Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tindastóll vann topplið Grindavíkur

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 14 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Tinda­stóll vann topp­lið Grinda­vík­ur Hans Steinar Bjarnason Nítjándu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta lauk í kvöld með tveimur háspennuleikjum. Valur vann KR í framlengdum leik, 92-90 og Tindastóll vann topplið Grindavíkur, 92-87. Þetta var þriðji sigur Tindastóls í röð og fyrsta tap Grindavíkur eftir þrjá sigra í röð. Þetta var þriðji sigur Tindastóls í röð. RÚV / Mummi Lú Grindavík er með 32 stig á toppi deildarinnar, fjórum stigum á undan Stjörnunni og Tindastóli þegar þremur umferðum er ólokið í deildinni. Staðan í Bónus deild karla Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Þriggja bíla árekst­ur á Hafn­ar­fjarð­ar­vegi Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Þrír bílar runnu saman vegna hálku á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes um klukkan átta í kvöld. Veginum var lokað í um hálftíma vegna árekstursins en hefur verið opnaður aftur. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er enginn illa slasaður en tveir voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar. Sex til átta manns voru í bílunum þremur samanlagt, að sögn slökkviliðs. Einn bílanna var dreginn af vettvangi með kranabíl. Hafnarfjarðarvegur að vetri. RÚV / Hallgrímur Indriðason Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Tólf drepin í árásum Rússa á Úkra­ínu Forseti Úkraínu segir Rússa hafa skotið 29 eldflaugum og 480 drónum í árásum í nótt sem drápu tólf manns. Ein árásanna var á fimm hæða fjölbýlishús. Einn var drepinn í drónaárás Úkraínumanna að sögn rússneskra yfirvalda. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Grá­slepp­an um­deild hvort sem er í kvóta eða ekki Veiðistjórnun á grásleppu kyndir undir þingmönnum, sama hvort til stendur að setja fiskinn í kvóta eða ekki. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Nepal Rapp­ari vinnur sögu­leg­an sigur í þing­kosn­ing­um í Nepal Rapparinn Balendrah Shah var kjörinn forsætisráðherra Nepal í dag. Shah vann stórsigur á fyrrverandi forsætisráðherra landsins sem sætt hefur mikilli gagnrýni. Sigurinn þykir endurspegla aukna þátttöku yngri kjósenda Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Of mikið sé gert úr sterkri stöðu Ís­lands Meirihluti félagsmanna í Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins eru andvígir aðild að Evrópusambandinu. Framkvæmdastjóri SA segir ríkisstjórnina gera of mikið úr sterkri stöðu Íslands í aðildarviðræðum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Stofn­uðu nýtt banda­lag til að berj­ast gegn fíkni­efna­brot­um Hugrún Hannesdóttir Diego Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ýtt úr vör nýju hernaðarbandalagi sem er ætlað að berjast gegn fíkniefnabrotum og uppræta fíkniefnasamtök í Norður- og Suður-Ameríku. Hann tilkynnti um þetta á ráðstefnu með öðrum Ameríkuríkjum í Flórída. Sautján Ameríkuríki tilheyra bandalaginu, sem kallast Shield of the Americas, eða Skjöldur Ameríku. Kristi Noem, sem þar til nýverið var heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, verður sérstakur erindreki nýja bandalagsins en ekki er ljóst hvað það hlutverk felur í sér. Sautján Ameríkuríki eiga aðild að nýja bandalaginu. AP / Mark Schiefelbein Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar FH bik­ar­meist­ari karla og kvenna í frjáls­um FH stóð uppi sem bikarmeistari bæði karla og kvenna í liðakeppni bikarmóts frjálsíþróttasambandsins í dag. FH vann einnig tvöfalt um síðustu helgi á meistaramóti Íslands. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum „Dag­legt líf hélt ein­hvern veginn áfram“ Íslensk hjón sem búsett eru í Japan voru í fríi í Sádí-Arabíu þegar átök brutust út í Mið-Austurlöndum í síðustu viku. Þau upplifðu sig ekki í mikilli hættu en eru þakklát íslenskum stjórnvöldum sem hjálpuðu þeim að komast burt af átakasvæðinu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Úti­lok­ar sam­starf við Sam­fylk­ing­una – „Það er full­reynt“ Oddviti Framsóknarflokksins segist útiloka samstarf við Samfylkinguna í borginni því stefna hennar og framboðslisti veki litla von um að flokkarnir nái saman í mikilvægum málaflokkum. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Ólympíumót fatlaðra Systk­ini sigr­uðu í bruni sjón­skertra Vetrarólympíumót fatlaðra var formlega sett í Veróna á Ítalíu í gærkvöldi. Í dag var svo keppt til úrslita í tveimur greinum, bruni og skíðaskotfimi karla og kvenna. Í bruni sjónskertra stóðu systkini uppi sem sigurvegarar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Al­ræmd­ur morð­ingi drep­inn í bresku fang­elsi Ian Huntley myrti tvær tíu ára stúlkur í Bretlandi árið 2002 og fékk tvo lífstíðardóma. Hann var fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir að ráðist var á hann í fangelsinu. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ch­el­s­ea slapp með skrekk­inn gegn Holly­woodlið­inu Chelsea komst naumlega áfram í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld eftir sigur í framlengingu gegn b-deildarliðinu Wrexham. Manchester City og Arsenal komust einnig áfram. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Við­brögð eftir leik: Seinni góður og liðið þarf þol­in­mæði í næsta glugga Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta laut í lægra haldi fyrir Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM 2027 í dag. Landsliðsþjálfarinn er sáttur með seinni hálfleik og fyrirliðinn segir liðið þurfa þolinmæði. Liðin mætast aftur í apríl. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vor til vinstri op­in­ber­ar efstu sætin Andri Yrkill Valsson Vor til vinstri kynnti í dag efstu þrjú sætin fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, þar sem boðið er sameiginlega fram með Vinstri grænum undir merkjum Vinstrisins. Sanna Magdalena Mörtudóttir er oddviti en Ásta Þórdís Skjalddal er önnur, og verður í fjórða sæti hjá Vinstrinu, og Arna Magnea Danks þriðja, sem gefur fimmta sætið á lista Vinstrisins. Efstu tvö sæti Vinstri grænna skipa 2. og 3. sætið á lista Vinstrisins. Líf Magneudóttir var hlutskörpust í forvali VG og Stefán Pálsson varð í öðru. Ljósmynd / Aðsend Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Átta látnir af völdum ský­stróka í Banda­ríkj­un­um Hugrún Hannesdóttir Diego Átta eru látnir og að minnsta kosti tólf slasaðir af völdum skýstróka sem mynduðust í illviðri í Bandaríkjunum í dag. Fjórir létust í Michigan og fjórir í Oklahoma. Tré hafa fallið á vegi og byggingar í óveðrinu. Tafir hafa orðið á umferð auk þess sem borið hefur á rafmagnstruflunum. Rúmlega 500 voru án rafmagns í Cass-sýslu í Michigan í dag. Eyðileggingin er töluverð í Three Rivers í Michigan AP/MLive / Devin Anderson-Torrez AP/MLive / Devin Anderson-Torrez Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nýr odd­viti Pírata í borg­inni vill ein­falda líf íbúa Kristinn Jón Ólafsson verður oddviti Pírata í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann skákaði sitjandi oddvita í prófkjöri flokksins. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Jónína áfram odd­viti Fram­sókn­ar í Múla­þingi Andri Yrkill Valsson Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, verður áfram oddviti Framsóknarflokksins í Múlaþingi. Listinn var samþykktur á félagsfundi í dag. Eiður Ragnarsson ferðaþjónustubóndi verður í öðru sæti og í þriðja sæti Þórey Birna Jónsdóttir sauðfjárbóndi. Þar á eftir koma Björg Eyþórsdóttir og Guðmundur Bj. Hafþórsson. „Við bjóðum fram lið sem sameinar mikla reynslu en einnig nýtt blóð og nýja sýn á málefnin. Þetta er listi fólks sem þekkir sveitarfélagið, lifir og starfar í samfélaginu og vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp sterkt og samheldið Múlaþing,“ er haft eftir Jónínu í tilkynningu. Listann í heild má sjá HÉR. Aðsend Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Við erum ekki að fara í málþóf í þessu máli“ Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki halda uppi málþófi á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið, segir þingmaður flokksins. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Dalabyggð Borga fyrir ull sem annars er metin sem verð­laus Eigendur nýrrar ullarvinnslu í Dalabyggð segja markmiðið með vinnslunni tvíþætt. Annars vegar að hækka ullarverð til bænda og hins vegar að stuðla að því að viðhalda litum íslenska sauðfjárkynsins. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vinstri flokk­ar leiti sí­fellt meira til hægri Svandís Svavarsdóttir segir mikla eftirspurn vera eftir skýrum vinstri boðskap því vinstri flokkar hér á landi leiti sífellt meira til hægri. Hún flytur sína síðustu ræðu sem formaður Vinstri grænna í dag og nýr formaður verður kjörinn á morgun. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður ESB aðild hefði „veru­leg nei­kvæð áhrif á hags­muni ís­lenskra bænda“ Aðild að Evrópusambandinu hefði líklega verulega neikvæð áhrif á hagsmuni íslenskra bænda, segir formaður Bændasamtakanna. Samtökin séu þó ekki andsnúin því að þjóðin fái að kjósa um hvort halda eigi áfram viðræðum við ESB. 7. mars 2026 kl. 12:00MENNING OG DÆGURMÁL Ríkisútvarpið „Góðir Ís­lend­ing­ar“ – Hildur Vala stýrir nýjum skemmti­þætti á RÚV Nýr skemmtiþáttur hefst á RÚV laugardagskvöldið 28. mars. Sex þættir verða í beinni útsendingu. Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir er aðalstjórnandi og fær með sér landsþekkta skemmtikrafta í hverjum þætti. 7. mars 2026 kl. 11:52INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Raf­magns­laust varð í Laug­ar­dal vegna bil­un­ar Andri Yrkill Valsson Rafmagnslaust varð í Laugardal og nágrenni í Reykjavík skömmu fyrir hádegi vegna bilunar, samkvæmt upplýsingum frá Veitum. Beðist er velvirðingar á óþægindunum sem þetta kann að valda. Uppfært klukkan 12.45: Rafmagn er komið á að nýju á Suðurlandsbraut, Nökkvavog og Karfavog, en er unnið að viðgerð. Uppfært klukkan 14: Rafmagn er komið á að nýju hjá öllum notendum. Séð yfir Laugardal. Reykjavíkurborg 7. mars 2026 kl. 11:03INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tvær stór­felld­ar lík­ams­árás­ir í mið­borg­inni Tveir voru handteknir vegna gruns um stórfelldar líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þeir verða yfirheyrðir síðar í dag. Áhaldi var beitt í annarri árásinni. 7. mars 2026 kl. 10:57INNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ekki náðst í 26 Ís­lend­inga á áhrifa­svæð­um stríð­s­átaka Ekki hefur tekist að ná sambandi vi

Share this article