Innlent | Morgunblaðið | 15.5.2026 | 7:15 Ungum Vesturbæingum stórlétt Börnin héldu upp á farsælar málalyktir með grillveislu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Börnum í Vesturbæ Reykjavíkur er stórlétt eftir að í ljós kom að kofi sem þau hafa unnið að síðustu fjögur árin fær að standa. Forsaga málsins er sú að á dögunum rakst garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar á kofann og hengdi á hann miða með tilkynningu um að hann yrði rifinn þar sem um væri að ræða leiktæki í borgarlandi án öryggisvottunar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Fall- og slysahætta Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir, móðir sem býr í næsta húsi við kofann, segir að garðyrkjudeildinni hafi láðst að skrifa undir orðsendinguna og því hafi tekið nokkurn tíma að finna út hver sendi hana. „Þegar við höfðum loksins samband við þá gáfu þeir okkur fjórar vikur til að rífa kofann út af fallhættu og slysahættu sem þeim fannst stafa af honum,“ segir Anna. „Krakkarnir eru búnir að vera að byggja við þennan kofa í fjögur ár og það hefur aldrei verið kvartað undan honum eða við fengið neina athugasemd fyrr en nú. Það eru börn hérna alls staðar að úr hverfinu sem koma og leika sér í honum.“ Anna Kristín brosti hringinn í grillveislunni í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson Leyfi fékkst Þegar fréttir af fyrirhuguðu niðurrifi kofans bárust til barnanna brugðust þau við með því að safna undirskriftum og hengja upp auglýsingar á ljósastaura til að mótmæla aðgerðinni og á endanum rataði málið í fjölmiðla. Eftir að hafa séð umfjöllun um kofann hringdi sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar í Önnu og tilkynnti henni að garðyrkjudeildin hefði ekki umboð til að taka ákvarðanir sem þessar. Úr varð að Anna sótti um leyfi fyrir kofanum hjá borginni, sem fékkst, og fær hann nú að standa. „Þetta var auðvitað svakalegur léttir fyrir krakkana í gær þegar þetta var loksins í höfn,“ segir Anna en haldið var upp á áfangann með 50 barna grillveislu við kofann. Leyfisbréfið góða. mbl.is/Eggert Jóhannesson Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ungum Vesturbæingum stórlétt Trump segist hafa tryggt samninga við Xi í Beijing Forvirkt samstarf við Evrópusinnaða stjórn 34 ára aldursmunur og umdeildar hjónabandsreglur Kannast ekki við eigið kosningaloforð Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Heilbrigðissetur sérfræðinga fyrir allt Suðvesturland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ólík skuldaþróun Mest lesið Í gær Í vikunni Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Fagnar fjörutíu árunum með stæl Brynjar Níelsson á grillinu Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum „Borgarlínan er áreiðanleg lausn“ Fá sigurlaunin 58 árum eftir úrslitaleik Kannast ekki við eigið kosningaloforð Ýmsir ágallar á verklagi Lögregla fengið nóg af nagladekkjum: Sjö kærðir X26: Baráttusætin í Reykjavík Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Nýjast á mbl.is » Ungum Vesturbæingum stórlétt Trump segist hafa tryggt samninga við Xi í Beijing Forvirkt samstarf við Evrópusinnaða stjórn 34 ára aldursmunur og umdeildar hjónabandsreglur Kannast ekki við eigið kosningaloforð Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Heilbrigðissetur sérfræðinga fyrir allt Suðvesturland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Segir Kristrúnu fara með dylgjur Ýmsir ágallar á verklagi Segir fasteignagjöld hafa lækkað mest í Kópavogi Mest lesið Í gær Í vikunni Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Fagnar fjörutíu árunum með stæl Brynjar Níelsson á grillinu Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum „Borgarlínan er áreiðanleg lausn“ Fá sigurlaunin 58 árum eftir úrslitaleik Kannast ekki við eigið kosningaloforð Ýmsir ágallar á verklagi Lögregla fengið nóg af nagladekkjum: Sjö kærðir X26: Baráttusætin í Reykjavík Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu