Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Afar hörð toppbarátta eftir Grindavíkursigur

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 30 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Afar hörð topp­bar­átta eftir Grinda­vík­ur­sig­ur Jóhann Páll Ástvaldsson Abby Beeman átti stórleik fyrir Grindavík í kvöld. Hún var með 26 stig, 14 fráköst og níu stoðsendingar. E RÚV / Mummi Lú Toppbaráttan í efstu deild kvenna í körfubolta er afar hörð. Fjögur lið eru jöfn í öðru til fjórða sæti og eru einungis tveimur stigum á eftir toppliði Njarðvíkur. Njarðvík er með 26 stig en KR, Valur, Haukar og Grindavík eru öll jöfn með 24 stig. Grindavík vann 98-87 sigur á KR í kvöld. Haukar unnu sterkan 85-59 sigur gegn Val. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Frjálsar FH vann tvö­falt á Meist­ara­móti Ís­lands FH vann í karla- og kvennaflokki í stigakeppni á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Vís­bend­ing­ar um að þetta verði jafn­stórt verk­efni og inn­rás­in í Írak fyrir 23 árum Prófessor í Mið-Austurlandafræðum segir vísbendingar um að árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran verði jafnstórt verkefni og innrásin í Írak 2003. Óljóst er hvað vakir fyrir Bandaríkjaforseta með aðgerðunum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Allt sam­band við fjöl­skyldu og vini í Íran verið rofið Írönsk kona á Íslandi fagnar því að útlit sé fyrir að klerkastjórnin geti fallið. Hún óttast þó um afdrif fjölskyldu sinnar og vina í Íran, en allt samband við þá hefur verið rofið. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hefði ekki sótt með­ferð ef hún hefði kostað Ég hefði aldrei orðið edrú ef ég hefði ekki fengið þessa meðferð, segir ung kona sem fær viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn. Hún óttast að nýtt gjald fyrir meðferðina verði til þess að færri nýti sér hana. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Belarús Mik­il­vægt að rjúfa ein­angr­un Bela­rús Belarúski stjórnarandstæðingurinn Maria Kolensnikova segir mikilvægt að rjúfa einangrun Belarús, því hún gagnist aðeins Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Kolensnkikova afplánaði 5 ára dóm sem pólitískur fangi í Belarús. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Horn­spyrna, horn­spyrna, horn­spyrna og Ars­en­al með fimm stiga for­skot Jóhann Páll Ástvaldsson Piero Hincapie skallar boltann eftir hornspyrnu Chelsea. EPA Arsenal vann Chelsea 2-1 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Öll mörkin þrjú komu eftir hornspyrnur. William Saliba kom heimamönnum í Arsenal yfir á 21. mínútu. Piero Hincapie setti boltann í eigið net í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir hornspyrnu Reece James. Jurrien Timber kom Arsenal svo yfir á 66. mínútu eftir hornspyrnu Declan Rice. Pedro Neto fékk reisupassann á 70. mínútu er hann fékk sitt annað gula spjald. Liam Delap skoraði í uppbótartíma en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Arsenal er enn í efsta sæti með fimm stiga forskot á Manchester City. Chelsea er í 6. sæti með 45 stig. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Fara á Garni­val til að klappa trefj­un­um Vel á annað þúsund handverksunnendur söfnuðust saman á garnhátíðinni Garnival í dag. Hátíðinni hefur vaxið fiskur um hrygg síðustu ár og færri komust að en vildu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Af­þrey­ing­ar­efni ástæða fyrir komu um helm­ings ferða­manna Um það bil helmingur erlendra ferðamanna á Íslandi segir að birting íslensks landslags í sjónvarpsefni eða öðru afþreyingarefni hafi haft áhrif á ákvörðun þeirra að heimsækja landið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Skíði „Aum­ingja skíðin“ í Blá­fjöll­um Það viðrar vel til skíðaiðkunar í dag og fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Bláfjöll í bliðviðrinu. Rekstrarstjóri Bláfjalla segir að skíðað hafi verið í öllum hlíðum fjallsins þrátt fyrir að snjóbreiðan væri grunn. Hann vorkennir skíðum landsmanna. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Eig­in­lega ekki hægt að gera verr“ Tveir borgarfulltrúar með áratuga reynslu hlutu ekki náð fyrir uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi kosningar. Miklar breytingar eru á listanum sem var kynntur í gær. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Lög­regl­an á Aust­ur­landi hvetur fólk til að vera heima á morgun Lögreglan á Austurlandi hvetur þá sem ekki þurfa að vera á ferðinni að vera heima á morgun vegna veðurs. Þeir sem þurfa að vera á ferðinni eru hvattir til að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndagagnrýni Ís­lenska kvik­mynda­ár­ið hefst á klikk­uð­um konum: Dimma­limm og Röskun Dimmalimm og Röskun eru kvikmyndir um konur með geðrænan vanda. Nálgun þeirra og útfærsla gæti þó ekki verið ólíkari, segir Kolbeinn Rastrick, gagnrýnanda Lestarinnar. Röskun sé fínasta ræma en Dimmalimm klisjukennd. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Tveir Álft­nes­ing­ar inn fyrir leik­inn gegn Litáen Tveir nýir leikmenn hafa verið valdir í íslenska landsliðið fyrir leik gegn Litáen í undankeppni HM 2027. Ísland vann sögufrægan sigur gegn Litáum nýverið en mætir þeim í annað sinn á mánudaginn. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Íran Hefur áhyggj­ur af enn frek­ari stig­mögn­un átaka Utanríkisráðherra hefur áhyggjur af enn frekari stigmögnun átaka eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og hefndarárásir Írana í Mið-Austurlöndum. Það sé ekki beint eftirsjá af stjórnarháttum klerkastjórnarinnar. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ótíma­bært að segja hvort lög­reglu­stjór­an­um verði vikið frá störf­um Dómsmálaráðherra segir ótímabært að segja hvort lögreglustjóranum á Vestfjörðum verði vikið frá störfum eftir að kvartað var undan hegðun hans á þorrablóti Flateyringa. 1. mars 2026 kl. 13:00MENNING OG DÆGURMÁL Leiklist „Þú vilt að börnin þín stækki en samt viltu líka bara að þau séu lítil í fangi enda­laust“ Sýningin Hreiðrið er fyrir allra yngstu leikhúsáhorfendurna. Leikstjórinn Agnes Wild segir verkið vera þroskasögu unga en einnig hvernig foreldrar fylgjast með börnunum sínum vaxa og dafna 1. mars 2026 kl. 12:03MENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir „Ef við tökum burt alla þessa ramma úr sam­fé­lag­inu, hvað þýðir þá að vera ung­ling­ur?“ Í bókinni Sólgosi veltir Arndís Þórarinsdóttir fyrir sér hvernig er að vera unglingur þegar samfélagið fer á hliðina vegna langtímarafmagnsleysis. 1. mars 2026 kl. 10:35ERLENDAR FRÉTTIR Sjónvarp Ham­ingju­söm til ævi­loka eða föst í drauma­ver­öld? Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. 1. mars 2026 kl. 10:26INNLENDAR FRÉTTIR Veður App­el­sínu­gul­ar við­var­an­ir vegna stór­hríð­ar á Norð­aust­ur­landi Norðvestan hríð eða stórhríð er spáð á norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun. Óvissustig tekur gildi víða og má búast við því að vegir geti lokað með skömmum fyrirvara. Appelsínugular og gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út. 1. mars 2026 kl. 10:22ERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð Banda­ríkja­for­seti hvetur írönsku þjóð­ina til að end­ur­heimta land sitt Ísrael og Bandaríkin hófu nýjar árásir á skotmörk í Íran í morgun. Ali Khameini, æðstiklerkur Íran var drepinn í árásum Ísrael og Bandaríkjanna í gær. Aðrir háttsettir leiðtogar líkt og varnarmálaráðherra Íran og yfirmaður byltingarvarðarins voru einnig drepnir í árásunum. Utanríkisráðherra Írans segir að nýr æðsti klerkur verði jafnvel valinn innan nokkurra daga. Ísraelsk stjórnvöld segja að helmingur eldflaugasafns Íran hafi þegar verið eyðilagður. Íranski byltingarvörðurinn hefur hafið stórsókn á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum og heitir því að hefna árásanna á Íran grimmilega. Að minnsta kosti sextán féllu í loftárásum Írana á Ísrael í dag. 165 hið minnsta voru drepin í loftárás Bandaríkjanna og Ísraela á stúlknaskóla í Íran í gær. Leitar- og björgunaraðgerðum er lokið. Yfirvöld í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi segjast reiðubúin að verja hagsmuni sína og bandamanna sinna í Persaflóa ef þörf er á með varnaraðgerðum sem beinist gegn Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti hvetur meðlimi íranska byltingarvarðarins, hermenn og aðra löggæsluliða til að leggja niður vopn sín og njóta í stað friðhelgi. Þá hvetur hann írönsku þjóðina til að grípa tækifærið og endurheimta land sitt. FRÉTTAVAKT 1. mars 2026 kl. 9:09ERLENDAR FRÉTTIR Íran Ólík­legt að dauði Kham­eini verði til þess að klerka­stjórn­in falli Ali Khameini, æðstiklerkur Íran, var drepinn í árásum Bandaríkjanna og Ísrael. Fleiri meðlimir írönsku stjórnarinnar, hersins og byltingarvarðarins voru einnig drepnir. Talið er ólíklegt að þetta verði til þess að koma klerkastjórninni frá völdum. 1. mars 2026 kl. 8:29MENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Er hægt að meta manns­líf til fjár? Spurningin um hvernig mannslíf er metið kom upp eftir að sprengja sprakk að Ási í Fellum fyrir 80 árum. Beiðni um bætur var send til breskra yfirvalda. Fjögur létust í sprengingunni, öll úr sömu fjölskyldu. 1. mars 2026 kl. 8:00MENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Maður þarf stund­um að geta sagt góðar sögur í gegnum áföll­in í lífinu“ Þórey Mjallhvít Heiðardóttir Ómarsdóttir fékk þær fregnir á fertugsafmæli sínu að hún væri með brjóstakrabbamein. Hún er krabbameinslaus í dag en segir að tímasetningin fyrir erfiðar fréttir hafi verið grátbrosleg, og í það minnsta efni í góða sögu. 1. mars 2026 kl. 7:56ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ep­stein greiddi læknum fyrir sér­staka lækn­is­þjón­ustu Lítill en traustur hópur lækna veitti kynferðisafbrotamanninum Jeffrey Epstein og konum sem hann umgekkst sérstaka læknisþjónustu, jafnvel á heimili hans. Sumir læknanna beygðu eða brutu siðareglur í starfi sínu sem læknar. 1. mars 2026 kl. 7:42INNLENDAR FRÉTTIR Veður Hægur vindur víða í dag en hvess­ir hressi­lega á Aust­ur­landi á morgun Ragnar Jón Hrólfsson Norðlæg átt verður á landinu í dag. Kaldi eða strekkingur við suður- og austurströndina en annars fremur hægur vindur. Búast má við snjókomu með köflum austanlands og dálitlum éljum norðantil. Frost verður á bilinu 0 til 10 stig. Á morgun hvessir á austurhelmingi landsins. Þá gengur í norðvestan hvassviðri eða s

Share this article