Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Högnuðust um milljarð á þremur árum

  • What: Financial report for Gullfosskaffi published
  • Impact: Business performance in Iceland
Read Full Article →

Gullfosskaffi, sem rekur kaffihús við Gullfoss, hagnaðist um 382 milljónir króna árið 2024 en árið 2023 nam hagnaðurinn 340 milljónum. Árið þar áður nam hagnaðurinn 236 milljónum og nemur hagnaður áranna 2022-2024 því samanlagt 958 milljónum króna. Ársreikningar félagsins ná aftur til ársins 2003 en félagið hefur verið rekið með hagnaði allar götur síðan, að faraldursárinu 2020 undanskildu. Tekjur námu tæplega 1,8 milljörðum króna, samanborið við tæplega 1,7 milljarða árið áður, sem er aukning um 6,4% milli ára. Rekstrargjöld námu ríflega 1,3 milljörðum, þar af var kostnaðarverð seldra vara 791 milljón og laun og launatengd gjöld 314 milljónir. Ársverk voru 32 en árið 2023 voru þau 30. Eignir voru bókfærðar á 1,3 milljarða í lok árs 2024 og eigið fé nam 861 milljón. Stjórn leggur til að 150 milljónir króna verði greiddar í arð vegna rekstrarársins. Gullfosskaffi er í eigu Elfu Bjarkar Magnúsdóttur og Svavars Njarðarsonar. Lykiltölur / Gullfosskaffi ehf. 2024 2023 Tekjur 1.768 1.662 Eigið fé 861 678 Eignir 1.294 871 Afkoma 382 340 - í milljónum króna

Share this article