Norðanfiskur er framleiðslufyrirtæki á Akranesi sem sérhæfir sig í áframvinnslu sjávarafurða í stóreldhús- og neytendapakkningar og innflutningi sjávarafurða. Fyrirtækið er eitt hið umsvifamesta í brauðun sjávarfangs og fjárfesti nýlega í einni fullkomnustu brauðunarlínu fyrir starfsemina. Fiskifréttir heimsóttu Norðanfisk á dögunum. Norðanfiskur framleiðir matvæli úr sjávarafurðum fyrir innanlandsmarkað. Fyrirtækið var stofnað árið 2001 á Akureyri af Kjarnafæði, sem hefur lengi sérhæft sig í kjötframleiðslu. Starfsemin var ekki mikil í fyrstu. Unnið var einu sinni í viku á milli klukkan 16 og 18. En það var fljótt að breytast. Veltan og umsvifin jukust hröðum skrefum. Páll við grindur með silungi á leið í reykingu. Norðanfiskur fluttist síðan frá Akureyri til Akraness árið 2003. Fyrstu árin voru hluti af framleiðslu Kjarnafæðis, eins og kjötbollur og fleira, áfram hluti af vöruvali Norðanfisks. Nú framleiðir fyrirtækið eingöngu matvæli úr sjávarríkinu og flytur inn. Vörunúmerin eru á bilinu 200-300 talsins. „Við gröfum lax og reykjum lax og silung. Við seljum líka ferskan og frosinn lax í verslanir innanlands. Auk þess sjáum við verslunum fyrir skelfiski eins og hörpuskel, risarækju, humri og kræklingi ásamt fleiru,“ segir Páll Jónsson rekstrarstjóri. Páll er Norðfirðingur. Hann hefur starfað hjá Norðanfiski í sex ár, fyrst sem sölumaður, þá sölustjóri og tók yfir reksturinn allan á síðasta ári sem rekstrarstjóri. Rauðsprettan á Jómfrúnni „Aðaláhersla okkar núna er á brauðaðar vörur. Við brauðum þorsk, ýsu, humar og rækju. Við hjúpum afurðirnar í raspi, orly-deigi eða tempura og pökkum í neytendapakkningar. Nýlega fjárfestum við í nýrri brauðunarlínu sem afkastar um þremur tonnum á dag af vörum í miklum gæðum,“ segir Páll. Í brauðuðum afurðum framleiðir Norðanfiskur til að mynda Kentucky þorsk, ýsu orly-deigi og fisk í raspi sem er þekkt vara hjá íslenskum neytendum. Varan er forsteikt í um 30 sekúndur en ekki elduð í gegn og hentar vel nútímafólki í tímaþröng því hún tekur stuttan tíma í matreiðslu. Hún hentar sérstaklega vel í air-fryer eldunartæki. Norðanfiskur vinnur úr 400 tonnum af laxi á ári. Mikil eftirspurnaraukning varð í brauðuðum vörum Norðanfisks þegar air-fryer bylgjan hófst hér á landi fyrir um það bil þremur árum. Ein vinsælasta varan er brauðuð rauðspretta sem varð fáánleg í verslunum fyrir um það bil einu ári og hefur nánast verið uppseld síðan. Áður var hún eingöngu fáanleg til veitingastaða og stærri mötuneyta. Norðanfiskur sér veitingastaðnum Jómfrúnni fyrir ferskri og brauðaðri rauðsprettu. Fjöldi Skagamanna meðal hluthafa Norðanfiskur fær allan sinn lax í flökum frá Borg Salmon í Borgarnesi sem áður hét Eðalfiskur. Ein varan sem verður til úr því hráefni er Landlax-línan sem fæst í Krónunni, Bónus og víðar. Sama eignarhald er á Norðanfiski og Borg Salmon og móðurfélagið er Eðalfang. Undir því er einnig 101 Seafood sem hefur verið umsvifamikið í innflutningi á sjávarfangi eins og humri og öðrum skelfiski. Horn IV, fjárfestingarsjóður í rekstri Landsbréfa, er stærsti hluthafi Eðalfangs en að því koma líka fjölmargir einkafjárfestar, meðal annars fjöldi Skagamanna. Norðanfiskur framleiðir um 65 tonn á ári af reyktum laxi og annað eins af gröfnum laxi. Framleiðsla ferskum og frystum laxi er þá ótalin. Alls vinnur Norðanfiskur úr um 400 tonnum af laxi á ári. „Við höfum verið leiðandi á innanlandsmarkaði með lax í nokkur ár. Auk þess erum við sennilega með breiðasta úrval af sjávarfangi sem í boði er. Við erum klárlega stærstir í brauðuðum vörum og líklega einnig í laxi,“ segir Páll. 300-400 tonn af hvítfiski á ári Framleiðsla á eldislaxi vex stöðugt á hverju ári á Íslandi. Samhliða útflutningi stóru eldisfyrirtækjanna á lítið unnum fiski hefur verið að vaxa upp vinnslu- og sölumarkaður innanlands og eru Borg Salmon, Eðalfiskur og Norðanfiskur dæmi um slík fyrirtæki. Páll við starfsstöð Norðanfisks á Akranesi. Í hvítfiski eru aðallega unnar vörur úr frosnum þorski, ýsu og rauðsprettu. Þetta eru um 300-400 tonn af hráefni á ári sem koma frá Samherja, Brim og fleiri útgerðum. Páll segir áherslupunkt hjá Norðanfiski að halda verði á ferskum fiski sem lægstu til kaupenda á innanlandsmarkaði. Verð fyrir sambærilegar afurðir erlendis endurspegli engan veginn verð á innanlandsmarkaði þar sem ekki leggjast ofan á dýr flutningskostnaður og umsýsla. Páll segir innanlandsmarkaðinn stærri en margir geri sér grein fyrir, sérstaklega með mikilli aukningu ferðmanna síðustu árin. Fyrirtækið selur mikið af vörum inn á veitingastaði og hótel sem er markaður sem hefur stækkað mikið síðustu ár. Stór hluti sölunnar er til mötuneyta, skóla og verslana. Einnig fer hluti af vörunum til sérhæfðra fiskverslana. Hjá fyrirtækinu starfa um 28 manns, þar af um 20 manns við sjálfa framleiðsluna. Fyrirtækið skiptir miklu máli í atvinnulífi Akraness.