Innlent | mbl | 12.5.2026 | 13:50 Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Flugfélagið segist líta svo á að þetta séu óformlegar verkfallsaðgerðir. mbl.is/Árni Sæberg Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sviptivindar í flugrekstri Strandaglópar eftir lokun flugfélags Verslun í flugstöðvum dregst saman vegna átakanna Bókanir til Spánar og Portúgal fjölgar vegna stríðsins Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Sætanýtingin skiptir mestu máli » Fleiri tengdar fréttir Niðurfellingar og seinkanir á flugferðum Icelandair, sem upp hafa komið að undanförnu sökum þess að ekki hefur tekist að manna þær, eru ekki eiginlegar verkfallsaðgerðir í bókstaflegum skilningi þess orðs. Aftur á móti hefur orðið breyting á vinnumenningu í kjölfar þess að kjarasamningar losnuðu í upphafi árs og kalla mætti það vísi að aðgerðum sem leitt hefur til raskana á starfseminni að undanförnu. Þannig herma heimildir mbl.is að flugmenn á bakvakt sem hefst klukkan 6 á morgnana samkvæmt vaktaskrá hafi ekki svarað í síma fyrr en nákvæmlega á þeim tíma, í stað þess að stökkva til ef hringt fyrr um nóttina eins og hefð hefur verið fyrir hingað til. Frétt af mbl.is Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki „Teygjanleiki minni en áður“ Þá hafi flugmenn sem eru ekki á vakt ekki tekið símann til að sinna afleysingum. Einn heimildarmanna mbl.is orðar það þannig að „teygjanleiki flugmanna sé minni en áður“. Af þeim sökum ná flugmennirnir ekki að komast í morgunflugferðir í tæka tíð og því hefur flugfélagið gripið til þess ráðs að aflýsa eða seinka flugferðum. Dæmin eru ekki mörg enn sem komið er og engar fregnir eru af því að flugmenn hafi gert sér upp veikindi til að spila þennan leik. Frétt af mbl.is Margt bendir til óformlegra verkfallsaðgerða Óformlegar verkfallsaðgerðir Fram kom í yfirlýsingu frá Icelandair í gær að félagið líti svo á að um sé að ræða óformlegar verkfallsaðgerðir. „Þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) fullyrði að engar aðgerðir séu hafnar er tengjast kjaraviðræðum er margt sem bendir til þess eftir nánari skoðun félagsins á ástæðum þessara tilteknu raskana á flugi að um óformlegar aðgerðir sé að ræða,“ sagði í tilkynningu félagsins. „Þær varða ákveðinn sveigjanleika sem er nauðsynlegur frá degi til dags í flugrekstri. Óvenjulegt er að ekki náist að manna flug þegar um forföll er að ræða og eru vísbendingar um samantekin ráð og þrýsting að sýna ekki sveigjanleika í þessum aðstæðum.“ Frétt af mbl.is Flugi aflýst í annað sinn í vikunni Mikið vinnuálag Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, hefur hafnað því að um einhvers konar aðgerðir sé að ræða. „Það eru engar aðgerðir í gangi og það sem er kannski mikilvægt í þessu er að gera greinarmun á verkfallsaðgerðum og svo því að einstakir flugmenn séu ekki tiltækir til þess að hlaupa úr fríi eða orlofi með mjög skömmum fyrirvara, til þess að bjarga einhverju skipulagi sem þeir hafa ekki komið að því að gera,“ sagði Jón Þór við mbl.is í gær. Hann hefur þó áður sagt að flugmenn séu komnir að þolmörkum og að mikið vinnuálag hafi verið á mönnum. Frétt af mbl.is „Þetta kom flatt upp á okkur“ Fleiri í óformlegum aðgerðum Greint var frá því á mbl.is í gær að flugvirkjar hefðu margir sagt sig frá vaktaskrá sumarsins er snýr að afleysingum yfir sumarorlofstímann. Þeim var hótað starfsmissi í kjölfarið og margir hættu við hinar óformlegu aðgerðir. Frétt af mbl.is Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Tengdar fréttir Sviptivindar í flugrekstri Strandaglópar eftir lokun flugfélags Verslun í flugstöðvum dregst saman vegna átakanna Bókanir til Spánar og Portúgal fjölgar vegna stríðsins Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Sætanýtingin skiptir mestu máli » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Áfall fyrir Arsenal Umræðan vekur ugg meðal lækna Verður ekki áfram í ensku úrvalsdeildinni Flugmenn Icelandair neita að stökkva til “People were paying for the view” Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast Viðræðum um Grænland miðar vel Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Frambjóðendur krafðir svara: „Algjörlega gjaldþrota“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Áfall fyrir Arsenal Umræðan vekur ugg meðal lækna Verður ekki áfram í ensku úrvalsdeildinni Flugmenn Icelandair neita að stökkva til “People were paying for the view” Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varar við verktöfum Fylgjast vel með hantaveirunni Ætlar að sanna sig fyrir efasemdarmönnum „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Frambjóðendur krafðir svara: „Algjörlega gjaldþrota“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið