Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, sakar Rússlandsher um að hafa skotið 800 drónum að landinu síðan á miðnætti og drepið sex manns. Tugir eru særðir. Þá segja stjórnvöld í Úkraínu að Rússar hafi gert árásir á mikilvæga innviði, svo sem lestarkerfi, orkuinnviði, opinberar byggingar og á borgaraleg skotmörk. Þetta var fyrsta stóra árás Rússlandshers eftir stutt vopnahlé um síðustu helgi sem Bandaríkin höfðu milligöngu um. Því lauk á mánudag. Framan af allsherjarinnrás Rússlandshers var mestur þungi í árásum á nóttunni. Síðustu mánuði hefur verið meira um árásir að deginum til. Zelensky telur það ekki tilviljun að Rússar geri svo umfangsmiklar árásir í dag, sama dag og Trump Bandaríkjaforseti kom til Kína. Rússar vilji draga athyglina frá þeim fundi á kostnað almennra borgara í Úkraínu. Fyrr í dag hvatti Zelensky Trump til að ræða stríðslok í Úkraínu á fundi sínum með forseta Kína á morgun.
This article describes a kinetic military threat involving a large-scale drone attack by Russian forces against Ukrainian civilian infrastructure, including railways, energy systems, and public buildings. The attack vector is the use of approximately 800 drones targeting both critical and civilian sites, resulting in casualties. No technical vulnerability, CVSS score, software versions, patches, or workarounds are discussed in the provided article.