Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Tveir liðsmenn ICE sakaðir um að hafa veitt ósannar upplýsingar um skotárás

  • What: Two ICE officers are accused of providing false information regarding a shooting incident.
  • Impact: The officers have been placed on leave while the matter is investigated.
Read Full Article →

Tveir lögreglumenn sem starfa hjá innflytjendastofnun Bandaríkjanna eru grunaðir um að hafa veitt ósannar upplýsingar í vitnisburði sem þeir gáfu um skotárás á innflytjanda, árásin varð þann 14. janúar í Minneapolis. Todd Lyons, forstjóri innflytjendastofnunarinnar, sagði að lögreglumennirnir tveir hefðu tafarlaust verið sendir í leyfi meðan á rannsókn málsins stendur yfir. Hann segir brot mannanna alvarlegt, „Að ljúga undir eið er alvarlegt alríkisbrot,“ sagði Lyons. Dómari féllst á að fella niður ákærur á hendur tveggja manna sem sakaðir voru um að hafa ráðist á lögreglumennina. Í upphaflegri yfirýsingu heimavarnarráðuneytisins Bandaríkjanna kom fram að lögreglumaður hefði skotið mann í fótinn eftir að þrír innflytjendur réðust á hann með skóflu og kústskafti. Myndbandsupptökur hafa leitt í ljós að vitnisburður lögreglumannanna tveggja stenst ekki. Lyons segir að lögreglumennirnir tveir gætu átt yfir höfði sér uppsögn.

Share this article