Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu

  • What: The Icelandic Ministry of Foreign Affairs is advising Icelandic citizens to consider leaving Cuba.
  • Impact: Icelandic tourists in Cuba may face increased difficulties due to power outages and shortages of essential goods.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.2.2026 | 13:20 Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Skip mexíkóska sjóhersins kemur að höfn í Havana með mannúðaraðstoð. AFP Eigendur Kúbuferða urðu varir við aukið rafmagnsleysi og aukinn skort á nauðsynjavörum þar í landi um haustið 2024. Þannig töldu þeir ekki öruggt að halda áfram ferðum þangað í bili og deildu í kjölfarið upplifun sinni með stjórnendum Heimsferða, sem þó tóku ákvörðun um að fara þangað með hóp Íslendinga í byrjun febrúar. Morgunblaðið greindi frá því fyrir helgi að utanríkisráðuneytið hvetti íslenska ríkisborgara til að huga að heimför frá Kúbu. Frétt af mbl.is Íslendingar hvattir til að huga að heimför „Eftir að Bandaríkin fóru inn í Venesúela í janúar varð sú mikla breyting að Kúbverjar misstu olíuna algjörlega. Ég tala bara fyrir okkur en við hefðum ekki farið eftir það,“ segir Guðni. Ljósmynd/Aðsend Hafði haft áhyggjur Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða, sagði í viðtali við mbl.is í kjölfarið að allt hefði gengið vel hjá hópnum úti, ekkert komið upp og íslenskur fararstjóri væri hópnum innan handar. Eftir innrás Bandaríkjanna í Venesúela í janúar hefði hann þó haft einhverjar áhyggjur en ekki þótt ástæða til að flýta heimferð hópsins. Flugferðum til og frá eyríkinu hefði verið aflýst sökum eldsneytisskorts og ekki væri því flogið lengur með farþega til Kúbu heldur væru þeir aðeins sóttir, eins og í tilfelli ferðalanganna á vegum Heimsferða. Frétt af mbl.is Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Guðni Kristinsson og Juan Carlos Suarez Leyva eru eigendur Kúbuferða. Ljósmynd/Aðsend „Stjórnvöld á Kúbu setja upp glansmynd“ Guðni Kristinsson og Juan Carlos Suarez Leyva, eigendur Kúbuferða, hafa varið miklum tíma á Kúbu en Juan Carlos er sjálfur þaðan. Árið 2017 hófu þeir að skipuleggja ferðir þangað. „Munurinn sem við höfum séð frá því við byrjuðum er að það hefur verið rosalega mikil hnignun síðustu ár. Þarna um haustið 2024 var komið að endapunkti fyrir okkur í bili. Bara í bili, okkur langar alltaf að fara aftur með fólk, en ástandið verður að breytast áður en við gerum það,“ segir Guðni. Þeir hafi séð auglýsingu Heimsferða á samfélagsmiðlum í maí og sett sig í samband við fyrirtækið um leið. „Bara til að lýsa okkar reynslu af hlutunum og að við teldum þetta ekki öruggt. Við buðumst til að koma og hitta þá ef þeir vildu og að það væri alltaf hægt að tala við okkur. Þeir þökkuðu okkur fyrir að láta sig vita en tóku svo þessa ákvörðun,“ segir hann. „Eftir að Bandaríkin fóru inn í Venesúela í janúar varð sú mikla breyting að Kúbverjar misstu olíuna algjörlega. Ég tala bara fyrir okkur en við hefðum ekki farið eftir það. Ferðin hófst í byrjun febrúar og, jú, mér finnst líklegt að tengiliðurinn þeirra á Kúbu hafi sagt að þetta væri ekkert mál. Auðvitað vilja stjórnvöld fá ferðamenn en það þarf að átta sig á að stjórnvöld á Kúbu setja upp glansmynd sem maður þarf að sjá í gegnum,“ segir Guðni enn fremur, en Kúbuferðir hafa gefið út yfirlýsingu vegna málsins . „Þeir vilja fela og eru með visst handrit fyrir ferðamenn, sem er fallegt og hluti af Kúbu en síðan er raunveruleikinn líka þarna á bak við,“ segir Guðni. Ljósmynd/Aðsend „Visst handrit fyrir ferðamenn“ Sem fyrr segir buðu þeir Guðni og Juan Carlos upp á ferðir til Kúbu fram á haust árið 2024. „Þá fórum við að taka eftir alvarlegu rafmagnsleysi og annarri hnignun sem við vorum farnir að sjá alls staðar,“ segir Guðni. „Mjög skýrt dæmi um það var þegar við lentum í Varadero, þar sem túristarnir eru, þar var allt upplýst. Við keyrðum síðan beint til höfuðborgarinnar Havana og þar var algjört myrkur.“ Aðspurður segir hann stjórnvöld hafa verið að reyna að fela raunveruleikann frá túristum með því að halda rafmagni í Varadero, helsta ferðamannastaðnum. „Kerfið á Kúbu virkar þannig að það eru bara tvö rútufyrirtæki á vegum ríkisins og hótel eru í eigu hersins, eða ríkisins. Síðan eru einkagistingar sem við notuðum, bæði í Havana og úti á landi. Það er fólk sem er að reyna að bjarga sér og er með frábæra gistingu og þjónustu. Við reyndum alltaf að nota það. Þetta er bara allt annað kerfi. Þeir vilja fela og eru með visst handrit fyrir ferðamenn, sem er fallegt og hluti af Kúbu en síðan er raunveruleikinn líka þarna á bak við.“ Frétt af mbl.is Kyndir undir kreppu á Kúbu Á árunum 2017-2024 hafa tæplega 1.000 manns farið til Kúbu á vegum Kúbuferða en venjan var að fara þrjár til fimm hópferðir þangað á ári. Ljósmynd/Aðsend Hafa gefið Kúbverjum fjölmörg gleraugu og heyrnartæki Á árunum 2017-2024 hafa tæplega 1.000 manns farið til Kúbu á vegum Kúbuferða en venjan var að fara þrjár til fimm hópferðir þangað á ári. Ferðirnar byggja að sögn Guðna á því að upplifa „alvöru Kúbu“. Þannig er gist á heimilum fólks í stað hótela og átt í miklum samskiptum við Kúbverja. Þá voru þeir með prógram þar sem þeir tóku með sér gleraugu og heyrnartæki frá Íslandi til að gefa Kúbverjum sem höfðu ekki efni á slíku sjálfir. „Þegar ættingi deyr þá hendir fólk oft ekki heyrnartækjum viðkomandi heldur geymir þau. Við fengum fólk til að gefa okkur heyrnartækin þannig að einhver annar á Kúbu gæti notað þau, með batteríum og öllu. En þetta þurftum við að gera á hátt sem stjórnvöld tækju ekki eftir,“ segir Guðni og tekur dæmi: „Heyrnartæki ömmu minnar, sem lést fyrir mörgum árum – það er gamall maður í suðurhluta Kúbu sem er með þau enn þá í dag. Carlos er frá Kúbu og á fjölskyldu þar þannig að við erum með góða tengingu inn í landið.“ Frétt af mbl.is Segir stöðuna verri en eftir fall Sovétríkjanna Ljósmynd/Aðsend Ljósmynd/Aðsend Ljósmynd/Aðsend Bretar senda flugmóðurskip inn á N-Atlantshaf Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Segist ekki lengur þekkja landið sitt Sú besta gæti leikið sína fyrstu landsleiki Fimm slasaðir í Sviss og tugir fluttir á brott Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert „Það er aldrei of seint“: FBI rannsakar hanska Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Obama tjáir sig um myndskeiðið í fyrsta sinn Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Íslendingar best klæddir í heimi Slökkvilið „með lífið í lúkunum“ vegna sinuelda Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Bretar senda flugmóðurskip inn á N-Atlantshaf Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Segist ekki lengur þekkja landið sitt Sú besta gæti leikið sína fyrstu landsleiki Fimm slasaðir í Sviss og tugir fluttir á brott Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Telur andstöðu við friðlýsingu ekki skaða samstarf Telur skólann vera að bregðast syni sínum Legurýmin gætu nýst von bráðar Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Íslendingar best klæddir í heimi Slökkvilið „með lífið í lúkunum“ vegna sinuelda Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri

Share this article