Innlent | mbl | 13.5.2026 | 17:20 Mætti heim til mannsins með „fóstur“ í krukku Héraðsdómur Reykjaness tekur mál Írisar fyrir. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Íris Helga Jónatansdóttir, sem ákærð hefur verið fyrir umsáturseinelti og fleiri brot gegn fjölda fólks, er alls ákærð í 68 ákæruliðum. mbl.is hefur ákæruna undir höndum. Stór hluti ákæruliðanna er vegna brota gegn fyrrverandi kærasta Írisar og sambýliskonu hans en einnig er hún ákærð vegna brota gegn foreldrum og bróður fyrrnefndrar sambýliskonu og tveimur öðrum mönnum og dætrum þeirra. Frétt af mbl.is Íris Helga ákærð fyrir umsáturseinelti og rangar sakargiftir Fóru saman að maka saur á bifreið Annar maður, sem fæddur er árið 1979, er einnig ákærður með Írisi en hann er sakaður um hlutdeild í ákveðnum brotum Írisar gegn fyrrverandi kærasta hennar og sambýliskonunni auk foreldra og bróður hennar. Er maðurinn sagður hafa hvatt Írisi áfram en einnig er hann sagður hafa farið með henni að maka saur á hurðarhún á bifreið fyrrverandi kærasta Írisar og sambýliskonu hans er stóð fyrir utan heimili þeirra. Ákæran er gríðarlöng og eru ákæruliðirnir hátt í sjötíu talsins eins og áður segir. Er hún meðal annars sögð hafa farið að heimili fyrrverandi kærasta síns með krukku sem hún sagði innihalda fóstur sem hún hefði misst. Hótaði hún manninum öllu illu og kom ítrekað að heimili hans, vann þar skemmdarverk og var til vandræða. Þá dreifði hún miðum og fleiru þar sem varað var við því að maðurinn væri ofbeldismaður og hefði mikið magn barnaníðsefnis í tölvu sinni. Þá bjó hún til ýmsa falska reikninga á samfélagsmiðlum þar sem áreitnin hélt áfram. Frétt af mbl.is Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Gæti hlotið þungan dóm Brot Írisar gegn foreldrum og bróður sambýliskonunnar fólust í því að hún sendi þeim skilaboð frá fölskum samfélagsmiðlareikningum þar sem hún hótaði því að eitthvað myndi koma fyrir dóttur þeirra og sambýlismanns hennar og að hún væri að fylgjast með henni öllum stundum. Þá fólust brot Írisar gegn hinum brotaþolunum meðal annars í ítrekuðu áreiti á samfélagsmiðlum, þar sem hún meðal annars bjó til reikning þar sem hún fjallaði um meinta ofbeldismenn og sagði mennina hafa gerst seka um gróft ofbeldi. Teljast brot hennar varða við ákvæði hegningarlaga um umsáturseinelti, rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir auk barnaverndarlaga brota. Á Íris yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi verði hún sakfelld en mál hennar verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Yfirlýsing frá Viðari Erni Mætti heim til mannsins með „fóstur“ í krukku Rafvæðing atvinnubíla tekur stórt stökk Einn af fyrirliðum Real Madrid orðaður við United Hefja innleiðingu bílastæðakorta á Stúdentagörðum Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Andlát: Eyvindur Erlendsson Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nýjast á mbl.is » Yfirlýsing frá Viðari Erni Mætti heim til mannsins með „fóstur“ í krukku Rafvæðing atvinnubíla tekur stórt stökk Einn af fyrirliðum Real Madrid orðaður við United Hefja innleiðingu bílastæðakorta á Stúdentagörðum Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Húsaleigan fylgir hærra íbúðaverði Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Andlát: Eyvindur Erlendsson Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki