- What: Juan Carlos Suarez Leyva, co-owner of Kúbuferða, has issued a statement regarding alleged misrepresentations by Tómas J. Gestsson, CEO of Heimsferða.
- Impact: The statement addresses claims made in an interview with mbl.is regarding criticisms of the Cuban government.
Innlent | mbl | 22.2.2026 | 22:30 Sendir frá sér yfirlýsingu vegna Kúbuferða Eigendur Kúbuferða, Carlos og Guðni Kristinsson. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Kúba Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Senda mat og heilbrigðisvörur til Kúbu Íslendingarnir snúa heim í dag Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Þríhjólin orðin kóngar götunnar » Fleiri tengdar fréttir Juan Carlos Suarez Leyva, annar eigandi Kúbuferða, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þess sem hann segir rangfærslu Tómasar J. Gestssonar, framkvæmdastjóra Heimsferða, í viðtali við mbl.is. Í viðtalinu hélt Tómas því fram að þegar eigendur Kúbuferða vöruðu hann við aðstæðum þar í landi vegna ferðar sem þegar hafði verið skipulögð, hefði Carlos gagnrýnt stjórnvöld á Kúbu og líkt þeim við glæpamenn. Þá hefði honum einnig skilst að Carlos væri kominn á hálfgerðan bannlista út af gagnrýni á stjórnvöld. Eftir birtingu viðtalsins áréttar Carlos aftur á móti að hann hafi aldrei haldið þessu fram. Segir hann Tómas hafa staðfest að um misskilning hafi verið að ræða og að hann hefði ruglað Carlos saman við annan einstakling sem heimsótti skrifstofu Heimsferða og varaði Tómas einnig við aðstæðum á Kúbu. Frétt af mbl.is Íslendingarnir snúa heim í dag Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa hér að neðan: Í grein sem birt var á mbl.is þann 17. febrúar 2026 (Íslendingarnir snúa heim í dag) er vísað til mín og mér eignuð ummæli í tengslum við samskipti við Heimsferðir um fyrirhugaðar ferðir til Kúbu. Ég tel mikilvægt að leiðrétta þá framsetningu sem þar kom fram. Öll samskipti mín við Heimsferðir í maí 2025 voru skrifleg og aðeins í tölvupóstum dagana 24., 27. og 30. maí. Þar setti ég fram upplýsingar um aðstæður á vettvangi á þeim tíma, meðal annars um aukið rafmagnsleysi, skort á nauðsynjavörum og almennar áskoranir sem gátu haft áhrif á skipulag og öryggi ferðamanna. Markmið mitt var að deila reynslu okkar af starfi á staðnum og vekja athygli á raunverulegum rekstrar- og innviðavanda á Kúbu. Í greininni eru mér hins vegar eignuð ummæli sem ég hef aldrei látið falla. Ég hef aldrei haldið því fram að ég væri á nokkrum bannlista né notað það orðalag sem þar er haft eftir mér. Slíkar tilvísanir eiga ekki við mig og endurspegla ekki þau skriflegu samskipti sem áttu sér stað. Í samskiptum eftir birtingu greinarinnar hefur Tómas J. Gestsson staðfest að um misskilning hafi verið að ræða og að hann hafi ruglað mér saman við annan einstakling sem heimsótti skrifstofu þeirra. Þær fullyrðingar sem tengdar voru við mitt nafn eiga því ekki við mig. Ég hef starfað við skipulagningu ferða til Kúbu frá árinu 2017 og lagt ríka áherslu á ábyrga og faglega ferðaþjónustu. Allar ábendingar sem ég hef komið á framfæri hafa snúist um hagsmuni ferðamanna og raunverulegar aðstæður á vettvangi. Þar sem greinin nafngreinir mig hefur þessi rangfærsla verið tengd við mitt nafn í opinberum leitarniðurstöðum. Það er mikilvægt fyrir mig, bæði persónulega og faglega, að réttar upplýsingar liggi fyrir. Þessi yfirlýsing er sett fram til að tryggja að staðreyndir málsins séu skýrar og að misskilningur verði leiðréttur. Virðingarfyllst, Juan Carlos Suarez Leyva Eigandi / Kúbuferðir / 2Go Iceland Travel / Go ehf. Tengdar fréttir Kúba Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Senda mat og heilbrigðisvörur til Kúbu Íslendingarnir snúa heim í dag Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Þríhjólin orðin kóngar götunnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Krefst rannsóknar á flugferðum Andrews Ófremdarástand í Mexíkó: Flugumferð raskast Gífuryrði háskólakennara um Blökastið„“ Höfum öll eitthvað fram að færa Einstakur árangur Norðmannsins Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forstjóri Norðuráls: Tekur 90 daga Það eina sem heldur Pútín á lífi Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Meginútflutningsvörur Íslands hólpnar í bili Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Krefst rannsóknar á flugferðum Andrews Ófremdarástand í Mexíkó: Flugumferð raskast Gífuryrði háskólakennara um Blökastið„“ Höfum öll eitthvað fram að færa Einstakur árangur Norðmannsins Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sinueldurinn hefur verið slökktur „Almenningur ekki að hjálpa til“ Vilja rannsaka hvort Andrew hafi framið landráð Sinueldurinn slökktur norðanmegin Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka