Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hallalaus árið 2030

Read Full Article →

Hjá átta stærstu sveitarfélögum landsins var árið 2025 talsvert lakara en árið 2024. Þegar litið er til A-hluta sveitarfélaganna, sem er að mestu rekinn með skattfé, sést að afkoma flestra sveitarfélaga versnaði nokkuð milli ára. Sveitarfélög landsins voru 62 talsins í byrjun árs 2026 en 26 þeirra voru með færri en þúsund íbúa. Í byrjun þessa árs voru íbúar landsins rúmlega 394 þúsund talsins en átta stærstu sveitarfélög landsins telja samanlagt ríflega 300 þúsund íbúa. Fram kemur í fjármálaáætlun 2027-2031 að samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum hafi heildarafkoma A-hluta allra sveitarfélaga landsins árið 2025 verið neikvæð um 22,3 milljarða króna, eða sem nemur um 0,5% af VLF, en að frumafkoma hafi verið jákvæð um 0,9 milljarða. Áætlað er að árið 2026 muni hallinn nema um 0,3% af VLF, eða um 17,5 milljörðum króna, en frumjöfnuður verði jákvæður um 0,1% af VLF, eða um rúmlega 4 milljarða króna. Afkoma A-hluta sveitarfélaganna mun samkvæmt áætluninni styrkjast á komandi árum. Frumjöfnuður verður jákvæður um á bilinu 6,9-15,4 milljarða króna á tímabilinu en heildarafkoma verður orðin jákvæð árið 2030. Árið 2027 er áætluð heildarafkoma neikvæð um 7,7 milljarða, eða um 0,1% af VLF, um 2,6 milljarða árið 2028 og um 0,4 milljarða árið 2029. Árin 2030 og 2031 er áætlað að heildarafkoma verði jákvæð um 1 milljarð. Ef núverandi áætlun er borin saman við fyrri áætlun sem kynnt var í fyrra þá er gert ráð fyrir að heildarafkoma verði að jafnaði um 4 milljörðum króna verri á tímabilinu. Þótt undirliggjandi rekstur sveitarfélaga sé betri en í gildandi áætlun og frumafkoma að jafnaði tæplega 2 milljörðum hærri er vaxtajöfnuður að jafnaði tæplega 6 milljörðum króna verri en forsendur gildandi áætlunar gerðu ráð fyrir. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article