Innlent | Morgunblaðið | 16.5.2026 | 12:30 Skora á bæjaryfirvöld Breyta á svæðinu úr iðnaðarsvæði í miðsvæði þar sem gert er ráð fyrir blandaðri starfsemi. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Hvalur hf. skorar á bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að gera breytingar á auglýstri tillögu að nýju aðalskipulagi bæjarins, en skv. því er ætlunin að landnotkun á svæði því, sem Hvalur er með starfsemi á, verði breytt úr iðnaðarsvæði í svokallað miðsvæði, sem er þróunarreitur þar sem gert er ráð fyrir blandaðri starfsemi, íbúðabyggð og atvinnustarfsemi. Hingað til hefur svæðið verið skilgreint sem iðnaðarsvæði, en Hvalur er með sína starfsemi á Reykjavíkurvegi 46-48. Þetta kemur m.a. fram í umsögn fyrirtækisins í skipulagsgátt. Segir í umsögninni að allan rökstuðning skorti fyrir breytingunni. Samkvæmt fyrirhuguðu aðalskipulagi sé m.a. gert ráð fyrir blandaðri byggð, þar sem verslunar- og þjónustustarfsemi, stjórnsýsla og skrifstofur yrðu, ásamt íbúðum sem einkum yrðu á efri hæðum bygginga. Bent er á að óskýrt sé hvort athafnasvæði Hvals á Reykjavíkurvegi verði óbreytt eður ei og ósamræmis gæti í tillögunni. Segir í umsögninni að Hvalur hafi verið atvinnurekandi í Hafnarfirði og verið svo áratugum skipti á sama reitnum og hafi áform um að halda því áfram. Fyrirhugaðar breytingar séu til þess fallnar að grafa undan fyrirsjáanleika þegar komi að atvinnustarfsemi og uppbyggingu hennar í Hafnarfirði, með tilheyrandi áhættu og kostnaði henni samfara. Gangi áformaðar breytingar á aðalskipulagi eftir sé „jafnframt ljóst að sjónarmið um að Hafnarfjarðarbær sé álitlegur kostur fyrir aðila sem huga að atvinnuuppbyggingu eru orðin tóm,“ segir m.a. í umsögninni. Skorar fyrirtækið á bæjaryfirvöld að gera breytingar á aðalskipulagstillögunni og færa landnotkun á svæði Hvals til samræmis við núgildandi skipulag, að svæðið verði eingöngu iðnaðarsvæði. Ekki ætti að huga að breytingum á landnotkun á svæði Hvals fyrr en að því kæmi að stjórnendur fyrirtækisins ákvæðu að starfseminni yrði betur komið fyrir annars staðar. Aðalskipulagstillagan var samþykkt á fundi í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 22. apríl sl. og liggur nú frammi til kynningar. Þá hefur verið boðaður kynningarfundur umhverfis- og skipulagssviðs bæjarins um málið, en áformað er að halda hann á Ásvöllum 20. maí nk. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hefur fundað með Chelsea Öðrum hring GSÍ mótaraðarinnar aflýst Kjörsókn eykst: „Eins og smurð vél“ Skora á bæjaryfirvöld Yfirgefur Nývang Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Valdið færist til kjósenda Frambjóðendur streyma á kjörstað: „Mjög skemmtilegt“ Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Þetta eru einkenni hantaveiru Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Skólastarf flutt úr Skrímslasetri Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Frambjóðendur streyma á kjörstað: „Mjög skemmtilegt“ Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Hefur fundað með Chelsea Öðrum hring GSÍ mótaraðarinnar aflýst Kjörsókn eykst: „Eins og smurð vél“ Skora á bæjaryfirvöld Yfirgefur Nývang Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Á kjörstað og svo beint upp á flugvöll X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Kjörsókn eykst: „Eins og smurð vél“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Leyfir framkvæmdir vegna Borgarlínu Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Skólastarf flutt úr Skrímslasetri Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Frambjóðendur streyma á kjörstað: „Mjög skemmtilegt“ Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum