Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hallar undan fæti hjá þeim stærstu

Read Full Article →

Hjá átta stærstu sveitarfélögum landsins var árið 2025 talsvert lakara en árið 2024. Þegar litið er til A-hluta sveitarfélaganna, sem er að mestu rekinn með skattfé, sést að afkoma flestra sveitarfélaga versnaði nokkuð milli ára. Staðan versnaði umtalsvert hjá Reykjavíkurborg, sem fór úr 4,7 milljarða króna afgangi árið 2024 í 5,3 milljarða króna halla árið 2025 en áætlanir fyrir árið 2025 höfðu gert ráð fyrir afgangi. Neikvæður viðsnúningur var hjá tveimur sveitarfélögum til viðbótar. Hafnarfjarðarbær, sem einnig hafði gert ráð fyrir afgangi, fór úr 117 milljóna króna afgangi í 1,2 milljarða króna halla. Akureyrabær fór úr 834 milljóna króna afgangi í 422 milljóna halla, sem þó er umfram áætlanir, sem gerðu ráð fyrir 842 milljóna króna halla. Fimm af átta stærstu sveitarfélögum landsins voru rekin með afgangi en afkoma þriggja þeirra versnaði milli ára. Þannig fór Reykjanesbær úr 1,1 milljarðs afgangi í 440 milljóna afgang. Mosfellsbær fór úr 694 milljóna afgangi í 293 milljóna afgang. Sveitarfélagið Árborg fór úr 1,7 milljarða afgangi í 620 milljóna króna afgang. Hjá tveimur sveitarfélögum batnaði afkoman milli ára, fór úr tæplega 4,2 milljarða króna afgangi í ríflega 4,2 milljarða króna afgang hjá Kópavogsbæ og úr 559 milljóna króna afgangi í rúmlega 2,2 milljarða afgang hjá Garðabæ. Án fjármagnsliða var afkoma allra sveitarfélaga nema Reykjavíkurborgar jákvæð. Halli af rekstri borgarsjóðs nam 3,3 milljörðum króna, sem er um 7 milljörðum króna lakari niðurstaða en áætlanir borgarinnar gerðu ráð fyrir. Hækkun lífeyrisskuldbindinga var sögð ástæða lakari afkomu. Afkoman var einnig lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir hjá Hafnarfjarðarbæ og Reykjanesbæ. Hjá Hafnarfjarðarbæ var afkoma fyrir fjármagnsliði jákvæð um 892 milljónir en áætlanir gerðu ráð fyrir 2,2 milljörðum. Hjá Reykjanesbæ var afkoman jákvæð um 1,1 milljarð en áætlanir gerðu ráð fyrir 2 milljörðum. Hjá Kópavogsbæ var afkoma fyrir fjármagnsliði langt umfram áætlun, var jákvæð um 6,2 milljarða en áætlanir gerðu ráð fyrir 2,1 milljarði. Skýrist það af því að tekjur vegna lóðaúthlutana námu 4,7 milljörðum króna, sem áætlanir gerðu ekki ráð fyrir. Afkoma Garðabæjar var einnig umfram áætlun. Var hún jákvæð um 3,9 milljarða á meðan áætlanir gerðu ráð fyrir 1,8 milljörðum, en tekjur vegna byggingaréttar voru meðal annars umfram áætlun. Þá var afkoma Árborgar jákvæð um 2,1 milljarð en áætlanir gerðu ráð fyrir 1 milljarði. Afkoma Akureyrarbæjar og Mosfellsbæjar var nokkurn veginn í takt við áætlanir. Hjá Akureyrarbæ var afkoman jákvæð um 372 milljónir en áætlanir gerðu ráð fyrir 450 milljónum og hjá Mosfellsbæ var afkoman jákvæð um 1,5 milljarða en áætlanir gerðu ráð fyrir 1,4 milljörðum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article