- What: Garðabær has a strong financial position and clear strategy
- Impact: Municipal services are well-managed and stable
Innlent | Morgunblaðið | 14.5.2026 | 9:00 Aðsend grein: Garðabær: Sterk staða – skýr stefna Almar Guðmundsson mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Garðabær er sterkt og vaxandi bæjarfélag. Það gerist ekki af sjálfu sér. Slíkur árangur er afleiðing skýrrar stefnu, ábyrgrar fjármálastjórnar og raunverulegs metnaðar í þjónustu við íbúa. Á þessu kjörtímabili höfum við lagt áherslu á að halda áfram að byggja upp bæinn af festu. Fjárhagur Garðabæjar er traustur, skuldahlutfall hefur lækkað og fasteignagjöld sömuleiðis. Þetta er afrakstur ábyrgrar fjármálastefnu og aðhalds til varnar sterkri stöðu á kjörtímabilinu. Það skiptir máli. Sterkur fjárhagur er ekki markmið í sjálfu sér, heldur forsenda þess að hægt sé að veita góða þjónustu, bregðast við áskorunum og ráðast í mikilvægar framkvæmdir. Það er líka mikilvægt að hafa borð fyrir báru þegar áföll eða óvænt útgjöld leggjast á sveitarfélagið. Árangurinn sést víða. Íbúar Garðabæjar eru ánægðir með þjónustu bæjarins. Leikskólamálin hafa verið styrkt með auknum sveigjanleika, betra starfsumhverfi og mjög góðu aðgengi að leikskólaplássum. Í grunnskólunum er unnið af metnaði, með áherslu á námsárangur, vellíðan og stuðning við börn sem þurfa á honum að halda. Garðabær er skólabær og það viljum við áfram vera og af því erum við stolt. Við höfum líka lagt aukna áherslu á þjónustu við eldri borgara, fólkið sem byggði þennan bæ. Ný félagsaðstaða hefur verið tekin í notkun á Álftanesi, unnið hefur verið að endurbótum á félagsstarfi og áfram hefur verið unnið að því að fjölga fjölbreyttum húsnæðisvalkostum fyrir eldra fólk í nálægð við þjónustu. Fram undan er mikilvæg uppbygging nýs hjúkrunarheimilis sem verður opnað árið 2029. Þar verða um 100 hjúkrunarrými og við erum svo sannarlega tilbúin og vel undirbúin þannig að sú mikilvæga uppbygging gangi vel fyrir sig. Í nágrenni heimilisins verða íbúðir fyrir eldra fólk og því verður til lífsgæðakjarni í Vetrarmýri. Síðar á árinu úthlutum við einnig um 20 raðhúsaeiningum í Hnoðraholti fyrir eldri íbúa sem vilja minnka við sig. Garðabær stendur vel, en verkefnin klárast aldrei. Við þurfum áfram að byggja upp innviði, halda þjónustunni sterkri og gæta þess að bærinn þróist í takt við þarfir íbúa. Við megum aldrei hvika frá þeirri stefnu að hafa metnað í að veita góða þjónustu við íbúa, unga sem aldna. Við hlökkum sérstaklega til að fjölga sérbýlislóðum í bænum með uppbyggingu í sunnanverðu Hnoðraholti. Og við munum hefja Vífilsstaði, perlu í umhverfi Garðabæjar, til vegs og virðingar. Kannanir sýna að Garðbæingar eru meðal ánægðustu íbúa sveitarfélaga á landinu. En skoðanakannanir skipta litlu máli, næstkomandi laugardag fer fram hin eiginlega könnun um ánægju íbúa sem öllu máli skiptir. Ég bið Garðbæinga um áframhaldandi stuðning við meirihluta Sjálfstæðisflokksins, svo við getum haldið áfram að byggja á traustum grunni, veita góða þjónustu og tryggja að Garðabær verði áfram í fremstu röð sveitarfélaga á landinu. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Samsýning nefnd eftir smásögu Rysjótt veður en veiðist vel Leita í rústum eftir árásarhrinu FÍA neitar því að standa í aðgerðum Aðsend grein: Garðabær: Sterk staða – skýr stefna Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Óstaðbundin störf og búseta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar „Við vorum algerlega búnir á því“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Ólík skuldaþróun Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Segir Kristrúnu fara með dylgjur Segir ákveðna aðila hafa farið langt yfir öll mörk Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Nýjast á mbl.is » Samsýning nefnd eftir smásögu Rysjótt veður en veiðist vel Leita í rústum eftir árásarhrinu FÍA neitar því að standa í aðgerðum Aðsend grein: Garðabær: Sterk staða – skýr stefna Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Óstaðbundin störf og búseta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Segir Kristrúnu fara með dylgjur Fólk bíður í fjögur ár eftir aðgerð Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar „Við vorum algerlega búnir á því“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Ólík skuldaþróun Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Segir Kristrúnu fara með dylgjur Segir ákveðna aðila hafa farið langt yfir öll mörk Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Eins og borgin hafi kveikt í húsinu