Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði

  • What: Analysis of housing rental prices in Iceland
  • Impact: Economic trends in the housing sector
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.5.2026 | 10:05 Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Jónas Atli segir leiguverð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hafa fylgt fasteignaverðinu undanfarið. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Allir sögðu nei nema Heiða Björg Skipulagið andstætt vilja íbúanna Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis » Fleiri tengdar fréttir Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS, segir leiguverð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hafa fylgt fasteignaverðinu undanfarið. Vísitala leiguverðs hjá HMS hefur farið hækkandi og var 127,9 stig í mars síðastliðnum en 120,3 stig í mars í fyrra. Af því tilefni var Jónas Atli spurður hvað skýrði hækkun leiguverðs. „Að miklu leyti má skýra hraðar hækkanir á leiguverði á höfuðborgarsvæðinu með langtímasambandi á milli leiguverðs og fasteignaverðs. Til lengri tíma er búist við að fasteigna- og leiguverð fylgist að, þar sem þessir markaðir eru samtengdir,“ segir hann. Hækkanir leiða til hækkana „Til dæmis má búast við að hækkanir á leiguverði leiði til hærra húsnæðisverðs, þar sem eftirspurn eftir íbúðum eykst þegar leiguíbúðir verða að álitlegum fjárfestingarkosti. Sömuleiðis má búast við að verðhækkun á húsnæði geti þrýst leiguverði upp, þar sem leigusalar munu reyna að fá ákveðna lágmarksávöxtun á leiguíbúðum í sinni eigu,“ segir Jónas Atli og vísar til skýringarmyndar sem er endurgerð hér fyrir ofan. Myndin sýnir þróun leiguverðs, í hlutfalli við fasteignaverð, frá 2011. „Myndin er fengin með því að skeyta saman samsettum vísitölum HMS á íbúða- og leiguverði sem eru aðgengilegar á vef HMS. Vísitalan fyrir leiguverð mælir bara verðþróun á höfuðborgarsvæðinu. Eins og sést er hlutfall leigu af fasteignaverði lágt í sögulegu samhengi þessa stundina, en hefur hækkað nokkuð eftir að hafa náð lágpunkti fyrir fjórum árum,“ segir Jónas Atli til skýringar. Frétt af mbl.is Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Frétt af mbl.is Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Stuðlar að hækkunum „HMS spáir ekki fyrir um verðþróun á fasteigna- og leigumarkaði. Hins vegar tel ég að lágt hlutfall leiguverðs á móti fasteignaverði hafi stuðlað að hröðum leiguverðshækkunum umfram fasteignaverðshækkanir á síðustu fjórum árum. Áframhaldandi þróun mun svo ráðast af eftirspurn eftir leiguíbúðum, en breytingar í henni eru að miklu leyti drifnar áfram af sveiflum í aðflutningi vinnuafls til landsins,“ segir Jónas Atli. Fjallað var um aðflutning erlendra ríkisborgara til höfuðborgarsvæðisins í Morgunblaðinu í gær. Kom þar fram að aðflutningur erlendra ríkisborgara hefði borið uppi íbúafjölgun á höfuðborgarsvæðinu á síðustu árum, hlutfallslega mest í Reykjavík. Þannig hefði íslenskum ríkisborgurum í Reykjavík fjölgað úr 108.200 í 109.870 frá fyrsta ársfjórðungi 2020, eða um 1.670. Erlendum ríkisborgurum fjölgaði nærri sjöfalt meira, úr 18.880 í 30.370, eða um 11.490. Heimild:HMS Mannaflsfrekar greinar Vísbendingar eru um að farið sé að draga úr aðflutningi erlendra ríkisborgara til landsins, eins og sagt var frá í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag. Einn helsti áhrifaþátturinn í því efni er eftirspurn eftir erlendu vinnuafli í ferðaþjónustu og byggingargeiranum en báðar eru greinarnar mannaflsfrekar. Fjármagnskostnaður er svo enn annar áhrifaþáttur en næsta vaxtaákvörðun Seðlabankans er á miðvikudaginn í næstu viku. Haldist vextir áfram háir mun það að öðru óbreyttu hægja á uppbyggingu íbúða. Leigufélög hafa verið að kaupa nýjar íbúðir sem eru byggðar við núverandi fjármagnskostnað. Til dæmis keypti Ívera íbúðafélag 16 íbúðir til útleigu á Nauthólsvegi 79 í Reykjavík, gegnt Natura-hótelinu, og þá keypti Alma íbúðir til útleigu á Heklureitnum í Reykjavík. Húsaleiga í þessum íbúðum mun endurspegla fjármagnskostnað. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Allir sögðu nei nema Heiða Björg Skipulagið andstætt vilja íbúanna Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur 310 milljóna hús og örlítið af skriðdrekaolíu Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Verður ekki næsti knattspyrnustjóri United Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Varar við verktöfum Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði „Allt ægilega flókið bla bla“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg Nýjast á mbl.is » Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur 310 milljóna hús og örlítið af skriðdrekaolíu Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Verður ekki næsti knattspyrnustjóri United Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Veikleiki í Innu: „Lítum málið mjög alvarlegum augum“ Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði „Allt ægilega flókið bla bla“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg

Share this article