Innlent | Morgunblaðið | 29.4.2026 | 8:00 Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Ari Edwald Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Það er staðreynd sem ekki verður lengur horft fram hjá: húsnæðismarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu er brotinn. Og verst er að hann er brotinn á kostnað komandi kynslóða. Nýleg gögn sýna að aðeins 3,2% einstaklinga um þrítugt ráða óstudd við að kaupa sína fyrstu íbúð. Þetta er ekki jaðartala. Þetta er kerfisbilun. Á sama tíma hefur fermetraverð íbúða fyrstu kaupenda á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 149% á tíu árum, langt umfram launaþróun. Þröskuldurinn inn á fasteignamarkaðinn hefur því hækkað svo mikið að fyrir flesta er hann orðinn óyfirstíganlegur. Skipulag sem þjónar ekki fólki Ástæðan liggur ekki aðeins í vöxtum eða efnahagsástandi. Hún liggur fyrst og fremst í skipulagi Reykjavíkurborgar. Gögn sýna að skortur er á litlum íbúðum, einmitt þeim sem fyrstu kaupendur þurfa. Í stað þess hefur verið byggt of mikið af stærri og dýrari eignum sem ungt fólk ræður einfaldlega ekki við. Á sama tíma hafa ofurþéttingarstefna, ósveigjanleg vaxtarmörk svæðisins og álögur vegna innviða og krafna borgarinnar stórhækkað verð á húsnæði. Frá því Reykjavík setti sér þessi þröngu vaxtarmörk árið 2015, í samningum við önnur sveitarfélög, hefur húsnæði leitt verðbólguþróun í mánaðarlegum verðbólgumælingum, í níu tilvikum af hverjum tíu. Þetta er ekki tilviljun. Þetta er afleiðing stefnu Samfylkingarinnar í Reykjavík. Samkvæmt stefnu Miðflokksins þarf að tryggja nægt framboð lóða, hraðari uppbyggingu og raunverulegt aðgengi almennings að húsnæði. Það sem við sjáum núna í Reykjavík er hið gagnstæða, kerfi sem þrengir að framboði og hækkar verð. Borgarlínan er rangt forgangsval Á sama tíma og ungt fólk er útilokað frá húsnæðismarkaði hyggjast borgaryfirvöld, undir forystu Samfylkingarinnar, setja gríðarlega fjármuni í borgarlínuna. Borgarlínan er eitt stærsta og kostnaðarsamasta samgönguverkefni sem ráðist hefur verið í á höfuðborgarsvæðinu, án þess að árangur þess sé tryggður. Tálsýn um að enn frekari þétting byggðar og tafir fyrir þann samgöngumáta sem 90% fólks munu áfram kjósa kemur í veg fyrir að borgaryfirvöld snúi af villu síns vegar í skipulags- og húsnæðismálum. Í stað þess skal ástandið plástrað með sífellt meiri áherslu á félagsleg úrræði, þar sem fólk ráði ekki við að eignast eigið húsnæði. Spurningin sem enginn virðist vilja svara er þessi: Hvað kostar þetta í tækifærum? Hver króna sem fer í að þrengja að lóðaframboði, hækka byggingarkostnað eða beina fjármunum frá uppbyggingu húsnæðis er króna sem fer ekki í að tryggja ungu fólki þak yfir höfuðið. Við stöndum frammi fyrir því að samfélaginu hefur verið gjörbreytt þannig að aðeins hluti þeirra sem fæðast í dag mun að óbreyttu nokkurn tímann eignast eigið húsnæði, tækifæri sem fyrri kynslóðir nutu. Þetta er breyting af sögulegri stærðargráðu í boði Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ójöfnuður sem erfist Þegar aðeins fáir komast inn á markaðinn án aðstoðar fjölskyldu verður húsnæðiskerfið vél sem framleiðir ójöfnuð. Þeir sem geta hjálpað börnum sínum tryggja þeim framtíð. Aðrir sitja eftir. Þetta er ekki tilviljun. Þetta er afleiðing lóðaskorts og stefnu meirihlutans í Reykjavík, stefnu sem horfir fram hjá raunverulegum þörfum fólks og einblínir á stór og kostnaðarsöm verkefni, á sama tíma og fólki er sagt að „þetta sé því fyrir bestu“. Val sem þarf að endurskoða Við getum ekki bæði sagt að húsnæðiskreppan sé alvarleg og haldið áfram að forgangsraða eins og ekkert sé. Við verðum að velja. Veljum við að tryggja ungu fólki aðgang að húsnæði eða halda áfram á braut þar sem aðeins 3,2% komast inn á markaðinn án aðstoðar? Það er engin millileið. Ef við ætlum að standa með komandi kynslóðum verðum við að breyta um stefnu og setja húsnæðismál í forgang. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi 16 konur létust í lestarslysinu Arsenal án tveggja lykilmanna í Madríd Aðsend grein: Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Ferðamenn ganga of nærri villtum dýrum Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mesta magn í sögunni Þetta segja framboðin í borginni um menntamálin Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Meintir risaafslættir á heitu vatni Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Meintir risaafslættir á heitu vatni Vesturlandsvegur skal varinn Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 „Ég hef verið í byssudótinu í 40 ár“ Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Maðurinn fannst látinn við Háafoss Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi 16 konur létust í lestarslysinu Arsenal án tveggja lykilmanna í Madríd Aðsend grein: Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Ferðamenn ganga of nærri villtum dýrum Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Ekki kosningabrella Furstadæmin segja skilið við OPEC Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Meintir risaafslættir á heitu vatni Vesturlandsvegur skal varinn Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 „Ég hef verið í byssudótinu í 40 ár“ Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Maðurinn fannst látinn við Háafoss Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“