Innlent | Morgunblaðið | 16.5.2026 | 8:00 Veljum samfélag félagshyggju Rósa Björk Brynjólfsdóttir Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Sveitarstjórnarkosningarnar í dag eru mjög mikilvægar. Við kjósum til að velja vænlegustu leiðirnar við stjórn nærsamfélaganna okkar. Fólk getur valið á milli flokka til hægri, flokka sem segjast vera á miðjunni eða flokka til vinstri. Við veljum líka blönduð framboð í sveitarstjórnarkosningum og sums staðar eru persónukosningar. En valið er alltaf okkar sjálfra. Og það eru risastórir málaflokkar undir; hvernig á að stýra leik- og grunnskólunum okkar, samgöngukostir, skipulagsmálin, húsnæðismálin en líka velferðarþjónustan, málefni eldri borgara, menningarlíf og listir. Allt eru þetta viðfangsefni sveitarfélaganna. Málaflokkar sem snerta okkar daglega líf og þeirra sem okkur eru kærust. Valið í dag snýst um það hvort við viljum að félagshyggjan og jöfnuður, eða markaðshyggjan, verði við völd í okkar daglega lífi. Viljum við að leik- og grunnskólarnir virki og vellíðan og námsárangur barnanna okkar séu sett í forgang með opinberri umsjón og aðhaldi? Eða treystum við fyrirtækjum fyrir því? Styðjum við opinbert skólakerfi eða viljum við fela einkaaðilum umsjón með skólastarfi barnanna okkar? Hvers konar samgönguleiðir viljum við? Áherslu á einkabílinn og fleiri bílastæði fyrir hann eða skjótari og umhverfisvænar samgöngur fyrir okkur öll? Hvernig viljum við að hverfin okkar séu skipulögð? Þéttari byggð í göngufæri við þjónustu og með skemmri tíma í samgöngur eða viljum við megináherslu á byggðir fjær þungamiðju stjórnsýslunnar og stórum háskólum og vinnustöðum? Við veljum líka í þessum kosningum hvers konar húsnæði verður á boðstólum í sveitarfélögunum okkar; húsnæði sem verður nær eingöngu á færi efnaðs fólks, eða val um öruggt óhagnaðardrifið húsnæði sem raunhæfan kost fyrir þau sem eru að taka sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði eða hafa minna á milli handanna? Stóra spurningin sem við þurfum að svara í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag snýst auðvitað um það hvers konar samfélag við viljum í grunninn. Förum fram á við og veljum félagslegt jafnrétti, sterka velferð og náttúruvernd Samfélög jafnréttis og félagshyggju, með ábyrga framtíðarsýn fyrir okkur öll og virðingu fyrir náttúrunni að leiðarljósi, eru betri fyrir heildina og auka lífsgæði fleiri íbúa. Þau eru umhverfisvænni og sjálfbærari og auka þar af leiðandi vellíðan okkar og lýðheilsu. Við fáum stuðning í réttlátari samfélögum þegar á þarf að halda og þar sem félagshyggjan er ráðandi. Þar eru mannréttindi líka virt og fólk af öllum uppruna, öll börnin okkar og eldri íbúar fá góða þjónustu. Nærsamfélög þar sem markaðshyggjan er við völd draga úr framboði á öruggu, óhagnaðardrifnu húsnæði og þvinga fólk inn á húsnæðismarkað sem er óöruggur, dýr og óáreiðanlegur fyrir allt of marga íbúa. Þau þvinga fólk í erfiðari efnahagsstöðu. Markaðshyggjuflokkarnir leggja líka höfuðáherslu á bílastæði, einkabílinn og heimgreiðslur til mæðra. Vilja leggja niður skóla án aðgreiningar en eru ekki með neinar lausnir um hvert börn sem þurfa stuðning eiga að fara. Þessir hægriflokkar vilja líka skipta sér af því sem fram fer í skólastofum barna og koma upp einkunnakerfi fyrir foreldrana en ekki börnin sjálf. Þeir vilja fara aftur í tímann en ekki fram á við. Vinstri græn eiga formlega aðild að framboðum í átta sveitarfélögum þar sem 64% kjósenda búa. Framboð þessi leggja öll áherslu á félagslegt réttlæti, jöfnuð og sterka velferð, náttúruvernd og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda í sátt við lífríki og samfélög. Mannréttindi, lýðræði og jafnrétti kynjanna ásamt eflingu lýðheilsu og áherslu á menningu og listir eru líka rauður þráður í framboðunum sem VG á aðild að. Valið er því skýrt í dag. Veljum félagslegt jafnrétti, umhverfis- og náttúruvernd, jöfnuð og sterka velferð fyrir daglegt líf í nærsamfélögunum okkar. Fyrir okkur öll og fyrir framtíðina. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri-grænna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Pistill: Sannsögli á að vera aðalsmerki stjórnmálamannsins Rússneska hagkerfið dregst saman Aðsend grein: Veljum samfélag félagshyggju Íslandsvinurinn tapaði 300 milljörðum Sex í afmælisferð, ein í útskriftarferð Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greiða milljarða eftir raforku- og gasmælaskandal Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Gat ekki svarað „fráleitri“ spurningu Einars X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Tekur undir gagnrýni um takmörkun á launahækkun Fagna „vöggu bítsins“ með stórtónleikum í Keflavík „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Pistill: Sannsögli á að vera aðalsmerki stjórnmálamannsins Rússneska hagkerfið dregst saman Aðsend grein: Veljum samfélag félagshyggju Íslandsvinurinn tapaði 300 milljörðum Sex í afmælisferð, ein í útskriftarferð Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greiða milljarða eftir raforku- og gasmælaskandal Gat ekki svarað „fráleitri“ spurningu Einars Beint: Landsmenn ganga til kosninga „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Tekur undir gagnrýni um takmörkun á launahækkun Fagna „vöggu bítsins“ með stórtónleikum í Keflavík „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum