Að minnsta kosti einn var drepinn og 20 eru særðir eftir miklar árásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Rússar hafa meðal annars gert árásir með flugskeytum og drónum. Úkraínsk stjórnvöld og bandaríska sendiráðið höfðu varað íbúa við hugsanlegum árásum og enn er íbúum ráðlagt að halda sig í loftvarnarbyrgjum. Stjórnvöld í Moskvu segja að úkraínski herinn hafi drepið 18 almenna borgara á stúdentagörðum aðfaranótt föstudags í Starobilsk. Þá eru 42 sagðir særðir. Úkraínski herinn hefur neitað því að hafa gert árás á almenna borgara og segir árásina hafa verið á hernaðarlega innviði. Pútín sagði í gær að hann hefði beðið varnarmálaráðuneytið að undirbúa miklar árásir til að hefna árásanna í Starobilsk. Sameinuðu þjóðirnar sendu frá sér tilkynningu í gær þar sem allar árásir á almenna borgara og borgaralega innviði eru fordæmdar. Þá kom fram að ekki væri hægt staðfesta upplýsingar um mannfall vegna takmarkaðs aðgangs sem Sameinuðu þjóðirnar hafa að svæðinu, en Lugansk-hérað tilheyrir Úkraínu en er hernumið að miklu leyti af Rússum. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fjölda látinna og særðra.
This article describes kinetic military attacks, including missile and drone strikes, targeting civilian infrastructure in Kyiv, Ukraine. It does not contain information about a software vulnerability, CVSS score, affected software versions, a security patch, or technical workarounds. The content is a news report on physical warfare and geopolitical events, not a technical security advisory for IT systems.