Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Varasamir vindar undir Eyjafjöllum og í Öræfum Brynjólfur Þór Guðmundsson Útlit er fyrir hvassa vindstrengi undir Eyjafjöllum og í Öræfum síðdegis og fram á kvöld. Vakthafandi veðurfræðingur varar við að vindurinn verði það ákafur að hann reynist varasamur fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Norðlæg átt verður ríkjandi í dag og víðast verður vindstyrkurinn á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu. Mun hvassara verður þó syðst og austan Öræfa síðdegis, samkvæmt veðurspánni. Bílar á ferð undir Eyjafjöllum. Safnmynd. Víðir Hólm Ólafsson Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Helgi Bjartur áfrýjar til Landsréttar Helgi Bjartur Þorvarðarson, sem var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í síðasta mánuði fyrir að brjóta kynferðislega gegn 10 ára dreng og húsbrot, hefur áfrýjað dóminum. Ákæruvaldið skoðaði líka að áfrýja. Fyrir 51 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Spá ýmist minnkandi eða óbreyttri verðbólgu Íslandsbanki spáir óbreyttri verðbólgu í maí en Landsbankinn telur að hún fari undir fimm prósent í fyrsta skipti á árinu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tíu grísir drápust eftir innbrot í svínabú Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í fyrrinótt. Skemmdir voru unnar á skrifstofu og svínahúsum búsins með þeim afleiðingum að dýr gengu laus og sum drápust. Málið hefur verið kært til lögreglu og er nú til rannsóknar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fjárfestingar og þróun sett á bið vegna óvissu Rúmlega 400 milljóna króna tap var á rekstri Reykjalundar í fyrra. Stjórnendur segja mikla óvissu hafa skapast meðan beðið sé nýrrar endurhæfingarstefnu stjórnvalda. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Nýliðarnir í þjálfarakrísu mánuði fyrir mót Það gengur á ýmsu í herbúðum Curaçao sem eru að keppa á heimsmeistaramótinu í fótbolta í fyrsta sinn í sumar. Fred Rutten þjálfari liðsins sagði starfi sínu lausu í gær. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Starmer segist ekki vera á förum úr embætti þrátt fyrir þrýsting yfir 80 þingmanna Yfir 80 þingmenn breska Verkamannaflokksins hvetja Starmer til að segja af sér Einn ráðherra hætti í ríkisstjórn Starmers í morgun og vill að hann gefi út tímaáætlun um brottför sína úr embætti Eftir slakt gengi Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningum á dögunum hefur þrýstingur á leiðtoga flokksins aukist Fyrir kosningarnar var kraumandi óánægja með störf Starmers Starmer segist ætla að sitja áfram í embætti og ítrekaði á ríkisstjórnarfundi í morgun að hann tæki ábyrgð á slöku gengi í kosningum fyrir helgi FRÉTTAVAKT Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fylgjast með framkvæmd kosninganna Brynjólfur Þór Guðmundsson Fimmtán manna sendinefnd Evrópuráðsins kemur til Íslands á morgun til að fylgjast með sveitarstjórnarkosningunum á laugardag. Nefndinni verður skipt í sjö hópa á laugardag sem fara vítt og breitt um landið og fylgjast með því sem fram fer á kjörstöðum. Sendinefndin verður hér frá miðvikudegi til sunnudags og skilar af sér skýrslu um framkvæmd kosninganna. Auk þess að fara á kjörstaði ræða nefndarmenn við embættismenn og fulltrúa félagasamtaka. Eftirlit sem þetta er hefðbundið af hálfu Evrópuráðsins. Nýju kjörkassarnir sem verða notaðir um helgina. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Vildu hátíð þar sem hinseginleikinn væri sjálfsagður: Fór fram úr björtustu vonum Hjónin Eva Rún og Halla Þórlaug standa í annað sinn fyrir bókmenntahátíðinni Queer Situations eftir vel heppnað fyrra skipti. Þeim þykir mikilvægt að birtingarmynd hinseginleikans fjölbreytt og að komið sé í veg fyrir stigveldi innan samfélagsins. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Umdeildur sendiherra Trumps á Íslandi færist nær staðfestingu Billy Long færðist skrefi nær staðfestingu sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í gærkvöld. Long var ríkisskattstjóri um stund en var vikið úr því starfi og boðið starf sendiherra á Íslandi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Vill kanna reglur um samfélagsmiðlanotkun barna Brynjólfur Þór Guðmundsson Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir líklegt að nýjar reglur um samfélagsmiðlanotkun barna verði kynntar í sumar. Von der Leyen ávarpaði ráðstefnu um gervigreind og börn í Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur, í dag. Hún sagði að sérfræðingahópur hefði verið beðinn um að leggja fram tillögur um hvað ætti að gera til að vernda börn á samfélagsmiðlum. Svo gæti farið að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynni tillögur að löggjöf um samfélagsmiðla strax í sumar, sagði von der Leyen. Ursula von der Leyen. AP / Anthony Pizzoferrato Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Beittu gísla sína miklu kynferðisofbeldi og pyntingum Hamas og bandamenn þeirra beittu gísla sína kerfisbundnu og umfangsmiklu kynferðisofbeldi eftir árásirnar á Ísrael 7. október 2023. Niðurstöður óháðrar rannsóknarnefndar leiða þetta í ljós. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Rannsaka strok seiða úr landeldi í Kelduhverfi Laxaseiði sem sluppu úr landeldi í Kelduhverfi í Norðurþingi voru líklega orðin sjógöngufær. MAST rannsakar strokið og bíður nánari upplýsinga frá fyrirtækinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Víða strekkingsvindur Lægð fyrir austan land veldur allhvassri norðanátt nokkuð víða á landinu. Norðan til verður allnokkur úrkoma og gæti snjóað í 200 til 300 metra hæð yfir sjó. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínumenn tilbúnir að draga úr langdrægum árásum ef Rússar forðast fjöldaárásir Brynja Dögg Friðriksdóttir Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti. EPA / ANGELO CARCONI Rússar gerðu drónaárásir á fjölbýlishús í Kyiv í nótt um klukkan hálf 4 að staðartíma. Ekki hafa borist fregnir af manntjóni. Þriggja daga vopnahléi milli Rússa og Úkraínumanna lauk á miðnætti. Samkvæmt Kyiv Independent lýsti Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti því yfir skömmu áður en vopnahléinu lauk að Úkraínumenn væru tilbúnir til að draga úr langdrægum árásum á hernaðarlega innviði í Rússlandi ef stjórnvöld í Moskvu forðast fjöldaárásir. Enn hafa skipti á stríðsföngum ekki farið fram líkt og um var samið með vopnahléinu. Úkraínumenn hafa sent lista með nöfnum stríðsfanga til Bandaríkjamanna sem miðla listanum áfram til Rússa. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Bandaríkjastjórn vill opna þrjár herstöðvar á Suður-Grænlandi Samninganefndir Bandaríkjanna og Danmerkur hafa átt reglulegar viðræður undanfarna mánuði um aukna viðveru bandaríska hersins á Grænlandi. Bandaríkjastjórn vill auka viðveru sína og hafa eftirlit með skipaumferð um GIUK-hliðið. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Fyrrum skrifstofustjóri forsetaskrifstofu Úkraínu ákærður í spillingarmáli Andríj Jermak var einn nánasti samstarfsmaður Volodomyrs Zelenskys Úkraínuforseta þar til upp komst um umfangsmikil spillingarmál sem hann er talinn eiga þátt í. Hann gæti átt yfir höfði sér fleiri ákærur vegna spillingarmála. 12. maí 2026 kl. 1:35ERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Að minnsta kosti 6 með jákvæð hantaveirusmit - 18 með væg einkenni Brynja Dögg Friðriksdóttir Síðustu farþegarnir og hluti áhafnarinnar úr Hondiusi voru flutt frá skipinu og út á flugvöll í gærdag. Hér er einn þeirra í rútu á leið út á flugvöll. EPA / Ramon de la Rocha Skemmtiferðaskipið Hondius lagði af stað frá Tenerife til heimahafnar í Hollandi í gærkvöld. Síðustu farþegar fóru frá skipinu í gærdag. Búist er við að skipið komi til Rotterdam á sunnudagskvöld. Alls eru þrír látnir eftir hantaveirusmit; hollensk hjón og þýsk kona. Að minnsta kosti sex einstaklingar hafa greinst með jákvætt hantaveirusmit eftir að þeir fóru af skipinu og 17 bandarískir ríkisborgarar sem voru um borð í skipinu sýna væg einkenni hantaveirusmits og eru í einangrun. Þá er einn Breti sem fór af skipinu í Tristan da Cunha líklega smitaður. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) telur litlar líkur á útbreiðslu hantaveirufaraldurs. 12. maí 2026 kl. 0:39INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ákall um málefnalegri sveitarstjórnarkosningar í Silfrinu Gestir í Silfrinu voru sammála um að neikvæð kosningabarátta og persónuleg málefni hefðu tekið of mikið pláss í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. 11. maí 2026 kl. 21:45INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Garðbæingar vilja áframhaldandi uppbyggingu Garðbæingar hafa úr sex framboðum að velja í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Íbúum þessa fimmta fjölmennasta sveitarfélags landsins hefur fjölgað mikið og margt brennur á bæjarbúum. 11. maí 2026 kl. 21:29ÍÞRÓTTIR Körfubolti Njarðvíkingar komu sér í afar góða stöðu Njarðvík tók á móti Haukum í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta í kvöld. Njarðvík gat með sigri á heimavelli komið sér í góða stöðu í einvíginu því liðið vann fyrsta leikinn. 11. maí 2026 kl. 21:05INNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Ísland segir sig frá orkusáttmálanum Umhverfisráðherra hefur tilkynnt úrsögn Íslands frá orkusáttmálanum ECT. Hann segir sáttmálann ganga gegn stefnu um orkufullveldi og sjálfsákvörðunarrétt. Fjöldi Evrópuríkja hefur sagt sig frá samningnum síðustu ár. 11. maí 2026 kl. 20:50INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Andrými hlýtur Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar Andrými fékk Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026. Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir hlaut Aðgengisviðurkenningu Reykjavíkurborgar við sama tækifæri. 11. maí 2026 kl. 20:20INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Aukaverkanir geti verið alvarlegar sé lyfjaskammturinn ekki réttur Rangir skammtar af þyngdarstjórnunarlyfjum geta haft alvarlegar afleiðingar á lifur og bris og jafnvel leitt til sjóntaps segir innkirtlalæknir. Alvarlegt sé að slík lyf gangi kaupum og sölum á svörtum markaði. 11. maí 2026 kl. 19:59ÍÞRÓTTIR Fótbolti Íslandsmeistararnir björguðu sér í uppbótartíma Íslandsmeis