Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hallar undan fæti hjá þeim stærstu

Read Full Article →

Hjá átta stærstu sveitarfélögum landsins var árið 2025 talsvert lakara en árið 2024. Þegar litið er til A-hluta sveitarfélaganna, sem er að mestu rekinn með skattfé, sést að afkoma flestra sveitarfélaga versnaði nokkuð milli ára. Staðan versnaði umtalsvert hjá Reykjavíkurborg, sem fór úr 4,7 milljarða króna afgangi árið 2024 í 5,3 milljarða króna halla árið 2025 en áætlanir fyrir árið 2025 höfðu gert ráð fyrir afgangi. Neikvæður viðsnúningur var hjá tveimur sveitarfélögum til viðbótar. Hafnarfjarðarbær, sem einnig hafði gert ráð fyrir afgangi, fór úr 117 milljóna króna afgangi í 1,2 milljarða króna halla. Akureyrabær fór úr 834 milljóna króna afgangi í 422 milljóna halla, sem þó er umfram áætlanir, sem gerðu ráð fyrir 842 milljóna króna halla. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article