Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Launakostnaður og skatttekjur aukast

Read Full Article →

Hjá átta stærstu sveitarfélögum landsins var árið 2025 talsvert lakara en árið 2024. Þegar litið er til A-hluta sveitarfélaganna, sem er að mestu rekinn með skattfé, sést að afkoma flestra sveitarfélaga versnaði nokkuð milli ára. Skatttekjur jukust um 3,1-6,1% milli ára á verðlagi ársins 2025 hjá átta stærstu sveitarfélögum landsins, mest hjá Reykjanesbæ og minnst hjá Kópavogsbæ. Skatttekjur á hvern íbúa voru mestar í Garðabæ, eða um 1.133 þúsund krónur, sem er aukning um 3,3% milli ára en milli 2023 og 2024 jukust tekjur á hvern íbúa um 7,5%. Næst kom Reykjavíkurborg með um 1.124 þúsund krónur, sem er aukning um 2,8% milli ára en milli 2023 og 2024 drógust skatttekjur á hvern íbúa saman um 0,6%. Reykjanesbær var með lægstu skatttekjurnar, eða 965 þúsund krónur á íbúa, sem er þó 4,4% aukning milli ára en milli 2023 og 2024 höfðu tekjurnar aukist um 0,7%. Skatttekjur á hvern íbúa hjá Akureyrarbæ, Mosfellsbæ og Árborg var rétt rúm milljón króna. Hjá Árborg er það samdráttur frá fyrra ári en árið þar áður nam aukningin 9,7%, sem skýrist af því að álag var sett á álagningarhlutfall útsvars árið 2024. Launakostnaður sem hlutfall af tekjum var langminnstur hjá Garðabæ, eða um 42,3%, og Kópavogsbæ, um 48,7%. Hlutfallið var 59% hjá Akureyrarbæ og 54,8% hjá Reykjavíkurborg. Akureyrabær var með flestu starfsmennina miðað við íbúafjölda, þar sem um 12,7 íbúar voru á bak við hvert stöðugildi. Næst kom Árborg með 13,7 íbúa á bak við hvert stöðugildi og Reykjavíkurborg með 14,1 íbúa á bak við hvert stöðugildi. Garðabær og Kópavogsbær voru með fæstu starfsmennina miðað við íbúafjölda, þar sem 19,9 og 19,3 íbúar voru á bak við hvert stöðugildi. Hafnarfjarðarbær, Reykjanesbær og Mosfellsbær voru með ríflega 16 íbúa á bak við hvert stöðugildi. Launakostnaður á hvern íbúa var mestur í Akureyrarbæ, eða um 974 þúsund. Næst kom Árborg með um 894 þúsund og Mosfellsbær með um 894 þúsund. Launakostnaður á hvern íbúa var lægstur hjá Reykjanesbæ, eða um 645 þúsund, og Garðabæ, eða um 680 þúsund. Launakostnaður á hvern íbúa á föstu verðlagi jókst hjá öllum sveitarfélögum, mest hjá Mosfellsbæ, um 6,5%, en minnst hjá Kópavogsbæ, um 0,2%. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article