Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu

  • What: An Icelandic travel group in Cuba is facing potential difficulties returning home due to flight cancellations caused by fuel shortages on the island.
  • Impact: The group's return flights may be disrupted, requiring alternative arrangements.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.2.2026 | 15:40 Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Ekki var reynt að flýta heimför íslenska hópsins sem er á vegum Heimsferða á Kúbu. Samsett mynd/AFP/Golli Vonir eru bundnar við að tuttugu manna hópur sem staddur er á Kúbu á vegum Heimsferða komist frá eyríkinu án vandkvæða á þriðjudag. Framkvæmdastjórinn hefur þó haft ákveðnar áhyggjur af heimferðinni. Hann segir flug farþeganna með WestJet frá Kúbu til Toronto enn á áætlun, en fari svo að því verði aflýst þurfi að gera aðrar ráðstafanir. Farþegarnir eiga svo flug heim frá Toronto til Íslands með Icelandair á miðvikudag. Greint var frá því í gær að nokkur af helstu flugfélögum sem fljúga til Kúbu hefðu á undanförnum dögum aflýst flugferðum til og frá eyríkinu sökum eldsneytisskorts. Ekki er því flogið lengur með farþega til Kúbu heldur þeir aðeins sóttir, eins og í tilfelli ferðalanganna á vegum Heimsferða. Frétt af mbl.is Kyndir undir kreppu á Kúbu „Það sem við köllum „rescue“-flug“ Að sögn Tómasar J. Gestssonar, framkvæmdastjóra Heimsferða, flaug hópurinn út þann 2. febrúar en flestir bókuðu ferðina með nokkurra mánaða fyrirvara. Engar afbókanir voru gerðar áður en hópurinn hélt út. „Flugfélög hafa verið að fljúga út og sækja farþega en þau hafa ekki verið að fara með farþega til Kúbu eftir því sem við best vitum. Þetta eru það sem við köllum „rescue“-flug,“ segir Tómas í samtali við mbl.is . „Þeir hafa sagt að þetta flug sé á áætlun,“ segir hann og vísar til kanadíska flugfélagsins WestJet. „Ef það verður eitthvað vandamál þá verðum við að finna aðra leið til að koma þeim heim.“ Morgunblaðið greindi frá því í gær að utanríkisráðuneytið hvetti íslenska ríkisborgara til að huga að heimför frá Kúbu. Ekki var þó reynt að flýta heimferð íslenska hópsins á vegum Heimsferða. Frétt af mbl.is Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vita ekki hvernig ástandið verður Íslendingur sem lengi var búsettur á Havana sagði í samtali við mbl.is í gær að fólk hefði haft orð á því að staðan þar væri orðin verri en eftir fall Sovétríkjanna. Verð á nauðsynjavörum hefði hækkað og rafmagnsleysi aukist verulega í höfuðborginni sökum eldsneytisskorts. Engin olía berst nú lengur frá Venesúela og ekki heldur frá Mexíkó – vegna hótana Bandaríkjanna um að leggja á landið tolla. „Það vantar flugvélaeldsneyti á Kúbu og ég hef heyrt að einhver flugfélög séu að millilenda á öðrum Karíbahafseyjum eins og Dóminíska til að taka eldsneyti til þess að fara svo til Kúbu og fljúga fólkinu heim. Ég held að það sé núna planið núna næstu daga á meðan verið er að koma fólki heim frá Kúbu, af því maður veit ekki hvernig ástandið verður þarna eftir einhverja daga eða vikur,“ segir Tómas. Frétt af mbl.is Segir stöðuna verri en eftir fall Sovétríkjanna Allt verið í sóma Allt hefur gengið vel með hópinn úti og ekkert hefur komið upp, að hans sögn, en íslenskur fararstjóri er þeim innan handar. „Það hafa allir verið ánægðir. Þau hafa bæði verið í Varadero og Havana og það hefur allt verið í sóma.“ Allt hafi verið samkvæmt áætlun hingað til. „Síðan hefur maður haft áhyggjur af því að það gæti gerst eitthvað með heimflugið, en eins og er eru flugfélögin að koma fólki heim, en ekki bæta við.“ Það stóð ekki til að fara í fleiri ferðir til Kúbu á næstunni á vegum Heimsferða þannig að ekki hefur þurft að aflýsa ferðum, að sögn Tómasar. „Eftir það sem gerðist í Venesúela, þegar Bandaríkjamenn fóru þar inn, þá fór maður að hafa áhyggjur af því að eitthvað gæti gerst, en hingað til hefur þetta verið í lagi og við vonum bara að það verði þannig. En við förum allavega ekki að fara af stað í aðra ferð að svo komnu máli,“ segir Tómas og vísar þar til loftárása Bandaríkjamanna á Kúbu í upphafi árs, þegar Nicolás Maduro, fyrrverandi forseti Venesúela, var handsamaður og fluttur úr landi. Frétt af mbl.is Maduro tekinn höndum og fluttur frá Venesúela Frétt af mbl.is Vilja knýja fram stjórnarskipti á Kúbu Fer hörðum orðum um stjórnendur Alvotech Arteta sér ekki eftir því Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Leitast eftir skilvirkara ESB Hamnet með eitt flottasta atriði kvikmyndasögunnar Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Hlutur þolenda verði réttur með bótum Hlutur vöggustofubarna verði réttur Bústaðurinn brann til kaldra kola Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Harður árekstur á Suðurlandsvegi Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Þar sem enginn vill halda sín jól Brunagaddur á nokkrum stöðum Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fer hörðum orðum um stjórnendur Alvotech Arteta sér ekki eftir því Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Leitast eftir skilvirkara ESB Hamnet með eitt flottasta atriði kvikmyndasögunnar Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Valhöll verður afhent í sumar Björgunarsveitir kallaðar út á Snæfellsnesi Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Hvernig mun framtíð Evrópu og Bandaríkjanna líta út? Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Harður árekstur á Suðurlandsvegi Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Þar sem enginn vill halda sín jól Brunagaddur á nokkrum stöðum Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum

Share this article