Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tindastóll slökkti í titildraumi Grindvíkinga um stund

Read Full Article →

Tindastóll vann Grindavík í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta, 89-94. Grindavík hefði með sigri getað orðið Íslandsmeistari í fyrsta sinn frá 2013. Gríðarleg stemning var í HS-orku höllinni í Grindavík í kvöld. Stólarnir skrefi á undan Tindastóll var hálfskrefi á undan allan fyrri hálfleik. Þeir vínrauðu leiddu 26-29 eftir fyrsta leikhluta. Basile byrjaði af miklum krafti þrátt fyrir að vera þreyttur. Jeremy Pargo sýndi reynslu sína og var lítið að stressa sig á því að titill væri undir. Tindastóll leiddi 47-51 í hálfleik. Troðsla ársins? Ragnar Ágústsson átti tilþrif kvöldsins þegar hann stal boltanum og tróð í andlitið á Grindvíkingum. Þar kom hann Stólum í 61-63 í þriðja leikhluta og áttu þeir næstu mínútur í kjölfarið. Grindvíkingar fóru illa að ráði sínu á vítalínunni og voru 3/10 þegar skammt var eftir af þriðja leikhluta. Kane kveikti á sér Tindastóll leiddi þá 62-67 en DeAndre Kane kveikti aftur í Grindvíkingum með tveimur þristum undir lok hálfleiksins. Hann skoraði flautukörfu frá miðjuhringnum og allt ærðist hjá þeim gulklæddu. Staðan var því allt í einu orðin 68-69. Kane setti einnig niður þrist í upphafi hálfleiksins. Hann hafði klúðrað fyrstu átta þristum sínum en setti svo þrjá niður í röð. Tindastóll náði svo aftur tökum á leiknum og leiddi með fimm stigum, 74-79, þegar sjö mínútur voru eftir. Gestirnir náðu svo sjö stiga forskoti, 76-83, þegar fjórar mínútur voru eftir. Æsispennandi lokamínútur Ólafur Ólafsson kveikti aftur í Grindvíkingum með þristi sem minnkaði muninn í fjögur stig, 79-83, þegar þrjár mínútur lifðu leiks. DeAndre Kane setti niður rýtingsþrist og Drungilas fékk dæmda á sig sóknarvillu fyrir ruðning í næstu sókn. Þá voru 90 sekúndur eftir og staðan 82-85, Tindastól í vil. Þristur Kane í næstu sókn geigaði og Drungilas setti niður sinn eigin rýtingsþrist. Þá var staðan 82-88. Ragnar setti svo niður skot skömmu síðar og þá var draumurinn úti hjá Grindvíkingum í kvöld. Ólafur Ólafsson gerði sitt besta til að kveikja vonarneista Grindvíkinga er hann setti þrist sem minnkaði muninn í 85-88. Tindastóll sigldi þó sigrinum að lokum örugglega heim. Næsti leikur liðanna er á mánudaginn kemur á Sauðárkróki. Tölfræði DeAndre Kane var stigahæstur Grindvíkinga með 29 stig. Hann bætti við 11 fráköstum og fimm stoðsendingum. Jeremy Pargo var með 21 stig og 10 stoðsendingar. Dedrick Basile leiddi stigaskorun Tindastóls með 21 stig en Drungilas og Badmus voru með 20 stig hvor. Drungilas bætti við níu fráköstum.

Share this article