja. Sjá einnig Brunnur stofnar 7,2 milljarða sjóð Einar útskrifaðist frá SAE í New York og er að leggja lokahönd á Executive MBA með áherslu á stafræna umbreytingu og nýsköpun. Pétur Snær Auðunsson hefur verið ráðinn greinandi hjá Brunni Ventures þar sem hann mun starfa við greiningu fjárfestingarkosta og þátttöku í verkefnum sjóðsins. Hann er með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík, hefur lokið CFA Level II og er með verðbréfamiðlararéttindi á Íslandi. Pétur býr yfir fimm ára reynslu á fjármálamarkaði, meðal annars úr áhættustýringu hjá Landsbankanum og Íslandsbanka, auk fyrirtækjaráðgjafar hjá Íslandsbanka. Síðast gegndi hann stöðu fjármálastjóra hjá verktakanum Verkeiningu ehf. „Við erum afar ánægð með að styrkja teymið okkar með þessum öflugu ráðningum. Óskar hefur sýnt framúrskarandi hæfni frá því hann kom til félagsins og því sérstaklega ánægjulegt að sjá hann taka næsta skref innan Brunns sem fjárfestingastjóri. Einar og Pétur koma jafnframt með dýrmæta reynslu og þekkingu sem mun nýtast vel í okkar vegferð,“ segir Árni Blöndal, meðstofnandi og fjárfestingastjóri hjá Brunni.

Share this article