Innlent | mbl | 13.5.2026 | 13:28 MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku á hryssum Starfsleyfið takmarkast við blóðtöku á 4.900 hryssum. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Matvælastofnun (MAST) hefur veitt lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum í samræmi við lög um velferð dýra og reglugerð um vernd dýra notuð í vísindaskyni. Starfsleyfið gildir til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar . Þar segir að ákvörðunin byggi á heildstæðu mati á þeim gögnum sem komi fram í umsókn Ísteka ásamt viðbótarupplýsingum sem óskað hafi verið eftir frá fyrirtækinu. Áskilur sér rétt til að endurskoða leyfið „Leyfið er einungis gefið út til framleiðslu PMSG (eCG) fyrir notkun þar sem staðganga annarra lyfja er ekki vísindalega fullnægjandi. Eins eru sett inn viðbótarskilyrði til að fyrirbyggja blóðleysi einstakra hryssa. Stofnunin áskilur sér rétt til að endurskoða leyfið ef frekari upplýsingar koma fram á starfsleyfistíma, m.a. í yfirstandandi áhættumati Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) um velferð blóðmera,“ segir í tilkynningunni. Þá kemur fram að Matvælastofnun sinni ítarlegu eftirliti með framkvæmd blóðtöku og velferð hryssa. Í nýju starfsleyfi séu sett aukin skilyrði sem feli m.a. í sér að leyfishafi skuli fylgjast skipulega með blóðhag hverrar hryssu í blóðtöku á meðan á blóðtöku stendur. Skylt sé að veita hryssum hvíld frá blóðtöku ef merki um blóðleysi komi fram. Skilyrðinu sé ætlað að tryggja enn betri velferð og lágmarka mögulegan skaða af blóðtöku. Leyfið takmarkast við blóðtöku á 4.900 hryssum „Virka lyfjaefnið eCG er unnið úr blóði hryssa og er nýtt til lyfjaframleiðslu. Við ákvörðun um veitingu starfsleyfisins var m.a. horft til þess að ekki eru til fullnægjandi staðgöngulyf fyrir ákveðna notkun lyfsins. Í umsókn um starfsleyfið var sótt um leyfi til blóðtöku á allt að 10.000 hryssum. Þar sem staðganga er til staðar í stórum hluta tilvika þar sem PMSG (eCG) er notað, ásamt því að ekki liggja fyrir upplýsingar um þörf á aukinni innlendri framleiðslu eCG, taldi Matvælastofnun ekki forsendur til að verða við þeim fjölda hryssa. Starfsleyfið takmarkast því við blóðtöku á 4.900 hryssum. Fyrirtækið hefur verið upplýst um þær auknu kröfur sem starfsleyfið felur í sér og ber ábyrgð á að starfsemi þess sé í samræmi við skilyrði leyfisins á gildistíma þess,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland - Egyptaland, staðan er 16:18 X26: Oddvitar í Hafnarfirði takast á Talinn hafa látist af völdum of stórs skammts Intuens hafði sigur gegn landlækni MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Var skárri en ekkert fyrir neytendur „Ég vil svara fyrir mig núna“ Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg Nýjast á mbl.is » Ísland - Egyptaland, staðan er 16:18 X26: Oddvitar í Hafnarfirði takast á Talinn hafa látist af völdum of stórs skammts Intuens hafði sigur gegn landlækni MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Algerlega óljóst hver tók ákvörðunina Segir góðmennskuna í raun vera grimmd MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg