Innlent | mbl | 17.2.2026 | 13:20 Íslendingarnir snúa heim í dag Tómas segir Heimsferðir hafa boðið upp á ferðir til Kúbu frá því fyrir bankahrun árið 2008. AFP/Yamil Lage Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða, segir það rétt að eigendur Kúbuferða hafi varað sig við ástandinu þar í landi. Viðvörunin hafi þó snúist um afskipti stjórnvalda, ekki skort á eldsneyti eða nauðsynjavörum. Í samtali við mbl .is segir hann það ekki hafa verið fyrr en eftir innrás Bandaríkjanna í Venesúela í janúar sem flugfélögin hættu mörg að bjóða upp á ferðir til Kúbu vegna eldsneytisskorts. Tuttugu manna hópurinn, sem flaug á vegum Heimsferða þann 2. febrúar, ferðast í dag með flugvél WestJet frá Varadero á Kúbu til Toronto í Kanada, eins og áætlað var. Hann mun gista eina nótt í Kanada og fljúga þaðan heim til Íslands á morgun. Í viðtali á mbl .is í gær sagðist annar eigenda Kúbuferða, Guðni Kristinsson, hafa orðið var við aukið rafmagnsleysi og aukinn skort á nauðsynjavörum þar í landi um haustið 2024. Þeir hafi ekki talið öruggt að halda áfram ferðum þangað og í kjölfarið deilt upplifun sinni með stjórnendum Heimsferða, sem þó tóku ákvörðun um að fara þangað með hóp Íslendinga í byrjun febrúar. Frétt af mbl.is Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Frétt af mbl.is Senda mat og heilbrigðisvörur til Kúbu Ferðaiðnaðurinn haldið sér þrátt fyrir kommúnistastjórn Tómas segir Heimsferðir hafa boðið upp á ferðir til Kúbu frá því fyrir bankahrun árið 2008, þegar heilu vélarnar flugu frá þeim til Karabíska hafsins. Í seinni tíð hafi verið boðið upp á minni ferðir með áætlunarflugi, eins og í tilfelli hópsins sem nú er á heimleið. Ferðirnar hafi alltaf gengið vel fyrir sig og því hafi hann ekki talið ástæðu til að breyta áætlun hópsins eftir spjallið við Juan Carlos Suarez Leyva , annars eigenda Kúbuferða, heldur bara þakkað honum fyrir ábendinguna. „Þeir voru ekkert að tala um eldsneytisskort við okkur á þeim tíma. Carlos var bara að gagnrýna stjórnvöld á Kúbu við okkur, að þeir væru glæpamenn eða þannig. Við vitum það svo sem hvernig stjórnarfarið hefur verið á Kúbu í öll þessi ár,“ segir hann. Þrátt fyrir kommúnistastjórn í landinu hafi ferðaþjónustan alltaf haldið sér. „Þeir [Kúbuferðir] voru að selja ferðamönnum heimagistingu og mér skildist á Carlos að hann væri kominn á hálfgerðan bannlista út af gagnrýni á stjórnvöld. Við viljum ekkert vera að taka neinar áhættur en þarna vorum við með hóp sem var að fara og það bendir ekkert til annars en að það sé allt í lagi,“ segir Tómas. „Svo sögðu þeir okkur skömmu seinna að Guðni væri góður fararstjóri og að við ættum endilega að hafa samband við hann ef við vildum fá hann til liðs við okkur. En við vorum náttúrulega búnir að ganga frá þeim málum.“ Frétt af mbl.is Íslendingar hvattir til að huga að heimför Frétt af mbl.is Kyndir undir kreppu á Kúbu Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða. mbl.is/Golli „Auðvitað sjá menn ástandið“ „Auðvitað hlustuðum við á hvað þessir menn voru að segja og vorum ekki að taka neinar aukaferðir eða neina áhættu. En á þeim tíma var ekki búið að ráðast inn í Venesúela, sem Kúbverjar hafa verið að fá eldsneyti frá,“ heldur Tómas áfram. Höfðuð þið engar áhyggjur eftir innrásina í janúar? „Nei. Flugfélagið sagði að það yrði flogið og að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af því, enda var ekki talað um þennan skort, þó að þeir hafi farið inn í Venesúela þá var ekki komið strax að því að það yrði allt sett á hliðina á Kúbu í leiðinni.“ Aðspurður segist Tómas hafa heyrt frá fararstjóra hópsins að ferðin hafi gengið vel hingað til. „Auðvitað sjá menn ástandið, sérstaklega inni í Havana, hvernig þetta viðskiptabann Bandaríkjamanna er farið að há Kúbu. En það hefur allt gengið upp eins og til var að ætlast en það er greinilegt að menn eru ekki að stíla inn á ferðalög þarna á næstunni.“ Frétt af mbl.is Maduro tekinn höndum og fluttur frá Venesúela Frétt af mbl.is Segir stöðuna verri en eftir fall Sovétríkjanna Íslendingarnir snúa heim í dag Hádegisveisla í Húsó: Saltkjöt og baunir Umferðaróhöppum í Úlfarsárdal fjölgar Efnilegur HK-ingur til Danmerkur Milla mætti með tískuvagn Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Framlagið hækkað Legurýmin gætu nýst von bráðar Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Íslendingarnir snúa heim í dag Hádegisveisla í Húsó: Saltkjöt og baunir Umferðaróhöppum í Úlfarsárdal fjölgar Efnilegur HK-ingur til Danmerkur Milla mætti með tískuvagn Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Besti árangur Íslendings í 20 ár Framlagið hækkað Íslendingarnir snúa heim í dag Hvetja íslensk stjórnvöld til dáða Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum