- What: Municipal budget for 2026 criticized for poor management
- Impact: May affect public services and infrastructure projects
Sveitarstjórnarfulltrúi A-listans í Strandabyggð segir að fjárhagsáætlun fyrir 2026 hafi verið illa unnin og að nýsamþykktar breytingar dugi ekki til að rétta af slæma fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Á fundi sveitarstjórnar Strandabyggðar í mars var lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun með umtalsverðum breytingum. Af fimmtán liðum voru breytingar gerðar á ellefu. Mesti kostnaðaraukinn frá upphaflegri áætlun er við 38 milljóna króna fjárfestingu til Sorpsamlagsins. Í viðaukanum er 32 milljónum bætt við og því í heild gert ráð fyrir 70 milljónum til Sorpsamlagsins, sem sér um sorphirðu í sveitarfélaginu. Mistök í tveimur liðum áætlunar Skýring bæjarstjórnar er sú að mistök hafi verið gerð við skráningu fjárfestingaráætlunar Sorpsamlagsins sem hljóðaði upp á 72,5 milljónir. Hið sama er uppi á teningnum þegar litið er til kostnaðar vegna fráveitu. Þar vantaði 12,7 milljónir í upphaflegri áætlun. Sveitarfélagið ætlar að draga úr framkvæmdum, meðal annars við nýtt hverfi, höfnina og framkvæmdir við götur og gangstéttir eru felldar niður. Heildarkostnaður sem sparast við frestun framkvæmda er 47 milljónir. Kostnaðarauki frá upphaflegri áætlun nemur alls 5,45 milljónum og með viðaukanum stendur hún í nær 156 milljónum. Gengið fram hjá sveitarstjórn „Fjárhagsáætlunin sem samþykkt var í desember var því greinilega illa unnin,“ segir í bókun Matthíasar Sævars Lýðssonar, fulltrúa A-listans. Með framlagningu viðaukans sé þar að auki gengið fram hjá sveitarstjórn því hún geti ekki haft áhrif á hvaða liðir séu skornir niður og hvaða liðir hækkaðir. Þorgeir Pálsson, oddviti T-listans og sveitarstjóri Strandabyggðar, sagðist deila áhyggjum Matthíasar en benti á að ekki þyrfti að mála dekkri mynd en nauðsyn krefði. Ekki væri verið að færa ábyrgð til en með viðaukanum væri dregið úr fjárfestingum, lántökum og gera tilfærslur.