Það verður hvasst undir Eyjafjöllum á morgun.Víðir Hólm Ólafsson Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við akstursskilyrðum við Reynisfjall og undir Eyjafjöllum fyrri hluta dags á morgun. Frá því um klukkan 6 til klukkan spáir allhvassri austanátt og rigningu syðst á landinu. Við Reynisfjall og undir Eyjafjöllum má búast við austan 13 til 18 metrum á sekúndu og hviðum allt að 25 metrum á sekúndu. „Slíkur vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind, sem og aðra,“ segir í ábendingu Páls Ágústs Þórarinssonar veðurfræðings Vegagerðarinnar.