Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bresk og frönsk yfirvöld stofna sérstakar deildir um Epstein-skjölin

  • What: British and French authorities are creating special units to investigate allegations related to the Jeffrey Epstein case.
  • Impact: The units will analyze documents and work across departments to investigate potential crimes related to Epstein and his associates.
Read Full Article →

Breska lögreglan hefur stofnað nýja deild til að takast á við ásakanir í tengslum við Epstein-skjölin svokölluðu. Holskefla gagna um bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein var nýlega birt og var til að mynda minnst á Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, nokkrum sinnum. Hann hefur hafnað ásökunum á hendur sér. Að minnsta kosti þrjú bresk lögregluumdæmi hafa fengið tilkynningar í tengslum við birtingu Epstein-skjalanna og lögreglan á von á að þær verði mun fleiri. The Guardian hefur eftir hátt settum lögreglumanni að hann eigi von á flóðbylgju tilkynninga. Franskir saksóknarar tilkynntu einnig að þeir hygðust stofna teymi til að greina skjöl sem tengjast Epstein. Markmiðið er að vinna þvert á deildir ákæruvaldsins og með lögreglu til að varpa ljósi á möguleg brot tengd Epstein eða kunningja hans. Epstein lést í fangelsi árið 2019. Hann var grunaður um kynferðisbrot gegn fjölda kvenna og stúlkna. Birting Epstein-skjalanna hefur valdið fjaðrafoki víða um heim því þar koma fram nöfn margra frægðarmenna á ýmsum sviðum.

Share this article